Þessi gerði sitt besta til að verja sig gegn sólinni þegar hiti náði fjörutíu gráðum í Sevilla á sunnanverðum Spáni í lok maí.
Getty
Búist er við að hitabylgja muni ganga yfir sunnanverða Evrópu næstu daga. Helsta orsökin er heitt loft sem berst norður til Evrópu frá Sahara.
Hiti mun ná allt að fjörutíu gráðum á sunnanverðum Spáni um helgina. Þar að auki mun hiti ekki ná undir tuttugu gráður yfir nóttina og verður því litla hvíld að fá fyrir íbúa.
Frakkar fá að finna fyrir hitabylgjunni en á morgun spáir þrjátíu og sex stiga hita til að mynda í höfuðborginni París og Bordeaux í suðvesturhluta landsins. Samkvæmt spá mun hiti ná þrjátíu og átta gráðum í París á mánudag. Euronews greinir frá því að yfirvöld í Frakklandi skoði hvort færa þurfi lokapróf vegna hitabylgjunnar.
Á Ítalíu gætu hitatölur náð fjörutíu gráðum í hinni fornfrægu Flórens. Hitinn mun teygja sig áfram norður yfir Alpana og er spáð þrjátíu og átta gráðum í Frankfurt á þriðjudag í næstu viku. Áhyggjur vegna álags á innviði sem ekki voru byggðir fyrir hitabylgjur af þessu tagi hafa þegar gert vart við sig.
Hitabylgjan teygir sig einnig til austurs. Á laugardag er spáð þrjátíu og fjórum gráðum og þrumuveðri í Prag og þrjátíu og fimm stiga hita í Búdapest. Ástæða er fyrir Íslendinga á faraldsfæti að fylgjast vel með veðurspám þar sem þeir eru staddir og fylgja fyrirmælum yfirvalda. The New York Times greinir frá því að hitabylgjan hafi þegar haft áhrif á ferðaáætlanir fólks.
Veður verður mun skaplegra í Skandinavíu, í Ósló fer hitinn hæst í tuttugu og fjórar gráður á sunnudaginn.
Maíhitamet féllu víða í Bretlandi fyrir tæpum mánuði. Síðustu ár hefur mikið hefur verið rætt um að hitabylgjum sem þessum muni fara fjölgandi eftir því sem meðalhitastig jarðarinnar hækkar og loftslag breytist.
Tengdar fréttir
Húðlæknir bregst við brúnkutískunni
Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina.
13. júní 2026 07:55
Fleiri fréttir
Sjá meira
Read the full article at Vísir →📄Source document: Spanish Meteorological Service
2 reports
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago Heatwave approaching: Temperatures as high as 105 degrees Fahrenheit [40°C]A heatwave is expected to affect parts of Europe, with temperatures potentially reaching up to 40 degrees Celsius in southern regions such as Spain, Portugal, and Italy. The Spanish meteorological service has issued yellow weather warnings for some areas due to high temperatures and poor weather conditions. Meteorologists predict that the highest temperatures will occur in cities like Seville, Zaragoza, and Cordoba in Spain. Similar temperature rises are anticipated in France, Portugal, and Italy, with up to 39 degrees Celsius predicted in southwest France and 40 degrees Celsius in certain葡萄牙和
Bias read (Center): The article provides factual information about an upcoming heatwave without taking a stance or showing bias. It reports on weather forecasts and potential health impacts but does not favor any particular political perspective.
Official sources cited
- government Spanish Meteorological Service
VísirIndependentCenter3 days ago Burn up to forty degrees CelsiusA heatwave is expected to sweep across southern Europe in the coming days, with temperatures reaching up to 40 degrees Celsius in Seville, Spain. The heat is forecasted to reach 36–38 degrees Celsius in Paris and 32–35 degrees Celsius in cities like Prague and Budapest. Authorities in France are considering postponing exams due to the extreme heat. Concerns have been raised about infrastructure not being built to withstand such high temperatures.
Bias read (Center): The article provides factual information about an upcoming heatwave without taking a stance or showing bias toward any political perspective. It reports on temperature forecasts and potential impacts but does not include opinionated language or one-sided sourcing.