ON
← Back to feed
ISCulture4 days ago

Speech by Höllu: Strengths of the Icelandic people, cooperation and exchange of views

President Halla Tómasdóttir delivered a speech at Iceland's national holiday celebration at Austurvellir today. She emphasized the importance of Icelandic strength during times of challenge, transformation, and uncertainty, highlighting key decisions made for Iceland's future. The president mentioned that the government had previously proposed moving the Independence Day parade but this year, like last year, Prime Minister Katrín Jakobsdóttir invited President Halla to take over the parade. Guðni Th. Jóhannesson, former president and current chair of the presidential committee, suggested in a

Halla Tómasdóttir forseti Íslands fór um víðan völl í hátíðarræðu sinni á hátíðarstund lýðveldisins á Austurvelli í dag. Hún hafði meðal annars orð á því að styrkleikar Íslendinga væru mikilvægir á tímum átaka, umbreytinga og óvissu og að fram undan væru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands.

Áralöng hefð hefur verið fyrir því að forsætisráðherra flytji ávarp á athöfninni en í ár, líkt og í fyrra, bauð Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Höllu að flytja ávarpið.

Guðni Th. Jóhannesson, forveri Höllu í embætti forseta, lagði til í kveðjuávarpi sínu til Alþingis að forseti tæki við flutningi hátíðarávarpsins af forsætisráðherra. Þá hafði Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, ekki viljað víkja fyrir Guðna og frekar viljað halda í hefðina.

Styrkleikar Íslendinga afrakstur fyrri kynslóða

Halla segir í ræðu sinni styrkleika Íslendinga mikilvæga á tímum átaka, umbreytinga og óvissu.

„Þjóðin er vel menntuð, við njótum endurnýjanlegra orkugjafa og í hafinu í kringum landið eru fengsæl fiskimið. Metnaður, sköpunarkraftur og samheldni landsmanna hafa lagt grunn að velferðarsamfélagi í fremstu röð. 2 Við búum yfir ýmsum styrkleikum sem skipta máli, ekki síst á tímum hraðra umbreytinga, átaka og óvissu. Íslenskt samfélag byggir á trausti, jafnrétti, öflugum innviðum og djúpri tengingu okkar við landið sjálft - og við hvert annað.“

Hún segir þessa styrkleika engan sjálfsagðan, þeir séu afrakstur kynslóðanna sem á undan komu.

„Þeir eru ávöxtur samtals, samvinnu og sameiginlegrar ábyrgðartilfinningar. Þeir byggja á þeirri trú að þótt við séum ekki alltaf sammála þá eigum við samleið.“

Þjóðhátíðardagurinn kjörin stund ígrundunar

Halla segir þjóðhátíðardaginn ekki aðeins tilefni til hátíðarhalda, heldur einnig kjörna stund ígrundunar um sjálfstæði, framkomu okkar hvert við annað og veganesti komandi kynslóða.

„Í dag fögnum við sjálfstæði okkar, þeim áfanga sem markaði þáttaskil í sögu íslensku þjóðarinnar árið 1944 og lagði grunn að þeirri velsæld og virðingu sem við njótum í dag. En þjóðhátíðardagurinn er ekki aðeins tilefni til hátíðarhalda. Hann er líka kjörin stund ígrundunar – hugleiðinga um hver við erum, hvað sameinar okkur og hvert við viljum stefna. Sjálfstæði er nefnilega ekki aðeins réttur til að ráða eigin málum. Því fylgir líka ábyrgð – ábyrgð á því hvernig við komum fram hvert við annað, hvernig við tökum ákvarðanir og hvers konar veganesti við skiljum eftir fyrir komandi kynslóðir.“

Samskipti Íslands við aðrar þjóðir

Halla víkur næst að samtakamætti og skoðanaskiptum. Hún segir fram undan vera mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands og samskipti við aðrar þjóðir en leiða má líkur að því að hér vísi hún til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

„Fram undan eru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands og samskipti okkar við aðrar þjóðir. Skoðanir eru skiptar. Það er eðlilegt. Skoðanaskipti eru kjarni lýðræðisins. En lýðræði byggir ekki aðeins á skoðanafrelsi - á rétti okkar til að vera ósammála. Það byggir ekki síður á hæfni okkar til að hlusta, skilja sjónarmið annarra og leita sameiginlegra lausna. Farsæld samfélagsins veltur á því að við lítum á hvert annað sem samferðafólk fremur en andstæðinga.“

„Við höfum byggt upp samfélag þar sem skoðanaskipti eru eðlilegur og mikilvægur þáttur þjóðlífsins, en líka samfélag þar sem við finnum til sameiginlegrar ábyrgðar hvert á öðru. Í fáum löndum gegna almannaheillasamtök og sjálfboðaliðar jafn stóru og mikilvægu hlutverki og hér. Þetta er dýrmæt arfleifð en ekki sjálfsögð. Við þurfum að rækta hana áfram.“

Fjörutíu ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða

Hún segir leiðtogafundinn í Höfða öllum áminning um áhrifamátt samtalsins og hann eigi sérstaklega brýnt erindi við Íslendinga hér og nú.

„Leiðtogafundurinn árið 1986 er heiminum öllum áminning um áhrifamátt samtalsins. Hann vekur vonir um að jafnvel á tímum djúpstæðs ágreinings sé hægt að brúa bil, sætta ólík sjónarmið og leita sameiginlegra lausna. Hann minnir okkur einnig á að friður er aldrei sjálfgefinn. Friður er afrakstur vilja, hugrekkis og trúar á gildi þess að halda samtalinu lifandi. Þessi lærdómur má ekki gleymast. Ég held raunar að hann eigi sérstaklega brýnt erindi við okkur Íslendinga hér og nú“

Read the full article at Vísir
Source document: Speech by President Halla Tómasdóttir

4 reports

VísirIndependentCenter4 days ago
Photo-reception: Dutch national holiday celebrated in high season

Iceland celebrates its 122nd anniversary of independence with traditional ceremonies across the country, including in Reykjavik. President Halla Tómasdóttir delivered a speech emphasizing the strength of Icelanders during times of challenge and uncertainty. Elín Hall was chosen as this year's 'Fjallkonan' (Mountain Woman) in Reykjavik, and she performed at the ceremony. The national anthem and traditional songs were part of the event. Foreign Minister and Prime Minister Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir and new mayor Hildur Björnsdóttir were also present.

Bias read (Center): The article reports on a cultural and historical celebration without taking a political stance. It provides factual information about the events, speeches, and participants without biased language or selective emphasis.

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter4 days ago
Wishing Iceland a happy day

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, óskaði Íslendingum til hamingju með 82. þjóðhátíðardaginn. Hann hléði við samstarf Íslands og Bandaríkjanna, sem markaði 75 ár varnarsamstars. Rubio nefndi nýsköpun á Íslandi í orkumálum, gagnaverum, líftækni og vaxandi sprotafyrirtæki og lýsti því sem meginstoð í sambandinu. Hann hlakkaði til að halda sambandinu áfram til að tryggja öryggi og velgengni svæðisins.

Bias read (Center): The article reports on a diplomatic statement by a U.S. official expressing goodwill towards Iceland during Independence Day. The content is neutral in tone, focusing on historical cooperation and economic ties without overtly favoring any political perspective. There is no evidence of loaded phras,

Official sources cited

VísirIndependentCenter4 days ago
Reflections on Iceland's National Day: The foundation of independence was their struggle for a better society

The article reflects on Iceland's independence day, emphasizing the struggles of early settlers who built an independent society despite challenges. It highlights the economic foundation laid by pioneers like Einar Olgeirsson and his associates through their ventures in trade and industry. The piece references Magnús Sigmundsson's song 'Freyja' and discusses the importance of natural resources such as fish, mountains, water, and plains as the basis for Iceland's economic and political independence.

Bias read (Center): The article focuses on cultural and historical reflection rather than contemporary political issues. It does not present a clear ideological stance or biased framing. The content is centered around national identity and historical achievements without overtly favoring any political perspective.

VísirIndependentCenter4 days ago
Speech by Höllu: Strengths of the Icelandic people, cooperation and exchange of views

President Halla Tómasdóttir delivered a speech at Iceland's national holiday celebration at Austurvellir today. She emphasized the importance of Icelandic strength during times of challenge, transformation, and uncertainty, highlighting key decisions made for Iceland's future. The president mentioned that the government had previously proposed moving the Independence Day parade but this year, like last year, Prime Minister Katrín Jakobsdóttir invited President Halla to take over the parade. Guðni Th. Jóhannesson, former president and current chair of the presidential committee, suggested in a

Bias read (Center): The article provides a balanced overview of the event without overtly favoring any political side. It reports on the speeches and actions of various officials without using biased language or selective sourcing.

Official sources cited

  • statement Speech by President Halla Tómasdóttir
  • statement Statement by Guðni Th. Jóhannesson

Go to the primary sources (4)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.