Litlu samtölin okkar í vinnunni geta oft gert heilmikið gagn. Þótt þau fari bara fram á ganginum, í lyftunni eða við kaffivélina.
Vísir/Getty
Innihaldsrík og mikilvæg samskipti í vinnunni fara ekki alltaf fram á fundum eða í formlegum samtölum.
Stundum eru mikilvægar ákvarðanir teknar eða mál rædd nánast óvart. Við kaffivélina, í lyftunni, í upphafi eða lok Teams-fundar eða á Zoom. Bara í spjallinu.
Í grein í Fast Company er bent á að við ættum að vera meðvitaðri um þessi litlu samtöl. Þau byrja jafnvel á einföldu „hæ, hæ“, „eigðu góða helgi“ eða „má ég spyrja þig að einu?“
Yfirleitt eru þetta sjálfsprottin og stutt samtöl, en þau geta okkur tækifæri til að fá skjót og hreinskilin svör við málum sem brenna á okkur.
Lítið spjall við kaffivélina getur því reynst árangursríkara en skipulagður fundur. Og stutt samtal þar sem vgefaskum samstarfsfólki góðrar helgar eða góðs dags getur stundum leitt af sér eitthvað sem skiptir miklu máli.
Það þýðir þó ekki að við eigum að reyna að nýta hvert einasta tækifæri til að ræða vinnuna. Þvert á móti. Slík samtöl þurfa að eiga sér stað í eðlilegu og náttúrulegu flæði.
Greinarhöfundur mælir með því að hafa eftirfarandi atriði í huga:
Að aðstæður fyrir vinnusamtal séu réttar.
Að samtalið verði til á eðlilegan og náttúrulegan hátt.
Að við séum undirbúin og hugsum áður en við tölum.
Að við séum markviss í því sem við viljum koma á framfæri, jafnvel þótt samtalið virðist vera tilviljunarkennt og fari fram á göngunum eða við kaffivélina.
Tengdar fréttir
Þessir þrír drepa alla góða fundi
Þær eru ófáar bækurnar eða ritin sem hafa verið gefin út um fundi og fundarmenningu. Í raun hefur svo mikið verið rætt og ritað um fundi að ætla mætti að nokkurn veginn allt hafi verið sagt nú þegar í þeim efnum.
4. febrúar 2026 07:02
Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar
Rithöfundar tala stundum um ritstíflu. Þar sem engin orð komast á blað. Engar nýjar hugmyndir verða til. Síðan gerist eitthvað sem leysir úr þessu og bang: Úr verður geggjuð bók!
20. desember 2024 07:01
Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum
Það er svo gaman að fara yfir það með Dóru Jóhannsdóttur leikkonu og fyrirlesara, hvernig spuni getur nýst vinnustöðum.
5. desember 2025 07:03
Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir
Það eru alls konar kenningar um að hin svokallaða Z-kynslóð sé ekkert svo ofboðslega hrifin af því að fara inn á vinnumarkaðinn eða að vinna langa vinnudaga.
28. febrúar 2025 07:03
Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum
Við eigum okkur öll góða daga. Og ekki eins góða daga. Enginn getur sagt að þær stundir komi ekki upp, þar sem þráðurinn í okkur er jafnvel styttri en venjulega.
18. október 2024 07:02
Fleiri fréttir
Sjá meira
Read the full article at Vísir →