ON
← Back to feed
ISCulture6 days ago

This recipe is a favorite.

The article presents a recipe for Pad Thai, a popular dish in Thai cuisine. It describes the ingredients and preparation steps in detail, including the sauce, chicken, and garnishes. The recipe is described as simple and suitable for all.

Pad Thai skipar sérstakan sess í taílenskri matargerð.

Samsett mynd/Unsplash/Skjáskot Instagram

„Þetta er uppskrift sem er í miklu uppáhaldi þessa dagana,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir, uppskriftahönnuður hjá Döðlur og Smjör , um girnilegan Pad Thai-rétt sem hún deilir með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.

Pad Thai skipar sérstakan sess í taílenskri matargerð og hefur um áratugaskeið verið eitt þekktasta tákn hennar á alþjóðavettvangi. Með sínum einkennandi wok-ilmi, silkimjúkum hrísgrjónanúðlum og fullkomnu jafnvægi milli sætu, sýru, seltu og milds krydds sameinar rétturinn bæði götumatarhefð og fágaða matarmenningu.

Þessi uppskrift er einföld og getum við mælt með henni við alla.

Pad Thai

Sósa

80 ml sojasósa

3 msk. hlynsíróp

2 msk. fiskisósa

2 msk. hrísgrjóna/eplaedik

3 msk. sesamolía

1/2 tsk. pipar

1/2 tsk. chili

Aðferð

Öllu blandað saman í skál.

Kjúklingur

700 g kjúklingur

4 msk. hveiti

1 msk. smjör

4–5 hvítlauksrif

4 egg

Kóríander

Vorlaukur

Salthnetur

1/2-1 pakki hrísgrjónanúðlur

Aðferð

Veltið kjúklingnum upp úr hveiti og steikið á pönnu, bætið þá smjöri og hvítlauk saman við.

Blandið eggjunum á 1/2 pönnu og bætið við.

Sósunni blandað saman.

Sjóðið núðlur eftir leiðbeiningum og blandið þeim við kjúklinginn og veltið þeim saman við sósuna.

Skammtið á diska og dreifið kóríander og hnetum yfir ásamt vorlauk.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter6 days ago
This recipe is a favorite.

The article presents a recipe for Pad Thai, a popular dish in Thai cuisine. It describes the ingredients and preparation steps in detail, including the sauce, chicken, and garnishes. The recipe is described as simple and suitable for all.

Bias read (Center): The article is purely informational, presenting a recipe without any political commentary, bias, or framing that suggests a particular ideological stance.