Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Arnhildur Pálmadóttir við athöfnina í dag.
mbl.is/Anton Brink
„Þetta kom mjög mikið á óvart, ég verð að viðurkenna það, og þetta er alveg þvílíkur heiður. Það eru auðvitað ekki margir hönnuðir, hvað þá arkitektar, sem hafa fengið þessa viðurkenningu,“ segir Arnhildur Pálmadóttir sem hefur verið útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2026.
Um er að ræða heiðursviðurkenningu til einstaklings sem með sköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslenskri list, að þessu sinni byggingarlist.
Í fararbroddi nýrrar hugsunar
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri útnefndi borgarlistamanninn við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Þá gerði Hildur grein fyrir valinu á Arnhildi sem vakið hefur athygli „fyrir framsæknar hugmyndir sínar í arkitektúr hvað varðar sjálfbærni, nýtingu auðlinda og framtíð bygginariðnaðarins,“ eins og segir í fréttatilkynningu.
Við athöfnina fékk Arnhildur afhentann ágrafinn stein, heiðursskjal og verðlaunafé.
Hildur Björnsdóttir hrósaði Arnhildi fyrir framsækni sína í ræðu við athöfnina. „Arnhildur hefur um árabil verið í fararbroddi nýrrar hugsunar í byggingarlist og skipulagi og hafa verk hennar vakið verðskuldaða athygli bæði hérlendis og erlendis,“ sagði hún.
Vakið athygli út fyrir landsteinana
Arnhildur Pálmadóttir fæddist í Reykjavík 22. júlí 1972. Hún lauk arkitektanámi við Listaháskóla Íslands árið 2006 og framhaldsnámi við hinn virta arkitektaskóla IAAC (Institute for Advanced Architectur of Catalonia) í Barcelona. Árið 2018 stofnaði hún arkitektastofuna Sap arkitektar.
Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur 2026.
mbl.is/Anton Brink
Á undanförnum árum hefur hún látið til sín taka á sviði íslenskrar byggingarlistar og jafnframt vakið athygli út fyrir landsteinana. Árið 2024 hlaut hún Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs og ári seinna eða árið 2025 var hún sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr, en það var i fyrsta sinn sem Ísland tók þátt.
„Í Feneyjum setti Arnhildur fram djarfa framtíðarsýn með sýningunni Lavaforming sem fjallar um hvernig nýta mætti íslenskt hraun sem byggingarefni og umbreyta þannig náttúruafli sem oft er litið á sem ógn í verðmæta auðlind,“ segir einnig í fréttatilkynningu.
Í mars á þessu ári hlaut Arnhildur einnig hönnunarverðlaun frá New European Bauhaus, í flokki sem nefnist hringrásarsamfélagið, fyrir íbúðarkjarna að Háteigsvegi 59.
Ítarlegar er rætt við Arnhildi Pálmadóttur, nýjan borgarlistamann Reykjavíkur, í Morgunblaðinu á morgun.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →