ON
← Back to feed
ISPolitics3 days ago

Is it time for a new Nordic leadership role?

The article discusses Iceland's future role on the global stage, emphasizing the need for Nordic countries to take a more prominent role in international cooperation on issues such as climate change, innovation, sustainability, and security. It highlights the unique position of the Nordic nations, with their strong institutions, high education levels, and values rooted in democracy, science, human rights, and sustainable development. The author argues that these shared foundations are not universally present in today's global society, which faces increasing political polarization, distrust,民族民

Haukur Logi Jóhannsson skrifar

18. júní 2026 13:31

Umræða um framtíð Íslands á alþjóðavettvangi hefur um langt skeið einkennst af því hvernig við staðsetjum okkur gagnvart stærri valdablokkum. Hvort sem rætt er um Evrópusambandið, Atlantshafsbandalagið eða samskipti við Bandaríkin snýst umræðan gjarnan um tengsl Íslands við stærri og öflugri heildir. Minni athygli hefur hins vegar verið beint að þeirri spurningu hvort Norðurlöndin sjálf geti orðið eitt áhrifamesta samstarfssvæði heims á sviði viðskipta, sjálfbærni, loftslagsmála, nýsköpunar og öryggis á komandi áratugum.

Þetta er ekki aðeins fræðileg umræða. Loftslagsbreytingar, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni, aukin samkeppni um náttúruauðlindir, tæknibreytingar og breytt öryggisumhverfi kalla á nýjar leiðir til samstarfs. Á sama tíma standa Norðurlöndin í einstakri stöðu til að svara þessum áskorunum. Samanlagt búa rúmlega 28 milljónir manna á Norðurlöndum og hagkerfi svæðisins eru meðal þeirra samkeppnishæfustu í heimi. Traust til stofnana er hátt, menntunarstig mikið og samfélögin byggja á gildum sem fela í sér virðingu fyrir lýðræði, vísindum, mannréttindum og sjálfbærri þróun.

Þessi sameiginlegi grunnur er ekki sjálfgefinn í alþjóðasamfélaginu. Í heimi þar sem pólitísk skautun, vantraust og þjóðernispopúlismi hafa aukist á undanförnum árum standa Norðurlöndin enn fyrir þeirri hugmynd að samfélagsleg velmegun, efnahagsleg samkeppnishæfni og vernd umhverfisins geti farið saman. Það eitt og sér veitir svæðinu sérstakt vægi.

Þegar horft er til loftslagsmála kemur þessi sérstaða skýrt í ljós. Norðurlöndin hafa áratugum saman verið meðal framsæknustu ríkja heims í þróun lausna sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við orkuskipti. Danmörk hefur verið leiðandi í uppbyggingu vindorku. Noregur hefur þróað umfangsmikla þekkingu á kolefnisföngun og -geymslu. Svíþjóð hefur markað sér sérstöðu í þróun kolefnissnauðs iðnaðar og framleiðslu á grænu stáli. Finnland hefur verið í fararbroddi á sviði hringrásarhagkerfis og sjálfbærrar auðlindanýtingar. Ísland býr yfir einstökum möguleikum á sviði jarðhita, endurnýjanlegrar orku og nýrrar tækni til kolefnisbindingar. Þetta eru bara nokkur svið þar sem norðurlöndin eru í fremstu röð. Þau eru mun fleiri.

Saman mynda þessi styrkleikar heild sem fá önnur svæði heims geta jafnast á við. Ef Norðurlöndin samræma stefnu sína enn frekar gætu þau orðið eins konar tilraunastofa fyrir sjálfbært samfélag framtíðarinnar þar sem nýjar lausnir eru þróaðar, prófaðar og innleiddar áður en þær breiðast út á alþjóðavettvangi.

Loftslagsmálin eru þó aðeins hluti af stærri mynd. Á næstu árum mun vernd líffræðilegrar fjölbreytni verða ekki síður mikilvæg en kolefnishlutleysi. Norðurlöndin bera sameiginlega ábyrgð á víðfeðmum skógum, hafsvæðum og vistkerfum sem hafa alþjóðlegt gildi. Skógabelti Finnlands og Svíþjóðar gegna lykilhlutverki í kolefnisbindingu og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Hafsvæðin í Norður-Atlantshafi eru meðal mikilvægustu fiskimiða heims. Norðurheimskautssvæðið er eitt viðkvæmasta svæði jarðar gagnvart loftslagsbreytingum. Ísland hefur þar sérstaka stöðu sem brú milli Evrópu og norðurslóða.

Þessi sameiginlegu náttúruverðmæti kalla á sameiginlega sýn. Þau kalla einnig á sameiginleg verkfæri. Þar kemur staðlastarf inn í myndina.

Staðlar eru sjaldan áberandi í opinberri umræðu en þeir eru engu að síður meðal mikilvægustu innviða nútímasamfélaga. Þeir skapa sameiginlegt tungumál milli ríkja, atvinnugreina og markaða. Þeir gera fyrirtækjum kleift að starfa yfir landamæri, auðvelda nýsköpun og skapa traust í viðskiptum og stjórnsýslu. Í auknum mæli eru staðlar einnig lykilverkfæri í loftslags- og sjálfbærnimálum. Þegar fyrirtæki mæla kolefnisspor sitt, þegar sveitarfélög vinna að loftslagsmarkmiðum eða þegar fjárfestar meta sjálfbærni verkefna eru staðlar oft grundvöllurinn sem tryggir að upplýsingar séu áreiðanlegar og samanburðarhæfar.

Þess vegna er athyglisvert að staðlasamtök Norðurlandanna hafa nú ákveðið að blása nýju lífi í norrænt staðlasamstarf. INSTA-samstarfið á sér langa sögu, en líkt og mörg eldri samstarfsform hefur það að nokkru leyti legið í lægð undanfarinn áratug eða svo. Það breytir þó ekki því að hugmyndin að baki INSTA er jafn mikilvæg og áður, jafnvel mikilvægari: að Norðurlöndin geti sameinað þekkingu sína, mótað sameiginlegar lausnir og haft meiri áhrif á þróun staðla en hvert land eitt og sér.

Nú þegar græn og stafræn umbreyting samfélagsins er orðin eitt stærsta verkefni samtímans skapast nýtt tilefni til að endurvekja þetta samstarf af krafti. Sameiginleg norræn nálgun í staðlamálum gæti styrkt samheldni Norðurlandanna, aukið slagkraft þeirra í evrópsku og alþjóðlegu staðlastarfi og tryggt að norræn gildi eins og gagnsæi, traust, sjálfbærni, öryggi og samfélagsleg ábyrgð, endurspeglist betur í þeim viðmiðum sem móta framtíðarmarkaði.

Þetta skiptir máli vegna þess að framtíðarsamkeppni þjóða mun ekki eingöngu ráðast af því hver framleiðir mest eða hver hefur stærsta m…

Read the full article at Vísir
Source document: Nordic countries' collective strengths

1 reports

VísirIndependentCenter3 days ago
Is it time for a new Nordic leadership role?

The article discusses Iceland's future role on the global stage, emphasizing the need for Nordic countries to take a more prominent role in international cooperation on issues such as climate change, innovation, sustainability, and security. It highlights the unique position of the Nordic nations, with their strong institutions, high education levels, and values rooted in democracy, science, human rights, and sustainable development. The author argues that these shared foundations are not universally present in today's global society, which faces increasing political polarization, distrust,民族民

Bias read (Center): The article presents a balanced discussion on the potential for Nordic countries to play a leading role in global affairs without taking an overtly ideological stance. It focuses on shared values and challenges rather than advocating for specific policies or criticizing any particular political side

Official sources cited

  • data Nordic countries' collective strengths

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • dataNordic countries' collective strengths