Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokksins segjast nokkuð bjartsýnir á að þingstörf klárist á morgun eins og stefnt er á. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokks, segir að mörg mál ríkisstjórnarinnar hafi komið vanbúin inn í þingið þennan þingvetur.
Nóg hefur verið að gera hjá þingmönnum í dag á lokaspretti þingsins en stefnt er að því að þingstörfum ljúki á morgun. Í morgun fór meðal annars fram atkvæðagreiðsla um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og eftir hádegi voru nýtt innviðafélag og greiðsla séreignarsparnaðar inn á höfuðstóla húsnæðislána meðal mála sem voru rædd.
Í kvöldfréttum á Sýn var rætt við Sigríði Á. Andersen, þingflokksformann Miðflokksins, og Ólaf Adolfsson, þingflokksformann Sjálfstæðisflokks, um þinglok og málin sem verða rædd á morgun.
Sigríður segir mál Miðflokksins um gildistíma ökuskírteina, frumvarp Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, fara fram í fyrramálið. Þar sé lagt til að fækka kröfum um endurnýjun ökuskírteina úr átján skiptum í fjögur, eins og núgildandi lög gera ráð fyrir. Hún segir þetta mál varða alla sem eru eldri en sjötíu ára. Þverpólitíska samstöðu segir Sigríður ríkja um málið og því bindur hún vonir við að það verði samþykkt í fyrramálið.
Þingmannamál Sjálfstæðisflokksins um stimpilgjöld er einnig á dagskrá morgundagsins. Ólafur segir stimpilgjöldin mikilvægt mál fyrir þá sem ætla að fjárfesta í íbúðarhúsnæði. Hann segist eiga von á mögulegri fyrirstöðu ríkisstjórnarinnar varðandi málið en vonar þó að það fari í gegn.
Sigríður segir á ýmsu hafa gengið þennan þingvetur og að mál ríkisstjórnarinnar hafi komið vanbúin inn í þingið sem hafi kallað á mikla vinnu í nefndum. Ekki sé algengt að breytingartillögur séu lagðar fram um mál í þriðju umræðu.
„Þetta ættu ríkisstjórnarflokkarnir og ráðherrarnir að hafa í huga þegar þeir koma með mál næsta vetur, að koma með þau aðeins betur búin þannig að það þurfi ekki að redda þessum málum inni í atkvæðagreiðslu á síðustu dögum þingsins.“
Aðspurð hvort að þeim þyki líklegt að þing hefji störf áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari fram segir Sigríður að mögulega verði tilefni til þess að ræða atriði sem kunna koma upp á í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Hægt sé að kalla saman utanríkismálanefnd hvenær sem er, óski fjórðungur nefndarmanna eftir því. „Ef það verður tilefni til þess verður það gert,“ segir hún.
Read the full article at Vísir →📄Source document: Sigríður Á. Andersen, Member of Parliament for the Center Party
3 reports
VísirIndependentCenter2 days ago Parliament's work to be completed tomorrowThe article discusses upcoming parliamentary sessions in Iceland, focusing on key issues such as housing packages, changes to driving license renewal requirements, and discussions around property taxes. Representatives from the Independence Party and the Center Party express optimism about the progress of these matters. The article mentions specific proposals, including reducing the frequency of driving license renewals from 12 to four times for those over 60 years old, and highlights ongoing debates on property tax reforms.
Bias read (Center): The article provides balanced coverage of political developments without overtly favoring any side. It reports on statements from both the Independence Party and the Center Party representatives, presenting their positions neutrally. There is no evident editorializing, loaded language, or one-sideds
Official sources cited
- government Sigríður Á. Andersen, Member of Parliament for the Center Party
- government Ólaf Adolfsson, Member of Parliament for the Independence Party
VísirIndependentCenter2 days ago Bjørnson to finish Parliament's work tomorrowThe article discusses the upcoming conclusion of parliamentary sessions in Iceland, focusing on key issues set to be addressed. Representatives from the Independence Party and the Center Party express optimism about the session ending as planned. Topics include housing package proposals by the government, discussions on reducing the renewal frequency of driving licenses from 12 to four times for those over 60, and debates on stamp duty affecting property investments.
Bias read (Center): The article provides balanced coverage of multiple political parties' positions without overtly favoring any side. It reports on policy proposals and statements from both the Independence Party and the Center Party without editorializing or using biased language.
Official sources cited
- government Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokks
- government Ólaf Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks
RÚV FréttirState / PublicLeft3 days ago Increase in government contribution to public housingThe Icelandic government has approved an increase in land taxes for private residential properties, raising the rate from 18% to up to 23% of the property's value. The change is part of a housing package aimed at enabling non-profit rental companies to build more homes. The new tax will take effect from November 2025. The ruling parties supported the proposal, while the Center Party opposed it. Members of the Progressive Party and Independence Party voted in favor. Guðrún Hafsteinsdóttir, leader of the Independence Party, stated that the housing market issue lies in lower growth rather than an
Bias read (Left): The article highlights opposition from the Center Party and quotes the Independence Party leader criticizing the government's approach, suggesting a focus on market growth over increased state spending. The framing emphasizes the expansion of non-profit housing and critiques the government’s policy,
Official sources cited
- government Ragnar Þór Ingólfsson
- government Guðrún Hafsteinsdóttir