ON
← Back to feed
ISCulture11 days ago

The Dress That Saves the Summer

The article discusses summer fashion, focusing on the versatility and style of light dresses suitable for various occasions. It highlights singer Olivia Dean's recent trip to Sicily, where she wore two dresses from the brand Réalisation Par. The piece describes characteristics of an ideal summer dress, emphasizing comfort, romantic appeal, and vintage aesthetics.

Þessi kjóll ætti að vera í flestum sumarfataskapum.

Samsett mynd

Söngkonan Olivia Dean hefur verið að spóka sig um í Suður-Evrópu, á Sikiley á Ítalíu, síðustu daga og tók réttu fötin með sér. Hún hefur verið að birta heillandi myndir af ferðalaginu sínu og erfitt að horfa fram hjá kjólunum sem hún klæðist. Þeir henta fullkomlega vel fyrir sumarið fram undan, hvort sem það verður hér á landi eða á suðrænni slóðum.

Það er eitthvað sem gerist þegar sólin lætur loksins sjá sig. Þeir sem alla jafna velja svart í fataskápnum finna skyndilega löngun til að klæðast léttum blómakjólum, með strátösku og sandölum.

En hvernig er hinn fullkomni sumarkjóll? Hann þarf að geta verið fjölnota og það verður að geta verið hægt að klæðast honum í brúðkaupi bestu vina og í löngum hádegisverði við Miðjarðarhafið. En kjóll sem lítur vel út á ströndinni og hentar alls ekki annars staðar verður lítið notaður. Þar liggur styrkur hins sívinsæla blómakjóls, oft kallaður te-kjóllinn, sem getur fylgt eiganda sínum frá kaffihúsi til grillveislu, úr borgarferð og beint í brúðkaup. Það sem einkennir te-kjólinn er það að hann er léttur, rómantískur og með vintage-áhrifum.

Meg-kjóllinn frá Réalisation Par.

Olivia Dean klæddist tveimur kjólum frá merkinu í sömu ferðinni.

Skjáskot/Instagram

Einfaldir og góðir

Kjólarnir sem Dean klæðist eru hinir fullkomnu sumarkjólar, myndu sumir segja. Þeir eru frá ástralska merkinu Réalisation Par, sem hefur undanfarin ár „átt“ sumarkjólamarkaðinn hjá áhrifavöldum og stórstjörnum. Kjólar merkisins einkennast af léttum efnum, blómamynstrum eða dýramynstrum og klassískum sniðum sem virka jafnt í afslöppuðum aðstæðum sem við formlegri tilefni.

Aðdráttarafl slíkra kjóla felst einmitt í einfaldleikanum. Þegar hitinn er kominn í hámark vill fæst fólk eyða miklum tíma í að skipuleggja fataval eða bera með sér aukafatnað. Góður sumarkjóll þarf að vera flík sem hægt er að grípa í án umhugsunar og vita að hún virki við flest tækifæri.

Þessi nálgun að klæðaburði hefur orðið sífellt vinsælli á síðustu árum. Í stað þess að byggja upp fataskáp sem samanstendur af fjölmörgum sérhæfðum flíkum velja margir nú fáar en vandaðar flíkur sem nýtast við ólíkar aðstæður. Blómakjóllinn er gott dæmi um slíka fjárfestingu; hann getur verið jafn viðeigandi á sólríkum svölum á Sikiley og í íslensku sumarbrúðkaupi þar sem veðrið leikur ekki endilega við gesti.

The Skye frá Réalisation Par.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter11 days ago
The Dress That Saves the Summer

The article discusses summer fashion, focusing on the versatility and style of light dresses suitable for various occasions. It highlights singer Olivia Dean's recent trip to Sicily, where she wore two dresses from the brand Réalisation Par. The piece describes characteristics of an ideal summer dress, emphasizing comfort, romantic appeal, and vintage aesthetics.

Bias read (Center): The article focuses on fashion and personal style, with no political content or framing. It provides factual information about a celebrity's clothing choices and general advice on summer dressing without taking a stance or showing bias.