Eva Laufey Kjaran deilir með lesendum uppskrift að ljúffengum vöfflum fyrir 17. júní.
Ljósmynd/Aðend
Á 17. júní skipa vöfflur sérstakan sess á kaffiborðum landsmanna. Fyrir marga eru þær ómissandi hluti af hátíðarhöldunum og fátt sem kallar jafn sterkt fram ilm, hlýju og heimilislega stemningu og nýbakaðar vöfflur bornar fram með góðu meðlæti. Þegar veisluborðið hefur verið hlaðið kræsingum eru vöfflurnar gjarnan settar síðastar fram, en hverfa oftar en ekki fyrst af borðinu.
Saga vöfflunnar er bæði löng og forvitnileg. Rekja má uppruna hennar allt aftur til Forn-Grikkja, þar sem bakaðar voru kökur á milli tveggja málmplatna og þær nefndar obelios . Síðar þróuðust vöfflur áfram í Vestur-Evrópu og þaðan á orðið vaffla rætur sínar að rekja, meðal annars til hollenska orðsins wafel .
Belgískar vöfflur eru vinsælar
Hér á landi hafa vöfflur um langt árabil verið tengdar bæði hversdagslegum notalegheitum og veislulegum tilefnum. Þær hafa því löngu unnið sér sess sem eitt af ástsælasta bakkelsi þjóðarinnar. Þegar belgísku vöfflurnar komu svo enn sterkari inn í matarflóruna heilluðust margir af þeim á augabragði, enda eru þær bæði djúsí, gylltar og einstaklega freistandi.
Þar sem 17. júní er á morgun deilum við hér dásamlegri uppskrift að belgískum vöfflum frá Evu Laufeyju Kjaran. Um er að ræða skothelda uppskrift sem mun slá í gegn, þar sem vöfflurnar eru bornar fram með súkkulaði og ferskum jarðarberjum, samsetning sem hæfir hátíðisdeginum einstaklega vel.
Njótið vel!
Belgískar vöfflur með súkkulaði og jarðarberjum
Vöfflurnar eru bornar fram með súkkulaði og ferskum jarðarberjum, samsetning sem hæfir hátíðisdeginum einstaklega vel.
Ljósmynd/Aðsend
Fyrir um 10 vöfflur (auðvelt að tvöfalda eða þrefalda)
2 bollar Kornax-hveiti (ca. 5 dl)
1 tsk. lyftiduft
2 egg
1 tsk. vanilla (extract eða sykur)
3 msk. sykur
1 bolli mjólk (2,5 dl)
1 bolli AB-mjólk (2,5 dl)
3 msk. ljós olía
Smjör
Aðferð
Blandið þurrefnum saman í skál.
Pískið tvö egg, hellið mjólkinni, olíunni og ab-mjólkinni saman við og blandið við þurrefnin.
Blandið öllu vel saman og hitið vöfflujárnið, smyrjið járnið með smjöri og bakið vöfflurnar þar til þær eru gullinbrúnar.
Berið vöfflurnar strax fram. Þær eru gómsætar með súkkulaði og jarðarberjum. Það er líka ótrúlega gott að rista nokkrar pekanhnetur og útbúa einfalda karamellusósu með. Í raun má bera vöfflurnar fram með öllu því góðgæti sem ykkur lystir.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →