ON
← Back to feed
ISPolitics2 days ago

Major items on the agenda of the last parliamentary session before adjournment

The article discusses the final session of Iceland's parliament before the summer recess, highlighting key legislative items being addressed. These include proposals to allow public universities to collect tuition fees from students outside the European Economic Area, support for independent media, and energy-related matters such as equalizing electricity rates for rural residents. The Samfylkingar party leader, Guðmundur Ari Sigurjónsson, comments on the progress made during the parliamentary session.

Upp er runninn síðasti dagur þingsins fyrir þingfrestun, það er að segja, ef ekkert óvænt gerist. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, kveðst sáttur við þingveturinn og segir enga þörf fyrir svokallaðan þingstubb síðsumars.

„Við erum að klára hérna fjöldann allan af málum, bæði þingmannamál en líka aðallega stjórnarmál. Við erum að enda með að klára rúmlega hundrað mál, stjórnarmál, eftir mjög góðan vetur, þingvetur.“

Á dagskrá eru atkvæðagreiðslur um að veita opinberum háskólum heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES og stuðningur við einkarekna fjölmiðla svo fátt eitt sé nefnt. Síðan eru mál sem snúa að orkumálum.

„Við erum annars vegar að klára mál sem snýr að því að jafna raforkureikning landsmanna. Það hefur verið mjög ójafnt hvað landsmenn eru að greiða háan raforkureikning á landsbyggðinni en við erum að stíga hérna stór skref í dag sem að jafnar raforkureikninginn. Þetta munar, við erum sko að tala um hundruð þúsunda fyrir til dæmis bara kúabændur á landsbyggðinni og tekur gildi strax núna fyrsta júlí. Við erum einnig að samþykkja nýja rammaáætlun þar sem við erum að fara í virkjanir, meðal annars á Vestfjörðum til að höggva svona á raforkuóöryggið þar.“

Stjórnarandstaðan fær þá eitthvað fyrir sinn snúð.

„Við höfum bara átt gott samstarf, þingflokksformennirnir, og í rauninni milli stjórnar og stjórnarandstöðu og í dag eru stjórnarandstöðuflokkarnir að flytja fjögur mál og ég held að á þremur þeirra séu sem sagt stjórnarþingmenn sem sagt með þeim að flytja málin.“

Guðmundur Ari segir enga þörf á svokölluðum þingstubbi síðsumars til að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það sé langeðlilegast að mati Guðmundar að umræðan eigi sér stað meðal þjóðarinnar.

„Við höfum nú fylgst með því, hvort sem það eru félagasamtök sem spretta upp eða í þjóðfélagsumræðunni, að sú umræða á langbest heima meðal þjóðarinnar og að þjóðin fái bara svigrúm til að taka upplýsta ákvörðun. Við þingmenn þurfum ekki að vera hérna að halda þingfundi til að taka þátt í þeirri umræðu. Við treystum þjóðinni til að taka þessa ákvörðun sjálf,“ sagði Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar.

Tengdar fréttir

Stefna á að ljúka þingi í dag

Þingfundur stóð fram til klukkan hálfellefu í gærkvöldi og annar fundur er á dagskrá klukkan hálfellefu fyrir hádegið og skal stefnt að því að ljúka þingi í dag fyrir sumarfrí.

19. júní 2026 07:50

Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt

Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur fram tillögu um að nítján manns verði veittur ríkisborgararéttur. Alls tók nefndin fyrir 166 umsóknir. Alþingi hefur heimild til að veita ríkisborgararétt með lögum og er tillagan tekin til atkvæðagreiðslu í lok þingvetrar.

18. júní 2026 18:48

„Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“

Þingforseti hvatti þingmenn til þess að vera á tánum í þingsal í dag í röð atkvæðagreiðslna. Til stendur að ljúka þingstörfum á morgun og þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verða jafnframt tekin til umræðu. Þingmaður Framsóknar vonar að þingsályktunartillaga um greiningu á jarðakaupum erlendra aðila nái í gegn.

18. júní 2026 14:00

Fleiri fréttir

Sjá meira

Read the full article at Vísir
Source document: Guðmundur Ari Sigurjónsson, Samfylkingarinnar þingflokksformaður

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
Major items on the agenda of the last parliamentary session before adjournment

The article discusses the final session of Iceland's parliament before the summer recess, highlighting key legislative items being addressed. These include proposals to allow public universities to collect tuition fees from students outside the European Economic Area, support for independent media, and energy-related matters such as equalizing electricity rates for rural residents. The Samfylkingar party leader, Guðmundur Ari Sigurjónsson, comments on the progress made during the parliamentary session.

Bias read (Center): The article provides a balanced overview of the legislative agenda without overtly favoring any particular political stance. It quotes statements from a party representative but does not present biased language or selective sourcing.

Official sources cited

  • government Guðmundur Ari Sigurjónsson, Samfylkingarinnar þingflokksformaður

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • governmentGuðmundur Ari Sigurjónsson, Samfylkingarinnar þingflokksformaður