ON
← Back to feed
ISCulture2 days ago

Dry concrete shortens waiting times and reduces moisture in buildings

The article discusses EKS Verk's innovative dry concrete mix, which uses significantly less water than traditional methods. This mixture reduces drying time, improves strength, and minimizes risks associated with moisture and mold. The material is suitable for various construction projects, including residential buildings, commercial spaces, and summer homes. The article highlights the benefits of this new approach, such as faster work processes and reduced water usage.

EKS Verk

19. júní 2026 11:37

Þegar kemur að gólfílögnum í byggingum skipta gæði, þurrktími og rakavarnir miklu máli. Það þekkir Ellert Kristófer Schram, eða Elli eins og hann er gjarnan kallaður, betur en flestir. Fyrirtæki hans, EKS Verk, sérhæfir sig í þurrsteypu sem er gólfílögn sem inniheldur mun minna vatn en hefðbundnari lausnir og getur þannig dregið úr rakaáhættu, flýtt fyrir verkferlum og skilað sléttu, sterku yfirborði tilbúnu fyrir endanlegt gólfefni.

„Það er bara þriðjungur til fjórðungur af vatni í þessari ílögn miðað við það sem almennt er notað hér á landi,“ segir Ellert. „Á meðalstórri íbúð getur munað allt að þúsund lítrum af vatni. Það er eiginlega heill heitur pottur sem þarf annars að gufa upp.“

Mynd/Hulda Margrét.

Þurrsteypan sem EKS Verk notar er blanda af sandi, sementi og mjög litlu magni af vatni. Hún er lögð yfir gólfhitalagnir og hentar bæði í íbúðarhúsnæði, fjölbýli, votrými, sumarhús og stærri atvinnu- og þjónustubyggingar. Kostirnir felast meðal annars í stuttum þurrktíma, góðum styrk, sléttu yfirborði og minni líkum á raka- og mygluvandamálum. Það flýtir verkferlum því hún þornar hraðar, styrkist fyrr og skilar þannig sléttu, sterku yfirborði tilbúnu fyrir endanlegt gólfefni.“

Mikill tímasparnaður

Minna vatn getur haft veruleg áhrif á framvindu framkvæmda. Þegar hefðbundin ílögn er lögð þarf vatnið í henni að gufa upp áður en hægt er að halda áfram með næstu verkþætti. Með þurrsteypunni styttist þessi biðtími og aðrir iðnaðarmenn geta oft tekið við strax daginn eftir. „Daginn eftir að við klárum getur næsti verktaki yfirleitt hafið vinnu,“ segir Ellert. „Málarar, rafvirkjar eða aðrir geta haldið áfram án þess að bíða í langan tíma.“

Mynd/Hulda Margrét.

Endanlegt gólfefni, til dæmis parket eða flísar, má yfirleitt leggja eftir um 28 daga. Yfirborðið verður þá slétt og tilbúið fyrir næsta skref án umfangsmikillar eftirvinnu. „Við förum inn, klárum verkið og bökkum út,“ segir Ellert. „Það þarf ekki að byrja á því að slípa eða laga yfirborðið sérstaklega. Það er einn af stóru kostunum.“

Byggir á langri reynslu

Á bak við EKS Verk er löng reynsla úr byggingariðnaði. Ellert er menntaður byggingafræðingur og húsasmiður og hefur meira en 25 ára reynslu sem verkefnastjóri. Hann bjó í um tvo áratugi í Danmörku þar sem hann starfaði meðal annars hjá Skanska og MT Højgaard og kynntist þar þeirri aðferðafræði sem síðar varð grunnurinn að fyrirtækinu. „Þetta er í raun bara mjög hefðbundin aðferð úti í Evrópu,“ segir hann. „Svona er þetta gert í Danmörku, Þýskalandi og víðar. Þegar ég kom heim til Íslands árið 2013 skildi ég eiginlega ekki af hverju þetta væri ekki gert svona hér líka.“

Mynd/Hulda Margrét.

EKS Verk hóf síðar að sinna slíkum verkefnum hér á landi en starfsemin tók verulega við sér þegar kallað var eftir lausn við Kársnesskóla í Kópavogi. Þar var óskað sérstaklega eftir þurrari ílögn vegna rakaáskorana í framkvæmdinni. „Þá var hringt í mig og ég tók verkefnið að mér. Og þar fór boltinn að rúlla fyrir alvöru.“

Danski sandurinn hentar betur

Eitt af því sem Ellert segir skipta mestu máli fyrir gæði lokaafurðarinnar er hráefnið. Hann flytur sjálfur inn sérstakan danskan sand sem hentar betur í þessa tegund ílagnar en sá sandur sem hann hafði áður prófað hér á landi. „Ég prófaði íslenskan sand í byrjun en hann hentar þessu einfaldlega ekki eins vel,“ segir hann. „Íslenski sandurinn dregur svo mikið vatn í sig og þá verður erfiðara að stjórna blöndunni.“

Mynd/Hulda Margrét.

Hann lýsir muninum með einfaldri samlíkingu. „Að vinna með íslenska sandinum var svolítið eins og að reyna að jafna út tyggjó. Með danska sandinum er þetta meira eins og smjör. Það verður miklu sléttara og betra yfirborð.“

Í steypuna eru einnig sett trefjaefni sem minnka sprungumyndun og sérstök íblöndunarefni sem bæta hitaleiðni fyrir gólfhita. Í fjölbýlishúsum getur þurrsteypan einnig reynst vel þar sem hún lekur ekki undir eða fram hjá hljóðeinangrunardúk með sama hætti og fljótandi ílagnir geta gert ef frágangi er ábótavant. „Með þurrsteypu lekur þetta ekkert,“ segir Ellert. „Það gefur aukið öryggi fyrir því að hljóðeinangrunin virki eins og hún á að gera.“

Mynd/Hulda Margrét.

Henta ekki síður minni framkvæmdum

Þótt EKS Verk hafi komið að stórum verkefnum á borð við Kársnesskóla, Heklureitinn, Hyatt Centric hótelinu á Laugavegi, Vesturbakkann á Kársnesi og Fjallaböðunum í Þjórsárdal, leggur Ellert ríka áherslu á að þjónustan sé ekki eingöngu ætluð stórum verktökum. „Við tökum líka litlar íbúðir, sumarhús og smærri framkvæmdir,“ segir hann. „Þetta er mjög sveigjanlegt kerfi og við getum unnið nánast hvar sem er.“

Mynd/Hulda Margrét.

Fyrirtækið vinnur meðal annars fyrir Jáverk og Húsheild Hyrnu sem er að byggja fjölda íbúða á Akureyri en Ellert segir ekkert mál að sinna verkefnum utan höfuðborgarsvæðisins. Þar komi styrkur aðferðarinnar vel í ljós. „Við erum ekki háð steypubíl eða dælubíl á sama hátt og hefðbundin ílagnalausn gerir,“ segir hann. „Við blöndum efninu á staðnum og getum dælt þ…

Read the full article at Vísir

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
Dry concrete shortens waiting times and reduces moisture in buildings

The article discusses EKS Verk's innovative dry concrete mix, which uses significantly less water than traditional methods. This mixture reduces drying time, improves strength, and minimizes risks associated with moisture and mold. The material is suitable for various construction projects, including residential buildings, commercial spaces, and summer homes. The article highlights the benefits of this new approach, such as faster work processes and reduced water usage.

Bias read (Center): The article focuses on a technological innovation in construction materials without any political commentary or framing. It presents factual information about the product's features and benefits without taking a stance or showing bias toward any political ideology.