ON
← Back to feed
ISSports2 days ago

I have full faith in the team.

Mollee Swift, captain and leader of Þróttur, expressed satisfaction after her team's 1-0 victory against Viking in the eight-team final of the Milk Cup women's tournament at Laugardalur Stadium on Saturday evening. She acknowledged Viking's strong performance but was proud of how Þróttur handled the challenge. The winning goal was scored by María Eva Eyjólfsdóttir in the 85th minute. Mollee stated she wasn't stressed during the final minutes, emphasizing the strength of her team's defense, midfield, and attack. Þróttur has reached the final for the fourth time in the last six years but has yet

Kolbeinn Kristinsson skrifar

18. júní 2026 19:24

Þróttur er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir 1-0 sigur á Víkingi í Reykjavíkurslag á AVIS-vellinum í Laugardalnum í kvöld.

Það var María Eva Eyjólfsdóttir sem reyndist hetja Þróttar þegar hún skoraði sigurmarkið á 85. mínútu eftir barning í vítateignum í kjölfar hornspyrnu og tryggði heimakonum sæti í undanúrslitum.

Kvennalið Þróttar er komið í undanúrslit bikarsins þriðja árið í röð. Vísir/Hulda Margrét

Skipulögð lið og hart barist

Fyrri hálfleikur var jafn og baráttumikill þar sem bæði lið voru vel skipulögð frá fyrstu mínútu. Það var ljóst að hvorugt liðið ætlaði að gefa neitt eftir í þessum Reykjavíkurslag þar sem sæti í undanúrslitum var undir.

Marktækifærin létu þó endrum og eins sjá sig á báðum endum vallarins, án þess að leikurinn opnaðist verulega. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan enn markalaus og allt galopið fyrir síðari hálfleikinn.

María Eva Eyjólfsdóttir kemur hér boltanum í markið. Vísir/Hulda Margrét

María Eva braut ísinn undir lokin

Leikurinn var áfram í járnum eftir hlé og spennan jókst eftir því sem leið á síðari hálfleikinn. Það stefndi allt í dramatískar lokamínútur áður en Þróttur fann loks leiðina í markið.

Á 85. mínútu barst boltinn aftur inn á teig Víkings eftir hornspyrnu. Þar tók við mikill darraðadans og klafs áður en María Eva Eyjólfsdóttir náði að koma boltanum í netið og brjóta ísinn fyrir Þrótt.

Markið reyndist það eina í leiknum og Þróttur fagnaði að lokum 1-0 sigri. Heimakonur halda því áfram för sinni í Mjólkurbikarnum á meðan Víkingar eru úr leik.

Atvik leiksins

Markið hjá Maríu Evu sem braut ísinn. Biðin var löng eftir marki í þessum mikla baráttuleik.

Stjörnur og skúrkar

Hjá Víkingi voru Bergþóra Sól og Jasmín Erla öflugar sem og Sigurborg í markinu með mikilvægar vörslur á köflum.

María Eva Eyjólfsdóttir var öflug og skoraði sigurmarkið dýrmæta og skýtur Þrótturum í undanúrslitin. Mollee í markinu var einnig traust og gerði vel í þessum leik ásamt Jelenu í vörninni.

Sóknarleikur beggja liða var ekki upp á margar loðnur í þessum leik. Mögulega tók mikilvægi leiksins og stress yfirhöndina.

Dómgæslan

ÞÞÞ og hans teymi leystu verkefnið ágætlega af hendi í kvöld. Stóru augnablikin afgreidd af yfirvegun og eftir bókinni, að minnsta kosti séð úr fjölmiðlastúkunni. Heilt yfir traust frammistaða hjá dómarateyminu. Einkunn: 8,0.

Stemning og umgjörð

Umgjörðin á Avis-vellinum var flott og veðrið í Laugardalnum gott venju samkvæmt. Það var ágætlega mætt í stúkuna og þó að margur vilji alltaf meira þá létu ungir stuðningsmenn Þróttar vel í sér heyra

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar. Vísir/Hulda Margrét

Jóhann: „Við gefumst aldrei upp“

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var eðlilega ánægður eftir 1-0 sigur liðsins á Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í kvöld. Þróttur er þar með kominn í undanúrslit bikarsins.

„Tilfinningin að vera kominn í undanúrslit er mjög góð. Að vinna þennan leik er mjög gott,“ sagði Jóhann eftir leik.

Hann sagði leikinn hafa verið dæmigerðan bikarleik þar sem baráttan var í fyrirrúmi.

„Þetta var kannski dæmigerður átta liða úrslitaleikur þar sem við sáum inn á milli góð gæði og inn á milli ekki góð gæði, og mikinn barning.“

„Ég er bara alveg hrikalega ánægður með mitt lið að hafa siglt þessu heim á endanum. Það var seigla og þrautseigja sem skóp þennan sigur. Bara geggjaðar stelpurnar og ég er ógeðslega ánægður með þær.“

Þróttur þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum en María Eva Eyjólfsdóttir skoraði eina mark leiksins á 85. mínútu.

„Þetta er bikar og það er bara spurt að því hverjir fara áfram og hverjir detta út. Þróttur var ofan á í dag,“ sagði Jóhann.

Hann var sérstaklega ánægður með karakterinn í liðinu, ekki síst í ljósi þess hvernig Víkingur byrjaði leikinn.

„Þetta sýnir alveg karakter. Miðað við hvernig Víkingarnir spiluðu fyrri hálfleikinn þá held ég að mjög mörg lið hefðu hreinlega gefið eftir, sérstaklega ef Víkingar hefðu skorað úr einhverjum af þessum áhlaupum.“

„En við erum bara með lið sem verst vel og við erum með markmann sem er besti markmaðurinn á landinu. Þetta hjálpar. Við vitum að við gefumst aldrei upp og við hættum aldrei. Þetta var bara skólabókardæmi í dag.“

Þróttur hefur verið reglulegur gestur í undanúrslitum bikarsins undanfarin ár en félagið hefur enn ekki orðið bikarmeistari.

„Það er tækifæri til þess í ár. Það er dauðafæri,“ sagði Jóhann að lokum.

Einar Guðnason þjálfari Víkinga. Vísir/Hulda Margrét

Einar: „Missir fókus eina sekúndu og þá refsa góð lið“

Einar Guðnason þjálfari Víkinga var svekktur eftir tapið í kvöld en Víkingar eru þar með úr leik í bikarnum.

„Þetta var virkilega súrt tap og óverðskuldað, finnst mér,“ sagði Einar eftir leik.

Víkingar fengu færi í leiknum og Einar var ánægður með margt í frammistöðu sinna leikmanna, sérstaklega varnarleikinn.

„Við fengum alveg færi, já já. Við spilum mjög góðan varnarleik en svo gleymum við okkur einu sinni á 85. mínútu og þá troða…

Read the full article at Vísir

2 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
I have full faith in the team.

Mollee Swift, captain and leader of Þróttur, expressed satisfaction after her team's 1-0 victory against Viking in the eight-team final of the Milk Cup women's tournament at Laugardalur Stadium on Saturday evening. She acknowledged Viking's strong performance but was proud of how Þróttur handled the challenge. The winning goal was scored by María Eva Eyjólfsdóttir in the 85th minute. Mollee stated she wasn't stressed during the final minutes, emphasizing the strength of her team's defense, midfield, and attack. Þróttur has reached the final for the fourth time in the last six years but has yet

Bias read (Center): The article focuses on a sports event with no political implications. It provides a straightforward account of the match outcome and quotes the athlete's comments without any apparent bias or ideological framing.

VísirIndependentCenter3 days ago
Maria Eva and the Trojans advance to the semifinals

Þróttur won 1-0 against Viking in the women's Milk Cup semi-final at the AVIS stadium in Laugardalur. The winning goal was scored by María Eva Eyjólfsdóttir in the 85th minute after a corner kick. This marks the third consecutive year that Þróttur has reached the final of the cup.

Bias read (Center): The article reports on a sports match with no political content or framing. It focuses solely on the game's events, player performance, and team progression without any ideological emphasis or biased language.