ON
← Back to feed
ISEconomy2 days ago

I'm not sure I'll be able to make it.

Dr. Þráinn Eggertsson, an economist and former professor at the University of Iceland, passed away in Reykjavik at the age of 85. He was born in Reykjavik on April 23, 1941, to Eggert Gunnlaug Gíslason, a project manager, and Þrúði Gunnarsdóttir, a hairdresser. He graduated with a bachelor's degree from the University of Iceland in 1961, earned his master's degree from the University of Manchester in 1964, and completed his doctorate at Ohio State University in 1972. His doctoral thesis focused on the economic effects of long-term education under conditions of increased student support from U.

Þráinn Eggertsson.

mbl.is/Styrmir Kári

Dr. Þráinn Eggertsson hagfræðingur, lengi prófessor við Háskóla Íslands, lést í Reykjavík í gærmorgun, 85 ára.

Þráinn fæddist í Reykjavík hinn 23. apríl 1941, hjónunum Eggerti Gunnlaugi Gíslasyni framkvæmdastjóra og Þrúði Gunnarsdóttur hárgreiðslumeistara.

Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1961, BA-prófi með láði frá háskólanum í Manchester 1964 og doktorsgráðu frá Ohio State University 1972, en doktorsritgerð hans var um hagfræðileg áhrif langskólamenntunar fyrir tilstilli námsstyrkja til bandarískra uppgjafahermanna úr seinni heimsstyrjöld.

Þráinn starfaði hjá Efnahags- og framfarastofnuninni í París (OECD) árin 1964-65. Hann var lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands frá 1973-78, dósent frá 1978-80 og prófessor 1980 til 2011, og var um skeið deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar.

Þráinn átti ásamt Guðmundi Magnússyni mestan hlut í því að móta hagfræði sem sjálfstæða fræðigrein við HÍ í byrjun 8. áratugarins. Þeir voru sæmdir heiðursdoktorsnafnbót á afmælisdegi Þráins í vor.

Rannsóknir Þráins sneru einkum að stofnanahagfræði, hagsögu og atvinnuháttum að fornu og nýju.

Hann var meðal þeirra fræðimanna sem mótuðu hina svokölluðu nýju stofnanahagfræði sem sjálfstæða grein innan hagfræðinnar. Bók hans Economic Behavior and Institutions (Cambridge University Press, 1990), skipar þar lykilstöðu, en einnig mætti nefna Imperfect Institutions: Possibilities and Limits of Reform (University of Michigan Press, 2005). Nýjasta bók Þráins, Digital Revolution and Institutional Change , kemur út hjá Cambridge University Press síðar á þessu ári. Þá reit hann fjölda fræðigreina, sem margar vöktu alþjóðaathygli.

Þráinn hafði mikil áhrif sem kennari, langt út fyrir eigin ritverk. Ævistarf hans sameinar frumkvöðlastarf, alþjóðlega viðurkennd fræðileg störf og uppbyggingu háskólasamfélagsins hér á landi. Hann hlaut viðurkenningu Ásusjóðs Wright 2001 fyrir vísindastörf sín og var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar á nýársdag 2006.

Nánar um málið í Morgunblaðinu

Áskrifendur:

Nánar um málið í Morgunblaðinu

Áskrifendur:

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
I'm not sure I'll be able to make it.

Dr. Þráinn Eggertsson, an economist and former professor at the University of Iceland, passed away in Reykjavik at the age of 85. He was born in Reykjavik on April 23, 1941, to Eggert Gunnlaug Gíslason, a project manager, and Þrúði Gunnarsdóttir, a hairdresser. He graduated with a bachelor's degree from the University of Iceland in 1961, earned his master's degree from the University of Manchester in 1964, and completed his doctorate at Ohio State University in 1972. His doctoral thesis focused on the economic effects of long-term education under conditions of increased student support from U.

Bias read (Center): The article provides a factual obituary of Dr. Þráinn Eggertsson, focusing on his academic background, career, and contributions to economics. There is no political framing or bias evident in the content.