Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG ritaði nýjan kafla í íþróttasögu Íslendinga þegar hann lék á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi í New York í gær. Hann er nú kominn af stað aftur til að ljúka fyrsta hringnum.
Gunnlaugur Árni náði ekki að ljúka fyrsta hringnum frekar en margir aðrir vegna tafa sem urðu á leik . Hann lék 14 holur og þurfti að vakna í nótt til að ljúka hringnum eldsnemma að staðartíma.
Mbl.is fylgist grannt með gangi mála og færir ykkur það helsta í beinni textalýsingu.
Söguleg en erfið frumraun
Gunnlaugur Árni lék holurnar 14 á samtals 9 höggum yfir pari og er jafn í 144. - 148. sæti en 155 kylfingar komust inn í mótið. Færri komast að en vilja þar sem mótið er eitt risamótanna fjögurra hjá körlunum í íþróttinni.
Gunnlaugur Árni byrjaði ágætlega og var einn yfir eftir fyrstu þrjár holurnar. Hann fékk hins vegar slæman skell á 6. holunni og lék hana á 8 höggum en sjötta er par 4 hola. Sló hann teighöggið út fyrir vallarmörk og þurfti þá að leika þriðja höggi af teig. Teighöggin voru vandamálið í dag hjá áhugamanninum unga en hann hitti fáar brautir af teig. Hann lauk þó hringnum á góðum nótum þegar hann fékk góðan fugl á 14. holunni.
Gunnlaugur Árni er fyrsti Íslendingurinn sem leikur á Opna bandaríska í karlaflokki. Áður höfðu þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir náð því í kvennaflokki. Ólafía Þórunn er í sérflokki hjá íslenskum kylfingum hvað það varðar að hún náði að leika á öllum risamótunum fjórum þegar hún var atvinnumaður.
Haraldur Franklín Magnús var eini íslenski karlinn sem leikið hafði á risamóti þar til í dag en hann lék á The Open í Carnoustie í Skotlandi árið 2018. Eini Íslendingurinn sem leikið hefur á PGA-móti í Bandaríkjunum er Ólafur Loftsson sem vann sig inn í Wyndham championship árið 2011.
Lýsing uppfærist sjálfkrafa
Allar lýsingar í beinni
Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska meistaramótinu - 1. dagur
Opna lýsingu
kl. 25:04
Textalýsing
Næsta hola 16. holan er par 5. Hún er mjög löng svona miðað við það sem hinn almenni kylfingur er vanalega að fást við. Brautin er tæplega 600 metrar.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →3 reports
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago Live: Gunnlaug year completing the first roundGunnlaugur Árni Sveinsson, a golfer from Iceland, participated in the Open Championship in New York. He did not complete the first round due to a penalty incurred during play. The article details his performance, including his score and challenges faced during the match. It also notes that Gunnlaugur Árni is the first Icelandic man to compete in the Open Championship, while two other Icelandic women have previously done so in the women's category.
Bias read (Center): The article provides a factual account of Gunnlaugur Árni's participation in the golf tournament without any apparent ideological framing or biased language. It focuses on the event itself and does not take a stance on political issues.
VísirIndependentCenter2 days ago Winner of the U.S. OpenGunnlaugur Árni is competing at the U.S. Open golf tournament. He began his play on the second day of the event after delays in the first round. This marks a new chapter in Icelandic golf history, as Gunnlaugur Árni is the first Icelandic golfer to compete in the men's category at this prestigious tournament. The article provides details about his performance so far and mentions that there is potential for improvement in today's play.
Bias read (Center): The article focuses on sports coverage with no political commentary, framing, or bias. It reports objectively on Gunnlaugur Árni's participation and performance at the U.S. Open without taking a stance or using biased language.
VísirIndependentCenter2 days ago See Gunn-laug Arna's putt on the fourth holeThe Icelandic golfer Gunnlaugur Árni Sveinsson has played his first four holes at the Open Championship in the United States. He is participating in the prestigious Shinnecock Hills Golf Club in New York, marking him as the first Icelandic male golfer to compete in this major tournament. The article mentions that Gunnlaugur was born two hours later than originally scheduled due to traffic delays earlier in the day. It also notes that he made a putt on the fourth hole but failed to complete it, resulting in a missed opportunity.
Bias read (Center): The article provides factual information about an athlete's participation in a sports event without any political commentary, bias, or framing that suggests a particular ideological stance. The content focuses solely on the sporting achievement and logistical details related to the event.