Opið hús á 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar.
mbl.is/Anton Brink
Um 1.200 manns sóttu opið hús í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í dag í tilefni af 100 ára afmæli hennar.
Gestum gafst kostur á að skoða þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar auk margvíslegs búnaðar sem notaður er í starfseminni, þar á meðal báta, köfunar- og sprengjueyðingarbúnað, sjókort og ýmis mælitæki.
Þá kynntu einnig starfsemi sína Slökkviliðið sem mætti með sjúkrabíl, lögreglan með mótorhjól og Sjómælingar Íslands.
Fólk gat skoðað sprengjueyðingarbúnað.
mbl.is/Anton Brink
Fjölmenn og skemmtileg hátíð
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að hátíðin hafi verið fjölmenn og afar vel heppnuð.
„Það var mjög gaman að fá tækifæri til að opna dyrnar fyrir þjóðinni. Við erum ótrúlega þakklát fyrir mætinguna og þann velvilja sem Landhelgisgæslan finnur fyrir úr öllum áttum á þessu afmælisári,“ segir Ásgeir.
Sjómælingar Íslands kynntu starfsemi sína.
mbl.is/Anton Brink
Ásgeir Erlendsson segir að hátíðin hafi verið fjölmenn og afar vel heppnuð.
mbl.is/Anton Brink
Gestum gafst kostur á að skoða alls kyns búnað.
Ljósmynd/Ásgeir Erlendsson
mbl.is/Anton Brink
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →📄Source document: Ásgeir Erlendsson
1 reports
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter8 days ago Pictures: Open house on the birthday of the LandlordThe Icelandic Coast Guard opened its headquarters at Reykjavik Airport to celebrate its 100th anniversary. Approximately 1,200 people attended the event, where they were able to view various equipment used by the Coast Guard, including boats, diving gear, and firefighting equipment. The event also featured displays from the Fire Department, Police, and Iceland Marine Rescue. Ásgeir Erlendsson, an information officer for the Coast Guard, described the event as well-attended and successfully organized.
Bias read (Center): The article reports on a public celebration of the Icelandic Coast Guard's 100th anniversary. It provides factual details about the event, such as attendance numbers, activities offered, and quotes from an official. There is no evident ideological framing, biased language, or selective sourcing. The
Official sources cited
- organisation Ásgeir Erlendsson