ON
← Back to feed
ISSports3 days ago

A group of people were sitting around a fridge eating

A group of people gathered at a food bank associated with the Hjalpreths parish, leading to its temporary closure. Hannes Bjarnason, the area representative of the Hjalpreths parish, stated that the situation required the food bank to close due to concerns about individuals potentially selling the food. The food bank had been providing meals to those in need but was forced to shut down temporarily after incidents involving groups of people disrupting the distribution.

Hannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins, segir miður að loka hafi þurft frískápnum við Hjálpræðisherinn. Hópur fólks hafi setið um matinn sem var settur í skápinn og grunur hafi leikið á um að hópurinn væri að selja matinn áfram. Hjálpræðisherinn gefur matinn áfram en með öðrum leiðum.

Frísskápar eru á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða ísskápa sem fólk getur sett mat í sem er við það að renna út og fólk tekið sem vantar, þarf eða vill. Frískápar eru til dæmis við Háteigs- og Laugarneskirkju og við Andrými í miðbæ Reykjavíkur. Frískápurinn sem var við Hjálpræðisherinn var ekki á þeirra vegum en fékk að vera á lóðinni.

Tóku ekki matinn af kærleika

Hannes segir þó ekki rétt sem kom fram í hópnum Frísskápur 108 að vopnuð átök hafi verið við ísskápana.

„Ég er búinn að sjá ein slagsmál síðan ég byrjaði fyrir ári. Það er ekki stóra ástæðan fyrir lokuninni. Ástæðan er að það voru hópar fólks sem stokkuðu upp matinn og stjórnuðu þessu. Hérna komu bílar að sækja og þetta fólk er ekki hungrað og alls ekki að svelta og allar líkur á að þau ætli að selja öðrum þetta. Þau voru ekki að þessu af kærleika,“ segir hann.

Dæmi um mat sem skilinn var eftir í skápnum. Facebook

Því hafi verið tekin ákvörðun um að loka frísskápnum.

„Það var líka ofboðslegt rusl, fólk gekk svo illa um. Á hverjum morgni voru ruslahaugar og mávar. Nágrannarnir voru allir brjálaðir. Þannig við ákváðum að kippa skápunum úr sambandi og hætta,“ segir hann og að tilraunin hafi verið fullreynd.

Mæðrastyrksnefnd gefur áfram

„Vörurnar sem við gefum fara nú til Mæðrastyrksnefndar og í dreifingu í gegnum nefndina,“ segir hann og að auk þess fari eitthvað í aðra frískápa á höfuðborgarsvæðinu.

„Við gefum áfram en viljum ekki hafa þetta á lóðinni. Þetta var komið út fyrir það að við vorum raunverulega að vera til gagns fyrir þá sem þurfa á því að halda eða eru einhverjir að nýta og misnota þetta.“

Bjó í tjaldi við skápinn

Hann segir eitt sumarið til dæmis mann hafa búið við frískápinn í tjaldi og hafi notað matinn og rafmagnið. Hann hafi stundum verið nakinn og óvissa um ástand hans.

„Þannig það var engin ástæða til að búa við svona aðstæður lengur. Þetta snýst um gæðastjórnun, þetta á að hjálpa fólki, maturinn þarf að fara til þess sem þarf á því að halda, það er vont þegar aðrir eru að misnota og við náum ekki að stýra því,“ segir hann.

Tengdar fréttir

Bakaði tugi banana­brauða úr bönunum ná­grannanna og gaf þau öll

Ung kona varði helginni í að baka bananabrauð úr bönunum sem hún fékk meðal annars hjá nágrönnum sínum. Brauðin fara í frískápa um borgina og til þeirra sem mest gætu þurft á að halda.

29. október 2023 21:55

„Fallegt samfélagslegt verkefni sem að gerir borgina betri“

Reykvíkingar ársins 2022 segja það hafa komið á óvart að þau hafi orðið fyrir valinu en þau komu á fót fyrsta íslenska frískápnum. Formaður borgarráðs segir þau vel að nafnsbótinni komin þar sem þau hafa fengið aðra Reykvíkinga með sér í lið til að bæta samfélagið.

20. júní 2022 21:00

Kamila og Marco valin Reykvíkingar ársins

Vinirnir Kamila Walij­ewska og Marco Pizzolato eru Reykvíkingar ársins 2022. Formaður borgarráðs tilkynnti valið við opnun Elliðaána í morgun áður en þeim Kamilu og Marco var boðið að renna fyrir laxi.

20. júní 2022 09:59

Fékk tár í augun yfir matarsóun og opnaði frískáp

Tveir vinir ákváðu að koma ísskápi fyrir í miðbæ Reykjavíkur til þess að sporna gegn matarsóun. Stórt samfélag hefur skapast í kringum ísskápinn sem einkennist af náungakærleika.

5. janúar 2022 20:30

Fleiri fréttir

Sjá meira

Read the full article at Vísir
Source document: Hannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins

1 reports

VísirIndependentCenter3 days ago
A group of people were sitting around a fridge eating

A group of people gathered at a food bank associated with the Hjalpreths parish, leading to its temporary closure. Hannes Bjarnason, the area representative of the Hjalpreths parish, stated that the situation required the food bank to close due to concerns about individuals potentially selling the food. The food bank had been providing meals to those in need but was forced to shut down temporarily after incidents involving groups of people disrupting the distribution.

Bias read (Center): The article reports on an event involving a food bank and community issues without taking a clear stance or using biased language. It presents facts and quotes from officials without evident slant.

Official sources cited

  • organisation Hannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • organisationHannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins