ON
← Back to feed
ISPolitics2 days ago

The paint didn't dry: Not painted this summer

The main reason cited for the failure of the pool at Vesturbæjarlaug during the summer was that it was not allowed to freeze long enough. According to a written response from Reykjavík City to an inquiry by mbl.is, there were no plans for resurfacing the pool this summer, only localized maintenance work. Two safety reports have been prepared that point to the issue. The pool was closed on May 19 last year due to maintenance work and reopened on June 19. It was then closed again on August 18 and reopened the following week. On August 29, it was closed again for the solar ring and remained open,

Meginorsök flögnunarinnar var sú að málningin var ekki látin þorna nægilega lengi.

Samsett mynd

Ekki verður ráðist í endurmálun á sundlaug Vesturbæjarlaugar í sumar heldur aðeins staðbundnar viðgerðir, að því er fram kemur í skriflegu svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn mbl.is.

Greint var frá því á mbl.is í gær að málningin í sundlaug Vesturbæjarlaugar hefði haldið áfram að flagna í allan vetur þrátt fyrir viðgerðir á síðasta ári og lokanir vegna þeirra.

Liggja nú tvær slysaskýrslur fyrir sem rekja má til vandans.

Hefði átt að þorna í 13 - 14 daga

Í svarinu kemur fram að meginorsökin fyrir því að málningin flagni sé sú að hún hafi ekki fengið að þorna og harðna nógu lengi, áður en laugin var fyllt og tekin í notkun aftur.

„ Við framkvæmdina var unnið með um 48 klukkustunda biðtíma áður en vatni var hleypt á laugina, en miðað við hitastig á framkvæmdatímanum hefði hörðnunartími átt að vera allt að 13–14 dagar. Afleiðingin varð veik binding milli málningarlaga sem leiddi til flögnunar,“ segir í svarinu.

Til upprifjunar var lauginni fyrst lokað 19. maí í fyrra vegna viðhaldsframkvæmda sem drógust á langinn og var hún ekki opnuð aftur fyrr en 19 júní.

Þá var henni aftur lokað 18. ágúst og opnuð viku síðar. 29. ágúst var henni svo lokað í sólarhring og var hún opin til 13. október þegar henni var lokað á ný til 28. október.

Sundlaugin endurmáluð næsta sumar

Tókst ekki að leysa vandann í þeim ófáu lokunum laugarinnar á seinasta ári?

„ Nei. Fyrstu viðgerðirnar sem gerðar voru eftir að flögnun kom í ljós reyndust ekki leysa undirliggjandi vandamál. Í ágúst 2025 var laugin lokuð vegna flögnunar og gerðar staðbundnar viðgerðir. Fljótlega kom þó í ljós að flögnunin hélt áfram og síðar varð ljóst að um kerfislægan ágalla var að ræða en ekki staðbundið vandamál. Því var laugin lokuð aftur í október 2025 og hreinsuð með háþrýstiþvotti,“ segir í hinu skriflega svari Reykjavíkurborgar.

Tekin hafi verið ákvörðun um að endurmála sundlaugarkarið næsta sumar.

Efnisval, aðstæðustýring og gæðaeftirlit ekki fullnægjandi

Í lok svarsins segir að verkefnið sem hófst í fyrrasumar hafi fyrst og fremst verið endurbótaverkefni á laugarkerinu. Ástæðan fyrir því að málningin flagni virðist fyrst og fremst hafa verið sú að málningarkerfið náði ekki fullnægjandi hörðnun áður en laugin var fyllt og tekin aftur í notkun.

„ Við framkvæmdina virðist einnig hafa skipt máli að efnisval, aðstæðustýring og gæðaeftirlit hafi ekki verið með þeim hætti sem best hefði verið á kosið. Í kjölfar opnunar byrjaði málning að flagna sem leiddu til lokana á sundlaugarkerinu til að fara í staðbundnar viðgerðir. “

Þær aðgerðir hafi þó ekki dugað til að stöðva vandann þar sem síðar kom í ljós að um víðtækari og kerfisbundnari galla var að ræða. Hafi meginvandinn tengst framkvæmd og aðstæðum við málunina.

Hér má sjá málningu sem flagnað hefur af laugarkari Vesturbæjarlaugar.

Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Reykjavík City's Written Response

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
The paint didn't dry: Not painted this summer

The main reason cited for the failure of the pool at Vesturbæjarlaug during the summer was that it was not allowed to freeze long enough. According to a written response from Reykjavík City to an inquiry by mbl.is, there were no plans for resurfacing the pool this summer, only localized maintenance work. Two safety reports have been prepared that point to the issue. The pool was closed on May 19 last year due to maintenance work and reopened on June 19. It was then closed again on August 18 and reopened the following week. On August 29, it was closed again for the solar ring and remained open,

Bias read (Center): The article presents factual information regarding the reasons behind the pool's issues without apparent bias. It cites official responses and provides a neutral account of events.

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.