Breski leikarinn Idris Elba á frumsýningu í Kaliforníu um miðbik maí.
AFP/Frederic J. Brown
Breski leikarinn Idris Elba hefur útilokað að hann muni nokkurn tíma fara með hlutverk James Bond, þrátt fyrir að nafn hans hafi árum saman verið nefnt í tengslum við hlutverkið.
Elba, sem er 53 ára, hefur lengi verið talinn meðal þeirra leikara sem kæmu helst til greina sem arftaki Daniel Craig í hlutverki njósnarans fræga. Í nýju viðtali við breska GQ segir hann hins vegar að umræðan hafi aldrei verið á rökum reist.
„Þetta var aldrei raunverulegt. Þetta var alltaf bara orðrómur,“ sagði Elba.
Leikarinn segir umræðuna hafa farið af stað eftir frumsýningu Quantum of Solace á Ítalíu árið 2008, skömmu eftir að Barack Obama var kjörinn forseti Bandaríkjanna.
Daniel Craig hafi þá sagt að sigur Obama sýndi að tími svartra Bond-leikara gæti verið runninn upp. Aðdáendur hafi síðan tekið boltann og hlaupið með hann.
Taldi hlutverkið aldrei raunhæft
Elba segist þó aldrei hafa talið hugmyndina sérlega raunhæfa.
„James Bond var skrifaður eins og hann var skrifaður af ákveðinni ástæðu,“ sagði hann og bætti við að honum hefði þó þótt tilnefningin upphefð.
Elba sagði jafnframt að ekki þyrfti að endurskapa allar þekktar persónur fyrir nýja tíma. Bond væri gríðarlega stórt vörumerki á heimsvísu og hann teldi ekki víst að allir markaðir myndu taka vel í svartan, afrískan karlmann í hlutverkinu.
„Bond er fyrst og fremst flótti frá raunveruleikanum. Það á ekki að reyna að gera hann að svari við smekk alls heimsins. Hann á bara að vera Bond,“ sagði Elba.
Beinir kröftum sínum annað
Leikarinn, sem nýverið var sleginn til riddara, segist nú beina kröftum sínum að öðrum verkefnum. Þar á meðal er starf með ungu fólki og barátta gegn hnífaglæpum, auk uppbyggingar menningar- og samfélagsmiðstöðvar í North Kensington í Lundúnum.
Í viðtalinu ræddi Elba einnig andlát föður síns, Winston, sem lést úr lungnakrabbameini árið 2013. Hann sagði veikindi föður síns hafa breytt lífi sínu og lýsti síðustu stundunum við rúm hans sem vendipunkti.
Á meðan heldur leitin að næsta James Bond áfram. Daniel Craig kvaddi hlutverkið í No Time To Die árið 2021 og hafa nöfn á borð við Aaron Taylor-Johnson, Harris Dickinson og Callum Turner verið nefnd í tengslum við næstu myndir um njósnarann góðkunna.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →