Það er fátt betra en góð klúbbsamloka með ríkulegu áleggi, stökkri áferð og góðu meðlæti.
Ljósmynd/Aðend
„Góðar samlokur eru vanmetnar og mér finnst þær eiga skilið meiri athygli,“ segir Valgerður Gréta G. Gröndal. „Hamborgarar eru sannarlega góðir, en af hverju ekki að prófa almennilega veitingahúsasamloku næst þegar ykkur langar í eitthvað girnilegt?“
Klúbbsamlokan sem Valgerður útbýr er á þremur hæðum og afar girnileg. „Þær eru alls ekki flóknar en sjúklega góðar!“
Að hennar sögn passar bbq-majónes einstaklega vel með álegginu á samlokunni. „Það er sjúklega gott að dýfa frönskunum í það. Ég skil hreinlega ekki af hverju fólk velur kokteilsósu þegar það getur dýft í bbq-majó. Þið verðið bara að prófa.“
Klúbbsamloka með kjúklingi og beikoni
Þriggja hæða klúbbsamloka með safaríkum kjúklingi, stökku beikoni, avókadó og ljúffengu bbq-majó.
Ljósmynd/Aðsend
3 samlokubrauðsneiðar, hvítar
1 msk. majónes
1 kjúklingabringa elduð, eða afgangar af kjúklingi
4 beikonsneiðar
4 tómatsneiðar
Avókadó í sneiðum
Ferskt salat
Svartur pipar og sjávarsalt
Steikar franskar
BBQ majó
1 dl majónes
2 msk. Hickory BBQ-sósa
Aðferð
Byrjið á því að elda kjúklingabringuna eða notið afgangskjúkling. Steikið beikonið.
Hrærið saman majónesinu og bbq-sósunni.
Eldið franskarnar eftir smekk, ég setti þessar í airfryer og það kom mjög vel út.
Smyrjið aðra hliðina á þremur brauðsneiðum með majónesi og steikið á pönnu þar til brauðið er orðið stökkt og gyllt.
Setjið eina brauðsneið á disk og smyrjið með bbq-majó. Setjið salat, tómata, avókadó, beikon og kjúkling á brauðsneiðina og saltið og piprið aðeins yfir kjúklinginn. Setjið aðra brauðsneið ofan á, smyrjið bbq-majó og raðið áleggi aftur á eins og áður. Smyrjið þriðju brauðsneiðina með bbq-majó og lokið samlokunni.
Skerið horn í horn og berið fram með frönskum, bbq-majó og ísköldu léttöli.
Magnið miðast við eina þriggja hæða samloku.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →