Lánamarkaður hefur einkennst af aukinni ásókn heimila í óverðtryggð lán.
Morgunblaðið/Ómar
Auglýsingatími íbúða heldur áfram að lengjast en af þeim íbúðum sem auglýstar voru til sölu í byrjun júní, hafði tæplega fjórðungur verið á söluskrá í meira en tólf mánuði, samanborið við 16% á sama tíma í fyrra.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir júnímánuð, sem verður kynnt nánar á fundi stofnunarinnar í Borgartúni 21, á hádegi í dag.
Þá hefur helmingur óseldra nýrra íbúða verið á sölu í meira en 260 daga samanborið við 183 daga í júní í fyrra.
Þó nokkrum fjölda kaupsamninga hefur þó verið þinglýst, þó að almennt beri á fækkun í samanburði við sama tíma í fyrra. Fyrstu kaupendur hafa sömuleiðis aukið hlutdeild sína þrátt fyrir háan fjármögnunarkostnað en stofnunin telur að rýmkun lánþegaskilyrða fyrstu kaupenda og breytingar á reglum um hlutdeildarlán hafi haft þar áhrif.
Leiguverð stendur í stað
Samkvæmt skýrslunni má greina merki um minni eftirspurnarþrýsting á leigumarkaði og leiguverð heldur áfram að standa í stað að raunvirði líkt og það hefur gert undanfarið ár. Þá hafa færri nýir leigusamningar tekið gildi í hverjum mánuði í ár samanborið við sama tíma í fyrra þrátt fyrir að almenn skráningarskylda hafi tekið gildi um áramótin.
Fleiri leigusamningar féllu jafnframt úr gildi í nýliðnum maí samanborið við í maí í fyrra, en leigusamningar falla iðulega úr gildi í stórum stíl við lok skólaárs á vorin.
Aukin ásókn hefur verið meðal heimila í óverðtryggð íbúðalán hjá bönkum eftir að verðtryggð lán frá lífeyrissjóðunum höfðu verið allsráðandi í fyrra.
Bankarnir hafa lítið nýtt sér undanþáguheimildir frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls, en hærra hámarksveðsetningahlutfall hefur nýst fyrstu kaupendum.
Byggingarmarkaðurinn hefur verið rólegri það sem af er ári samanborið við undanfarin ár en færri nýjar íbúðir hafa orðið fullbúnar á fyrstu fimm mánuðum þessa árs samanborið við síðustu tvö ár. Hagtölur benda einnig til þess að íbúðafjárfesting hafi dregist saman í ár, auk þess sem starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fækkað lítillega.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →