ON
← Back to feed
ISCulture5 days ago

We feel like we're actually messing with them.

An article about an international conference on folklore held at the University of Iceland, featuring Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, a folklorist. The conference theme is 'Nature(s) in Narrative,' focusing on nature and natural phenomena in storytelling. The event is described as being held every other year and attracting participants from around the world. Dr. Jónsdóttir highlights the diversity of topics discussed, including natural landscapes, weather, and urban environments.

Frá ráðstefnunni.

Ljósmynd/Háskóli Íslands

Þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir segir merkilegt að átta sig á því að sömu sögurnar eru í raun sagðar um allan heim, þó með ólíkum blæbrigðum.

Hún er einn aðstandandi ráðstefnu yfir 600 þjóðsagnafræðinga og fræðafólks á sviði frásagnarannsókna víðs vegar að úr heiminum í Háskóla Íslands. Dagskráin hefur gengið vonum framar og hún segir að helsta umkvörtunarefni gesta hafi verið of gott veður.

„Þetta er ráðstefna sem er haldin annað hvert ár og flakkar á milli ólíkra staða í heiminum. Núna erum við hérna á Íslandi að taka á móti þessari ráðstefnu í fyrsta skipti. Það er ótrúlega skemmtilegt að geta boðið allt þetta fólk velkomið,“ segir Dagrún.

Ráðstefnan hófst á sunnudaginn en þema hennar í ár er „Nature(s) in Narrative“ eða náttúra í sögum.

Mjög fjölbreytt viðfangsefni

Spurð hvort það sé eitthvað sérlega ofarlega á baugi hjá þjóðsagnafræðingum heimsins þegar kemur að þessari áherslu segir Dagrún Ósk að um mjög breytt þema sé að ræða.

Sjálf er hún til að mynda búin að sækja málstofur sem snúast um hið náttúrulega og yfirnáttúrulega, landslag í náttúru og borg og veður.

„Þannig að þetta er bara mjög fjölbreytt, sem er frábært, og verið er að hugsa um alls konar.“

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur.

mbl.is/ Kristinn Magnússon

Blæbrigðin áhugaverð

Spurð hvort það sé eitthvað sérstakt sem einkenni íslenska þjóðsagnamenningu og þjóðtrú segir Dagrún:

„Það sem er ofboðslega merkilegt er að sögur eru alls staðar og þjóðtrú og þjóðfræði alls staðar líka. Þannig að þetta er svo líka svo frábært tæki til að sameina af því að maður er að segja einhverja sögu og einhver annar í salnum sem kemur bara frá allt öðrum stað í heiminum segir strax bara: já, við segjum líka þessa sögu, en þá er hún aðeins öðruvísi. Þessar sögur þekkjast út um allan heim og þessi trú líka.“

„En það eru þessi blæbrigði sem eru svo ofboðslega áhugaverð, eitthvað sem er öðruvísi á milli staða og af hverju er það þá öðruvísi? Það er líka það sem er áhugavert að ræða þegar við hittumst og komum saman,“ bætir hún við.

„Ég pakkaði ekki fyrir sól“

Um fjörutíu Íslendingar sækja ráðstefnuna en aðstandendur hennar hafa nýtt tækifærið til að kynna íslenska menningu fyrir gestum.

Í gær héldu ráðstefnugestir til að mynda í plöntuferð til Viðeyjar, skoðuðu handritasýninguna í Eddu og fóru í göngutúr í Nauthólsvík þar sem fjallað var um íslenska sundlaugamenningu.

„Þannig að við erum líka einmitt að reyna að kynna fólkið fyrir því sem við erum að gera hér og vonandi verða til einhver spennandi og skemmtileg samstarfsverkefni líka í framhaldinu upp úr því,“ segir Dagrún og bætir við að dagskráin hafi gengið ótrúlega vel.

„Okkur finnst við eiginlega vera að gabba þau, þau eru búin að fá svo geggjað veður. Það er búið að vera æðislegt veður á meðan ráðstefnan er í gangi og helsta kvörtunin sem við höfum heyrt er: „Ég pakkaði ekki fyrir sól“.“

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Dagrún Ósk Jónsdóttir

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter5 days ago
We feel like we're actually messing with them.

An article about an international conference on folklore held at the University of Iceland, featuring Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, a folklorist. The conference theme is 'Nature(s) in Narrative,' focusing on nature and natural phenomena in storytelling. The event is described as being held every other year and attracting participants from around the world. Dr. Jónsdóttir highlights the diversity of topics discussed, including natural landscapes, weather, and urban environments.

Bias read (Center): The article discusses a cultural event with no political implications. It provides factual information about the conference, its theme, and participant perspectives without any apparent ideological framing or bias.

Official sources cited

  • statement Dagrún Ósk Jónsdóttir

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • statementDagrún Ósk Jónsdóttir