Árni Gísli Magnússon skrifar
15. júní 2026 22:18
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með stigin þrjú sem hann sótti ásamt lærisveinum sínum norður til Akureyrar gegn KA í kvöld. Lokatölur 4-3 fyrir Fram í stórskemmtilegum leik.
Rosalegum leik lokið, ertu búinn að ná þér niður?
„Já já, ég var þokkalega rólegur allan leikinn. Þetta var frábær leikur til að horfa á skilurðu, þetta voru engin brjálæðisleg gæði en fyrri hálfleikur var að mínu mati bara eins og æfingaleikur; 3-2, mikið af mistökum, færi á báða bóga, dálítið opið, hitinn var að stríða mönnum held ég. Mér fannst við orkulitlir þó svo við höfum skorað þrjú mörk í fyrri hálfleik þá höfum við oft verið duglegri að hlaupa og gera okkar hluti en það kom niður á báðum liðum en þetta var dálítið skrítinn fyrri hálfleikur fannst mér.“
Fram lyfti boltanum hátt og langt og oftar en ekki í millisvæðið svokallaða milli varnar og miðju þar sem sprækir Framarar keyrðu á vörn KA með góður árangri.
„Já ég meina, það var kannski ekkert, við teiknuðum upp eina litla sóknarfærslu bara rétt fyrir leik og hún virkaði bara svona svakalega vel því þeir voru að reyna pressa okkur og setja hann upp í stóru mennina okkar. Atli (Þór Jónasson) svona tarfaðist í þeim og hvort sem honum tókst að skila honum til baka til okkar manna eða Vuk (Oskar Dimitrijevic) hirti upp seinni bolta eða miðjumennirnir þá virtist allt bara vera opið í gegn og við eigum fullt af frábærum skyndisóknum og það er hægt að framkvæma þær með löngum boltum, það þarf ekki alltaf að spila í gegnum allt og vera rosalega flott, en þá er einfaldasta og besta leiðin leið A og vinna seinni boltann. Vera með menn í þeim svæðum sem maður heldur og telur að boltinn muni detta og á sama tíma að hlaupa í gegnum vörnina þannig sköpum fullt af færum í fyrri hálfleik. Fullt af sénsum og opnunum en mér fannst bara völlurinn þorna ofboðslega fljótt upp og varð þurr og kom niður á báðum liðum í þeirra leik“.
„Í seinni hálfleik er þetta svipað, við kannski komumst ekki eins oft upp en við skorum frábært mark eftir flotta sókn. Löndum þessi kannski með herkjum en ég er ósáttur við að við gefum þeim þriðja markið hérna eftir okkar hornspyrnu skilurðu.“
Rúnari fannst sínir menn gera leikinn óþarflega spennandi með því að KA skoraði þriðja markið undir lokin.
„Algjörlega, 4-2 og við erum í fínum séns að gera 5-2 en ég meina hornspyrna sem við reynum að senda boltann inn í og þeir með tvo frammi, tvo á móti tveimur, það var bara illa framkvæmt af okkar hálfu. Ég var að reyna koma skilaboðum inn á hvernig ég vildi að það yrði framkvæmt. Í staðinn er boltinn settur inn í og boltinn skallaður frá og við fáum mark á okkur þegar lítið er eftir, algjör óþarfi. Við hefðum getað landað þessu á þægilegri hátt svo hjartað okkar færi ekki að slá svona hratt.“
Lofar Víkingum í hástert ætlar að láta þá hafa fyrir því
Fram mætir Víkingi í næstu umferð í stórleik en Framarar eru í þriðja sæti með 23 stig, fimm stigum minna en Víkingur sem er á toppnum.
„Víkingar að mínu mati, ég er búinn að segja það í flest öllum viðtölum í sumar þegar maður er spurður út í þetta, að það er ekkert lið sem á roð í þá, þeir eru langbestir og búnir að vera það í allt sumar. Gerðu jafntefli í fyrstu umferð og búnir að vinna alla leiki síðan bæði í deild og bikar. Þeir eru lið sem halda leikjunum í jafnvægi. Ef einhver veitir þeim mótspyrnu í byrjun fyrstu 20 mínúturnar, fyrsta hálftímann, fyrri hálfleik eins og í bikarleiknum upp á Skaga núna og jafnvel langt inn í seinni hálfleik en svo draga þeir alltaf lengsta stráið. Þeir eru með það mikil gæði að þeir hafa það mikla trú á því sem þeir virðast vera gera að þeir ná alltaf inn mörkum þannig þú þarft að eiga topp leik á móti þeim, fullkominn leik varnarlega. Til að skora á hjá þeim þarftu að gera vel.
Víkingarnir hafa verið bestir til þessa í sumar vísir/Diego Þú hlýtur að trúa því að þið eigið roð í þá?
„Já engin spurning, við erum ekki í þessu til að fara í leiki og tapa þeim, við erum í þessu til að vinna fótboltaleiki og við erum að fara sækja á Víkingana í næstu umferð og ætlum ekkert að gera þeim neinn greiða. Við vitum það að þeir munu þrýsta okkur til baka og halda okkur niðri á einhverjum köflum en við þurfum líka að ógna þeim og þora að fara á þá, þora pressa þá inn á mill og reyna skapa einhverju hættu, því við ætlum ekki að leggjast niður og fara grenja og gefa þeim þrjú stig. Við ætlum að láta þá hafa fyrir því.“
Read the full article at Vísir →📄Source document: Tilkynning frá Fram
3 reports
VísirIndependentCenter2 days ago Alone with you For the next three yearsEinar Jónsson has extended his contract with Fram for the next three years. This was announced by the club. Einar has been working with the club for nearly three decades, with short breaks in between. He led Fram to the cup and Icelandic championship titles in recent seasons. Fram reached the quarterfinals in the men's league last season but lost 2-0 to FH in a play-off.
Bias read (Center): The article reports on a sports-related contract extension without any political commentary, framing, or bias. It focuses purely on the sporting achievements and career progression of Einar Jónsson at Fram football club.
Official sources cited
- organisation Tilkynning frá Fram
VísirIndependentCenter5 days ago Don't you bow down to the Vikings and go laughRúnar Kristinsson, coach of Fram, expressed satisfaction with his team's performance in a match against KA, where they won 4-3. He described the first half as a practice game with many mistakes but noted that the second half was more focused. The article highlights Fram's attacking play and mentions specific players' contributions.
Bias read (Center): The article focuses on a sports match and provides a straightforward account of the game and the coach's comments without any apparent political framing or bias.
VísirIndependentCenter6 days ago KA - Go north on a high flightFram has won five of their last six matches in the top division and are heading to KA in the 10th round.
Bias read (Center): The article discusses sports results without any political context or framing. The content is purely factual and does not exhibit any bias.