ON
← Back to feed
ISPolitics5 days ago

The Council of the Social Housing Authority

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir has been appointed executive director of Félagsbústaða hf., according to an announcement. The decision was based on the assessment of the board of directors, which concluded that she meets the requirements of the job description with decisive effectiveness. She has worked since August 10th. Félagsbústaða manages and rents out approximately 3,200 units in Reykjavík. The previous executive director was Sigrún Árnadóttir. Þórdís Lóa served as a representative of Viðreisn in the city council for the last eight years and ran as a candidate for the L-list in the municipal选举

Björg Magnúsdóttir segist hafa slysast út í pólitík eftir slæma reynslu af mygluðum leikskólum borgarinnar. Það þurfi að hagræða í Reykjavík til að koma peningum úr kerfinu til fólksins. Hún horfir ekki til borgarstjórastólsins í framtíðinni né landspólitíkurinnar á Alþingi.

Sindri Sindrason kíkti í morgunkaffi til Bjargar Magnúsdóttur, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og borgarfulltrúa, í Íslandi í dag og ræddi þar við hana um leikskólamál, samgöngumál og það sem þarf að gera í borginni næstu fjögur árin.

Hefðirðu haldið fyrir fimm árum að þú værir á þessum stað?

„Guð minn almáttugur, nei. Ég var náttúrulega bara að kynna Söngvakeppnina og stjórna Kappsmálum á Rúv,“ segir Björg og bætir við: „Ég er alveg óvart í pólitík. Ég er búin að segja þessa sögu víða en þetta byrjaði með mygluðum leikskóla. Ég var að reyna að fá pláss, það gekk ekki nógu vel og ég hafði það sterklega á tilfinningunni að það væri hægt að gera hlutina öðruvísi og betur og það knúði mig áfram.“

„Hvenær þarftu mest á sveitarfélaginu að halda?“

Málefni fjölskyldunnar eigi að vera í forgangi í Reykjavík að mati Bjargar sem er ekki í Viðreisn út af Borgarlínunni eða Evrópumálunum.

„Ég er í Viðreisn því mér finnst þetta vera flokkur sem vel með peninga. Passar upp á peninga og passar upp á fólk. Ég fíla praktísku línuna í flokknum að gera hlutina eins hagkvæmt og við getum en passa upp á fólk, þessi skynsemistónn, frjálslyndi og mannréttindi, eitthvað sem ég tengi sterkt við,“ segir Björg.

Foreldrar ungra barna séu einn versti þrýstihópurinn því leikskólamálin séu þeim bara hugleikin akkúrat á meðan börnin eru á leikskólaaldri. Þetta fólk sé þó það sem þarf einna mest á þjónustu að halda.

„Hvenær þarftu mest á sveitarfélaginu að halda? Það er á þessum viðkvæma tíma þegar þú færð lítið barn í fangið, reyna að koma þér aftur út á vinnumarkaðinn og byrja þitt líf, stofna fjölskyldu og kaupa íbúð eða hús. Þá þarftu virkilega á þessari þjónustu að halda,“ segir Björg í viðtalinu sem má sjá í heild sinni hér að neðan.

Hvernig geturðu breytt þessu? Þú þarft að manna og það þarf að vera skóli til, hvernig er hægt að breyta þessu kerfi?

„Það sem þú getur byrjað á að gera og nýr meirihluti er að gera, er að setja þessi mál í forgang og fókus,“ segir Björg.

„Mönnunin er stóra púslið sem vantar í þetta. En svo er ég líka búin að tala við fullt, fullt af kennurum sem búa hérna í borginni en vilja ekki vinna hjá Reykjavíkurborg. Margir tala um lélegan húsakost, það er búið að vera mygla víða og það þýðir að þú sem kennari þarft að færa þig á milli. Svo er það þetta langhlaup að bæta starfsaðstæður kennara.“

Það kosti peninga sem séu ekki til staðar eins og stendur.

„Það sem við þurfum að gera, töluðum um í kosningabaráttunni og gerðum á fyrsta borgarstjórnarfundinum var að setja í gang hagræðingarhóp. Við viljum fá meira út úr kerfinu. Við áttum okkur alveg á því að það er ábyrgðarlaust að segja: „Meiri pening hingað og meiri pening þangað.“ Þú þarft þá að hagræða og einfalda kerfið á móti,“ segir Björg.

„Fyrir mér er þetta mjög skýrt, við viljum fá meiri pening út úr kerfinu til að geta sett út í hverfin, þá erum við að tala um leik- og grunnskóla og þessa íþróttaaðstöðu,“ segir hún

Hækkanir á gjöldum séu ekki í boði.

„Reykjavíkurborg er með allt í botni, það er ekki hægt að hækka útsvarið meira eða hækka gjaldskrárnar. Það er engin lausn á þessu. Við vitum það og erum að byrja þá vinnu að taka til í Ráðhúsinu.“

Ekki stökkpallur fyrir frekari frama

„Við erum með hundrað daga plan en það tekur meira en hundrað daga að fara í gegnum stjórnkerfið hjá Reykjavíkurborg í því skyni að hagræða og einfalda. Þannig við ætlum að gefa okkur tvö ár í það að ná betur utan um það,“ segir Björg.

Hún finni fyrir mikilli ábyrgð, taki stöðu sína alvarlega og langi til að vinna vel fyrir borgarbúa. Það sé oft verið að stoppa hana og hafi skoðun á aðgerðum borgarinnar.

Stóra verkefnið sé að hagræða kerfið í þágu borgarbúa.

Hvar verðurðu eftir fimm ár? Langar þig að verða borgarstjóri?

„Nei, mig langar það ekki. Ég veit alveg hvernig vinna það er,“ segir Björg og bætir við: „Mig langar að gera gagn, mig langar raunverulega að gera gagn og það er markmiðið mitt fyrir næstu fjögur ár. Ég hef aldrei verið með langtímaplan, hlutirnir og líf mitt hafa gerst.“

Þannig þú ert ekkert að horfa á landspólitíkina í framtíðinni?

„Alls ekki og það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall til að komast á þingið. Það er alls ekki þannig, ég hef raunverulega langmestan áhuga á sveitarstjórnmálunum,“ segir Björg sem ræddi ýmislegt annað við Sindra, þar á meðal samgöngumálin og fjölskyldulífið.

Read the full article at Vísir
Source document: Björg Magnúsdóttir

3 reports

VísirIndependentCenter5 days ago
Everyone's assuming I'm using this as a single-shot.

Björg Magnúsdóttir, a representative of the Reykjavík city council and member of the Viðreisn party, discusses her recent entry into politics following negative experiences with the city's playgrounds. She criticizes the current administration and emphasizes the need for financial reform in Reykjavík. She also highlights her focus on practical solutions within the Viðreisn party.

Bias read (Center): The article presents a balanced discussion between Björg Magnúsdóttir and Sindri Sindrason without overtly favoring one perspective. It includes direct quotes from both parties involved and does not exhibit biased language or selective sourcing.

Official sources cited

  • government Björg Magnúsdóttir
  • government Sindri Sindrason
RÚV FréttirState / PublicCenter6 days ago
The Council of the Social Housing Authority

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir has been appointed executive director of Félagsbústaða hf., according to an announcement. The decision was based on the assessment of the board of directors, which concluded that she meets the requirements of the job description with decisive effectiveness. She has worked since August 10th. Félagsbústaða manages and rents out approximately 3,200 units in Reykjavík. The previous executive director was Sigrún Árnadóttir. Þórdís Lóa served as a representative of Viðreisn in the city council for the last eight years and ran as a candidate for the L-list in the municipal选举

Bias read (Center): The article provides factual information about the appointment of Þórdís Lóa as executive director of Félagsbústaða, including her background and experience. It does not show clear bias in framing, word choice, emphasis, or sourcing.

Official sources cited

  • organisation Tilkynning frá Félagsbústaða
VísirIndependentCenter6 days ago
The Council of Ministers is chaired by the Director-General of the Social Housing

The board of directors of Félagsbústaða hf. has appointed Þórdís Lóa Þórhallsdóttir as the executive director of the company. This decision was based on an evaluation by the human resources committee, which concluded that she meets the requirements outlined in the job advertisement with decisive certainty. The press release highlights her extensive experience in management, policy-making, and operations within both public administration and the private sector. She has held key roles in Reykjavík City since 2018, including chair of the city council and head of the city administration. She also 

Bias read (Center): The article provides a factual summary of the appointment of Þórdís Lóa Þórhallsdóttir as the executive director of Félagsbústaða hf., highlighting her qualifications and experience without any apparent ideological framing or biased language.

Go to the primary sources (3)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • governmentBjörg Magnúsdóttir
  • governmentSindri Sindrason
  • organisationTilkynning frá Félagsbústaða