ON
← Back to feed
ISTechnology2 days ago

Win their best victory since the beginning

Iceland won a historic victory against Kosovo in the Billie Jean King Cup women's team tennis competition held in San Marino. Iceland, ranked 113th globally, defeated Kosovo, ranked 87th, with a score of 2-1. Anna Soffía Grönholm secured the first singles match with a decisive win, while Bryndís Rósa Armesto Nuevo played the longest singles match in Icelandic tennis history, lasting three hours and four minutes. The doubles match was won by Anna Soffía and Sofia Sóley Jónasdóttir, securing Iceland's second victory.

Ísland vann sögulegan sigur gegn Kósovó í tennis á Billie Jean King Cup, landsliðakeppni kvenna, þegar liðin mættust í San Marínó.

Fyrir mótið var Kósovó í 87. sæti heimslistans en Ísland í 113. sæti, sem gerir 2-1 sigur Íslands að þeim fræknasta í sögu kvennalandsliðsins, samkvæmt tilkynningu tennissambandsins.

Liðin mættust í 3. deild Evrópu þar sem Anna Soffía Grönholm byrjaði á að vinna Forta Morina með afar öruggum hætti, 6-1 og 6-0. Anna Soffía setti 60% af fyrstu uppgjöfum sínum inn, vann 74% stiga á fyrstu uppgjöf og alls 59 stig gegn 35 hjá andstæðingi sínum. Hún nýtti einnig sjö af fimmtán brotfærum sínum og lagði þannig grunninn að íslenska sigrinum.

Lengsti leikur í sögu landsliðsins

Bryndís Rósa Armesto Nuevo lék svo seinni einliðaleikinn og fer hann í sögubækurnar sem lengsti einliðaleikur íslenskrar tenniskonu í landsliðsverkefni, því hann stóð yfir í 3 klukkustundir og 4 mínútur.

Bryndís Rósa varð að lokum að játa sig sigraða; 4-6, 6-3, 7-6, eftir að hafa fengið samtals 103 stig gegn 104 í leik þar sem staðan sveiflaðist fram og til baka.

Úrslitin réðust því í tvíliðaleiknum þar sem þær Anna Soffía og Sofia Sóley Jónasdóttir sameinuðu krafta sína gegn Altea Hajrizi og Aja Broqi. Íslenska parið vann þar, 6-3 og 6-3. Þær unnu 58 stig gegn 41 hjá andstæðingunum, voru með 62% fyrstu uppgjöf og nýttu sex af níu brotfærum sínum.

Sigurinn tryggði Íslandi annað sætið í riðlinum og einn eftirminnilegasta sigur í sögu íslensks kvennatennis. Liðið mun nú spila um 5.-8. sæti mótsins.

Karlalandsliðið keppir í 4. deild Evrópu í Davis Cup í Armeníu og tapaði þar naumlega fyrir heimamönnum, 2-1. Ísland hefur unnið tvo leiki en tapað einum og á nú eftir leiki við Möltu í dag og Andorra á morgun. Sigur gegn Möltu kæmi Íslandi í baráttu um annað af tveimur efstu sætunum og gæti gert lokaleikinn við Andorra að hreinum úrslitaleik um sæti í 3. deild Evrópu.

Read the full article at Vísir
Source document: Icelandic Tennis Association Announcement

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
Win their best victory since the beginning

Iceland won a historic victory against Kosovo in the Billie Jean King Cup women's team tennis competition held in San Marino. Iceland, ranked 113th globally, defeated Kosovo, ranked 87th, with a score of 2-1. Anna Soffía Grönholm secured the first singles match with a decisive win, while Bryndís Rósa Armesto Nuevo played the longest singles match in Icelandic tennis history, lasting three hours and four minutes. The doubles match was won by Anna Soffía and Sofia Sóley Jónasdóttir, securing Iceland's second victory.

Bias read (Center): The article reports on a sports event without any political commentary, framing, or biased language. It focuses solely on the results and performance of the Icelandic team in an international tennis competition.

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.