Þorsteinn Hjálmsson skrifar
12. júní 2026 22:42
„Drullu erfiður leikur. Myndi segja erfiðasti leikurinn á tímabilinu hingað til,“ sagði Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, eftir 1-2 sigur á ÍA í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoruðu gestirnir úr Víkinni tvö mörk um miðjan síðari hálfleikinn, en Skagamenn náðu inn sárabótamarki á lokamínútu leiksins. Aron Elís skoraði síðara mark Víkings með skalla, stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
„Gott að koma inn á strax í horn og skalla hann inn, koma sér strax inn í leikinn.“
Aron Elís talaði um að leikurinn hafi verið einn sá erfiðasti á tímabilinu hingað til. Aðspurður hvernig tilfinningin var inn í klefa í hálfleik eftir nokkuð bragðdaufan fyrri hálfleik, þá hafði Aron Elís þetta að segja.
„Mér leið ágætlega. Mér fannst strákarnir ofan á í baráttunni, sérstaklega þegar leið á seinni hálfleikinn. Vorum búnir að fá eitthvað af færum, en samt bara “fiffty-fiffty” og menn gerðu sér alveg grein fyrir því að við þyrftum að koma brjálaðir út í seinni.“
Víkingar hafa nú unnið ellefu leiki í röð í öllum keppnum og eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins og eru á toppnum í Bestu deildinni. Aðspurður út í framhaldið, þá var Aron Elís byrjaður að fókúsera á stærsta leik sumarsins hingað til, Víkingur-KR, sem fram fer á þriðjudaginn. Efstu tvö lið Bestu deildarinnar að mætast í leik sem nú þegar er orðið uppselt á.
„Nú er bara risa leikur gegn KR á þriðjudaginn og það þýðir ekkert að vera fagna þessu of mikið. Það er bara alvöru leikur á þriðjudaginn, uppselt og það verður geggjuð stemning í Víkinni.“
Aron Elís hefur verið að spila takmarkað á þessu tímabili eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum á síðasta tímabili. Hann segist sjálfur vera að komast í gang en vildi ekki fara frekar út í það af ótta við að jinxa það sem koma skal.
„Maður er bara að komast í gang eftir erfið meiðsli og ná snerpu og leikstandinu í gang. Ég ætla ekki að fara jinxa neitt,“ sagði Aron Elís brosandi að lokum.
Read the full article at Vísir →3 reports
VísirIndependentCenter8 days ago LARUS ORRY: Move into something else and lie all over the fieldLárus Orri, coach of ÍA, expressed disappointment after his team lost in the 8-team final of the Milk Cup to Viking. He described the loss as 'very painful' and noted that they were facing a team that can be said to be the strongest in the country today.
Bias read (Center): The article discusses a sports event and quotes a coach expressing disappointment over a loss. There is no political framing, bias, or ideological emphasis present in the content.
VísirIndependentCenter8 days ago Aaron Ellis: I'm not going to go anywhere else.Aron Elís Þrándarson, a player for Vikings, stated after a 1-2 victory against IA in the 8-team finals of the Milk Cup that the game was 'the most difficult match so far.'
Bias read (Center): The article discusses a sports event and quotes a player's opinion without any political framing or bias.
VísirIndependentCenter8 days ago The Adventures of Oscar and the Weeknd continues.Víkingur R. defeated ÍA 2-1 at Akranes in a football match, extending their winning streak to eleven games in all competitions. The victory secured Víkingur a place in the Milk Cup semi-finals, joining Blik and Mosfellsbær who also won their matches. Óskar Borgþórsson scored the first goal, while Aron Elís Þrándarson added a second in the 74th minute. Markús Páll Ellertsson scored a late goal for ÍA but could not change the outcome.
Bias read (Center): The article reports on a sports match with no political content or framing. It focuses solely on the game's events, player performances, and competition standings without any ideological or partisan emphasis.