Bilun í hreyfli kom upp í flugi hollenska flugfélagsins KLM frá Bergen í Noregi til Amsterdam í Hollandi um hádegisbil í dag og lenti vélin fyrir afli eins hreyfils í Billund í Danmörku en engan sakaði.
AFP
Farþegar með flugi hollenska flugfélagsins KLM frá Bergen í Noregi til Amsterdam í Hollandi urðu felmtri slegnir skömmu eftir flugtak laust fyrir klukkan 12 í dag að norskum tíma þegar tveir háir hvellir heyrðust frá öðrum hreyfli Boeing 737-800-vélarinnar og reykur og brunalykt bárust inn í farþegarýmið.
Var vélinni umsvifalaust snúið til Billund í Danmörku þar sem hún lenti fyrir vélarafli hins hreyfilsins en að sögn Arild von Feste, eins farþeganna um borð, sem ræddi við norska dagblaðið VG eftir lendinguna í Billund, greindi flugstjóri farþegum frá því að kviknað hefði aðvörunarljós í flugstjórnarklefa sem gaf til kynna lágan olíuþrýsting í hreyfli og eftir að hvellirnir kváðu við hefðu flugmenn drepið á hreyflinum.
Svartur reykur úr hreyflinum
„Flugstjórinn sagði okkur að vélarhlutar hefðu losnað í hreyflinum og valdið miklu tjóni á honum,“ sagði von Feste sem lýsti því að margir farþeganna hefðu fyllst ótta þegar þeir urðu varir við reyk í rýminu.
Johannes Ytrearne, sem einnig var í vélinni, segir frá því að tengdafaðir hans hafi setið þeim megin í vélinni sem sást til bilaða hreyfilsins og séð svartan reyk koma aftan úr honum sem ekki hafi litið vel út en þeir voru á leið til Ítalíu í vinnuerindum.
Var farþegum boðin áfallahjálp við komuna til Billund en Dan Prangsgaard upplýsingafulltrúi flugvallarins þar segir um öryggislendingu að ræða sem gengið hafi að óskum og vonir stæðu til að koma mætti farþegum áfram á áfangastað í Amsterdam er liði á daginn.
KLM hefur ekki svarað fyrirspurnum VG um atvikið.
VG
Bergensavisen
TV2 í Danmörku
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →