Metin hafa oftar en ekki riðað til falls þegar dýralæknirinn úr Borgarfirði gengur undir stöngina, nú síðast Evrópumet í St. Julians á Möltu í mars, en Kristín flýgur út til Litáen á HM í klassískum kraftlyftingum á fimmtudaginn, nýbúin að sóna hryssu og klár í harðan slag í -84 kg flokki.
Ljósmynd/Kraft.is
„Ég var að sóna hryssu og kanna hvenær hún hefði egglos næst, hvenær hún væri að ganga eins og sagt er og hvenær hægt væri að halda henni við hest,“ segir Kristín Þórhallsdóttir, dýralæknir í Borgarfirði og ein öflugasta kraftlyftingakona landsins og þótt víðar væri leitað enda nýbakaður Evrópumeistari í annað skipti og á leið á heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum í Litáen sem þegar er hafið.
Kristín ætlar sér stóra hluti í -84 kílógramma flokki á HM þótt hún sé nýkomin úr miklum önnum við sauðburðinn í vor sem dró orkuna í aðrar áttir en fram undan eru. „Bóndans hugur beinist að fleiru en bjástri við lömb og kýr,“ orti skáldið frá Fagraskógi í ljóði sínu um Bólu-Hjálmar og sannarlega á ljóðlínan vel við nú þegar Kristín brýnir sig fyrir átökin í Druskininkai í Litáen um helgina en hún gengur á hólm á laugardaginn.
„Þetta er rosalega þéttsetinn tími núna og maður er orðinn dálítið framlágur eftir sauðburðinn í maí og núna í júní byrjar ræktunarstarf hjá hrossum og geldingar, mikill erill og mikið hringt og maður er úti um allt á þeytingi og verður svolítið tættur,“ segir Kristín sem þó lætur engan bilbug á sér finna fyrir það verkefni hennar sem snýr að allt öðru en blessuðum skepnunum.
Borgfirðingurinn á sér glæsilegan feril sem lesendur mbl.is hafa ekki farið varhluta af síðustu árin. Kristín hefur glímt við meiðsli annað veifið, orka hennar þorrið í sauðburði og barnauppeldi heimtað sitt en keppnisskapi hennar og við brugðið og andi íþróttamannsins brennur henni í brjósti.
Ljósmynd/Kraft.is
Beint flug, mataræði og vatnslosun
„Síðasta mánuðinn fram að móti eru mjög þungar æfingar og maður er orðinn dálítið andlega bugaður á þessu tímabili, ég þarf að halda streitunni niðri líka svo þetta er alltaf erfiður tími en ég hef auðvitað gert þetta margoft áður,“ segir Kristín.
Hún fer út á fimmtudagsmorgun, degi fyrr en hefðin segir til um þar sem á fimmtudaginn nær hún beinu flugi. „Það munar miklu að geta verið í sínu prógrammi varðandi mataræði, vatnslosun og þessa hluti sem maður er að gera og græja síðustu dagana fyrir mót,“ segir hún og kveðst bjartsýn fyrir mótið.
Eins og mbl.is greindi frá um helgina heltist bandaríska ofurkvendið Amanda Lawrence úr lestinni vegna meiðsla, margfaldur heimsmeistari sem haft hefur töglin og hagldirnar í -84 kg flokknum um árabil, en Kristín segir fjarveru hennar í Litáen ekki skipta öllu máli.
„Það breytir svo sem engu fyrir mig, ég var fimmta inn á styrkleikum en er nú fjórða en samt sem áður er dálítið langt í þær sem eru fyrir ofan mig þannig að ég held að ég verði bara svolítið að halda mínu plani og svo verðum við bara að sjá til, það er ekki alveg innan seilingar að ég nái á pall en ég er samt upp á mitt besta núna, hef átt gríðarlega góða upplyftu og óskastaðan væri að ná persónulegri bætingu í samanlögðu og svo verður það bara að koma í ljós hverju það skilar mér en flokkurinn minn hefur aldrei verið jafn sterkur og margar að koma upp í flokkinn sem hafa verið í verðlaunasætum í næsta flokki fyrir neðan mig,“ segir dýralæknirinn.
Kristín hefur keppt á ótal mótum. Hér eru verðlaunahafar í kraftlyftingakeppni kvenna á Reykjavíkurleikunum 2020. Frá vinstri: Arna Ösp Gunnarsdóttir, Kimberly Walford og Kristín.
Þóra Hrönn Njálsdóttir
Væntingavísitalan í botni
Þú hlýtur þó að gera þér töluverðar væntingar eftir frábært gengi á Evrópumeistaramótinu í mars.
„Auðvitað vill maður gera vel og að allt gangi upp eftir gríðarlega vinnu við undirbúning, maður vill fá uppskeru eins og maður hefur sáð og í þessum undirbúningi hefur ekkert verið mér til trafala nema miklar annar í vinnunni og maður gerir sér náttúrulega væntingar um að skila því á keppnispallinum og ná sér í einhverjar bætingar, maður er alltaf skúffaður þegar maður er búinn að leggja inn vinnuna og eitthvað klikkar á mótsdegi, dagsformið er auðvitað alltaf mismunandi,“ segir kraftlyftingakonan hreinskilnislega.
Kristín segist mjög róleg fyrir mótið en samt sterk, líklega gráupplögð blanda. „Þegar ég keppti á EM var ég hæst að styrkleikum inn á það mót og maður setur pressu á sig þegar titill er innan seilingar. Það tókst þar en ef ég ætla að vera raunhæf núna þarf ég að eiga virkilega góðan dag og mótherjar mínir virkilega slæman dag svo ég nái á pall. Ég ætla bara að reyna mitt besta og fylgja mínu plani en maður verður að vera raunhæfur, ég ætla að fara afslöppuð inn á þetta mót, mér finnst það oft virka best fyrir mig,“ segir Kristín.
Hvernig líst þér á íslenska keppendahópinn? Þið eruð sjö á þessu móti Íslendingarnir.
Kristínu líst vel á en böggull fylgir skammrifi. „Við höfum öll farið saman í keppnisferð áður og þekkjumst mjög vel en mótið spannar heila viku, léttustu þyngdar…
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →3 reports
VísirIndependentCenter5 days ago The strongest doctors in the countryThe article reports on Iceland's participation in the World Weightlifting Championships being held in Druskininkai, Lithuania. Iceland has a team of seven athletes, including four women and three men, trained by national coach Auđun Jónsson. The first competitor representing Iceland was doctor Kristrún Sveinsdóttir, who competed in the -52kg category for women. This was her third world championship appearance in the open category, and she is currently the Icelandic champion in this weight class. Kristrún performed well at the competition, lifting a total of 367.5 kilograms, with lifts of 135kg
Bias read (Center): The article provides factual information about an athletic event without any political commentary or biased language.
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter6 days ago From the Track to SteelThe article discusses Kristín Þórhallsdóttir, a veterinarian from Borgarfirði and one of Iceland's strongest powerlifters, who recently competed in the European Championships in St. Julian's, Malta. She has qualified for the World Championships in classical powerlifting in Lithuania, where she plans to compete in the -84 kg category. The article mentions her recent recovery from an injury and her current focus on training and competition.
Bias read (Center): The article focuses on sports achievements and personal training details without any political commentary or biased framing. It presents factual information about Kristín's career and upcoming competitions.
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter7 days ago Doctors and veterinarians are rushing to the scene in LitainThe article discusses Icelandic weightlifters participating in the World Championships in Lithuania. It mentions Auðunn Jónsson and Hinrik Pálsson as coaches for three athletes, including Laufey Agnarsdóttir, who did not compete when the photo was taken. The text highlights Kristrún Ingunn Sveinsdóttir, a doctor and newly graduated athlete, and Kristín Þórhallsdóttur, a veterinarian and European champion. Other Icelandic competitors listed include Hanna Jóna Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Matthíasdóttir, and Friðbjörn Bragi Hlynsson.
Bias read (Center): The article focuses on sports competition and does not present any political content or controversial issues. It provides factual information about Icelandic athletes and their participation in an international event without taking a stance or showing bias.