ON
← Back to feed
ISCulture3 days ago

Vintage cars over the 100-year-old County Water Bridge

The article reports on an event where members of the Heldribílaklúbbi Skagafjarðar drove vintage cars over the historic Héraðsvatnabrú bridge to celebrate its 100th anniversary. The first car to cross was a 1930 Ford, built by Björn Sverrisson, a mechanic from Sauðárkrókur. The bridge, opened in July 1926, has been used as both a pedestrian and vehicle bridge since then. The event took place on June 17, and participants stopped at Furðuströnd, where Jón Ósmann, a ferryman, once traveled before the bridge was built.

Fyrstur til að fara yfir Héraðsvatnabrú í dag var Gamli Ford, árgerð 1930.

Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson

Félagar í Heldribílaklúbbi Skagafjarðar fylktu liði á fallegum vélfákum sínum í dag og óku yfir  gömlu Héraðsvatnabrúna við Vesturósinn. Tilefnið var 17. júní og 100 ára afmæli brúarinnar, sem tekin var í notkun í júlí árið 1926. Jafnlangt er síðan fyrsti bíllinn kom til Skagafjarðar.

Fornbílaeigendur í Skagafirði hafa lengi haft þann sið að viðra bíla sína á þjóðhátíðardeginum, sjálfum sér og ekki síst öðrum til yndisauka og ánægju. Að þessu sinni var ákveðið að fara akandi yfir gömlu brúna, sem öllu jafna er notuð sem göngu- og reiðbrú í dag. Gaf Vegagerðin heimild fyrir akstrinum.

Fyrstur bíla í dag yfir brúna var Gamli Ford, K-230, árgerð 1930, sem Björn heitinn Sverrisson, bílasmiður á Sauðárkróki, gerði upp á sínum tíma. Björn gerði upp fjölda merkilegra bíla en Fordinn er nú í eigu sonar hans, Sigurbjörns Björnssonar.

Áð á slóðum Jóns Ósmanns

Bílarnir hjá klúbbmeðlimum eru af ýmsum gerðum og stærðum, og aldurinn misjafn þó flestir séu komnir vel til ára sinna. En útlitið er betra en á mörgum nýrri bíla nútímans. Auk þess að aka yfir 100 ára Héraðsvatnabrúna var stoppað á Furðuströnd, við vesturósinn, þaðan sem ferjumaðurinn Jón Ósmann fór forðum daga á dragferju sinni áður en brúin kom til sögunnar.

Fjallað er ítarlega um þennan viðburð Heldribílaklúbbsins á vef héraðsfréttablaðsins Feykis . Og meðfylgjandi myndir tók Pétur Ingi Björnssonar Sverrissonar bílasmiðs.

Brúin yfir vesturós Héraðsvatna var vígð í júlí 1926, en var fánum prýdd fyrir hópaksturinn í dag og vel skreytt. Tindastóll í bakgrunni.

Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson

Brúin er notuð sem göngu- og reiðbrú í dag en núverandi brú er aðeins sunnar í ósnum.

Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson

Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson

Farþegar með fornbílunum klæddu sig sumir upp í tilefni 17. júní.

Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson

Bílarnir stoppuðu á Furðuströnd þar sem eru minjar eftir ferjumanninn Jón Ósmann, en hann ferjaði fólk yfir vesturósinn áður en Héraðsvatnabrúin kom til sögunnar 1926.

Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Vegagerðin

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
Vintage cars over the 100-year-old County Water Bridge

The article reports on an event where members of the Heldribílaklúbbi Skagafjarðar drove vintage cars over the historic Héraðsvatnabrú bridge to celebrate its 100th anniversary. The first car to cross was a 1930 Ford, built by Björn Sverrisson, a mechanic from Sauðárkrókur. The bridge, opened in July 1926, has been used as both a pedestrian and vehicle bridge since then. The event took place on June 17, and participants stopped at Furðuströnd, where Jón Ósmann, a ferryman, once traveled before the bridge was built.

Bias read (Center): The article covers a cultural event with no political implications. It provides factual information about the event, including details about the vintage cars, the history of the bridge, and the participants involved. There is no evident bias in the framing or sourcing.

Official sources cited

  • government Vegagerðin

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • governmentVegagerðin