Í kjölfar slyss hóf töffarinn Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Bítilsins Paul McCartney, framleiðslu á No Bloat, frostþurrkuðu heilsufæði. No Bloat er vegan fæði sem hentar vel þeim sem kljást við meltingarvandamál. Vala Matt ræddi við Heather í nýjasta þætti Íslands í dag.
Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Bítilsins Paul McCartney, lenti í slysi og missti framan af öðrum fætinum. Í kjölfar aðgerðar fór hún að skoða það hvernig hollur matur getur hjálpað líkamanum að styrkjast. Svoleiðis byrjaði ævintýrið No Bloat, frostþurrkaður, náttúrulegur vegan matur án allra aukaefna.
Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni:
Heather er hérlendis á vegum Elínar Kristinar, eða Ellu Stínu, sem hefur svoleiðis slegið í gegn með sínum vegan vörum.
Ferlið segir Heather hafa byrjað þegar hún lá á spítala í fimm mánuði í kjölfar slyssins, þar sem hún braut mjaðmagrind, missti hluta fótar og höfuðkúpubrotnaði. Vinkona hennar hafi komið og ætlað að kenna henni hollara mataræði. Hún hafi kynnt hana fyrir grænkerafæði og Heather hafi verið opin fyrir því að prófa.
„Ég jafnaði mig á tveimur vikum. Þá var ekki aftur snúið,“ segir hún og bætir við: „Ég hef verið grænkeri síðan.“
Seinna var Heather í Kambódíu í góðgerðarheimsókn þegar hún var bitin af beinbrunaflugu og veiktist af Lyme-sjúkdómnum. Eftir það hafi hún ekki getað borðað grænkerafæðið án mikilla verkja og iðrabólgu (e. IBS). Þrátt fyrir að fara til læknis þar sem þurfti að fjarlægja botnlangann og gallblöðruna leið henni ekkert betur. „Mér fannst þetta galið svo ég rannsakaði meltinguna.“ segir hún.
Í þeirri vegferð áttaði hún sig á því að laukur og hvítlaukur væru sökudólgarnir. „Það er í öllu og ég dýrka hvítlauk og lauk,“ segri hún.
No Bloat-réttirnir henti fjölbreyttum hópi fólks
Hún segir það hafa verið mikla áskorun að láta hreinan mat bragðast vel. „Ég gerði það fyrir fólk með magavanda,“ segir hún. Hún sé með átta mismunandi No Bloat-rétti, hver innblásinn af matargerð mismunandi landa.
Fyrst hafi Heather selt 100 þúsund skammta og lagt fyrir könnun fyrir viðskiptavini. Niðurstöðurnar hafi sýnt að helmingur þeirra hafi keypt réttina vegna magavandræða en hinn helmingurinn vegna þess að þau ætluðu sér að léttast.
Hún segir réttina einnig henta fólki sem stundar mikla útivist, flugfreyjum og -þjónum og þeim sem hafi ekki mikinn tíma í eldamennsku.
Mikilvægt að hlusta á líkamann
Hún hafi misst fóstur fjórum sinnum og tvær utanlegsmeðgöngur áður en hún eignaðist dóttur sína. Læknar höfðu sagt henni að hún gæti ekki eignast börn en skyndilega varð hún ólétt og eignaðist dóttur sína fjórum vikum fyrir settan dag.
„Það er ástæða fyrir bólgunni. Líkaminn berst gegn einhverju,“ segir hún.
Paul McCartney, fyrrum eiginmaður hennar og barnsfaðir, hafi grínast með það að sennilega hafi það gerst vegna þess að hún hafi verið grænkeri í langan tíma.
Hetaher vill ekki ræða fyrrverandi eiginmann sinn eftir erfiðan skilnað þeirra hjóna. Hún segir þó McCartney vera grænmetisætu en ekki grænkera vegna þess að hann hafi ekki viljastyrkinn sem þurfi til.
„Maður þarf styrk til þess að hætta að borða ost, mjólk og egg,“ segir hún.
Read the full article at Vísir →3 reports
RÚV FréttirState / PublicCenter5 days ago Bonnie Tyler awakened from the dead but heavy holdBonnie Tyler has been awakened from a coma but remains in intensive care at a hospital in Faro, Portugal. Tyler was kept unconscious after an emergency procedure on her throat at the beginning of May. Doctors say they are confident she will recover fully. Tyler was planning a tour this summer to celebrate the 50th anniversary of her song 'Lost in France.' The tour has either been postponed or canceled, but hopes remain that she will recover in time for performances scheduled for autumn. Tyler is 74 years old and rose to fame in the 1980s with the release of the single 'Total Eclipse of a Heart
Bias read (Center): The article provides factual information about Bonnie Tyler's health status, medical treatment, and future plans without any apparent ideological or political framing.
VísirIndependentCenter5 days ago Bonnie Tyler awakened from the deadBonnie Tyler, an Icelandic singer, has been released from the hospital after being treated for a stroke in Portugal. She was rushed to a hospital in Faro at the beginning of May due to the stroke and was kept under observation to support her recovery. Her spokesperson stated that she is recovering well but still has a long road ahead. The British national broadcaster reported on the situation. Tyler, who is 75 years old, resides in Portugal and had to be hospitalized due to the stroke, where emergency procedures were performed. Her spokesperson said that her condition is improving and that the
Bias read (Center): The article discusses a health-related event involving a celebrity and does not present any political content or opinion. It provides factual information about Bonnie Tyler's medical treatment and recovery without any biased language or framing.
VísirIndependentCenter8 days ago There is a reason for the bulgeThe article discusses Heather Mills, former wife of Paul McCartney, who developed a vegan product called No Bloat after an accident that caused her significant injuries. The product is described as a frozen, natural vegan food without additives. The article mentions her recovery process and how she was introduced to plant-based foods by a friend. It also notes her experience with a leg injury in Cambodia and subsequent health challenges.
Bias read (Center): The article presents factual information about Heather Mills' personal experiences and the development of her product. There is no evident bias in language, sourcing, or emphasis. The content remains neutral and descriptive without overt ideological framing.