ON
← Back to feed
ISPolitics2 days ago

Holding an official visit to the Faroe Islands

Iceland's President Halla Tómasdóttir and her spouse Björn Skúlason will conduct an official visit to the Faroe Islands from June 22 to 24. The visit includes meetings with the Faroese Prime Minister Beinir Johannesen and his wife Helena Johannesen. The purpose of the visit is to strengthen ties between Iceland and the Faroe Islands, focusing on areas such as maritime affairs, energy, innovation, and cultural matters. The schedule includes meetings at Tinganes, visits to various sites in Eysturoy and Borðoy, and a business meeting in Kvalsörk.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, munu halda í opinbera heimsókn til Færeyja dagana 22. til 24. júní.

Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að þar taki lögmaðurinn í Færeyjum, Beinir Johannesen, og eiginkona hans, Helena Johannesen, á móti forsetahjónum. Markmið heimsóknarinnar sé að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi landanna, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.

Dagskráin hefjist eftir hádegi mánudaginn 22. júní með fundi forseta Íslands og lögmanns Færeyja í Tinganesi í Þórshöfn. Á meðan heimsæki Björn Skúlason og Helena Johannesen Heima veitingahúsaklasann.

Í kjölfarið verði forsetahjónunum boðið til móttöku í Tinganesi ásamt ráðherrum færeysku ríkisstjórnarinnar og næst heimsæki forsetahjónin Løgtingið þar sem þingforsetinn, Johan Dahl, tekur á móti þeim. Dagskrá mánudagsins ljúki með hátíðarkvöldverði á Hotel Føroyar.

Á öðrum degi heimsóknarinnar fari forsetahjónin í ferð um Eysturoy og Borðoy. Þar verði vindorkuver SEV (rafmagnsveitu Færeyja), Eysturoyargöngin, MEST skipasmíðastöðin í Skála, ný sundlaug í Runavík og laxeldisfyrirtækið Bakkafrost heimsótt.

Eftir hádegi haldi forsetahjónin til Klaksvíkur þar sem haldið verður viðskiptaþing íslenskra og færeyskra fyrirtækja. Einnig heimsæki þau vinnustofu myndlistarmannsins Edwards Fuglø, róðrarklúbb Klaksvíkur og heimavistarskólann Rótina sem leggur áherslu á fræðslu um færeyska matargerð, handverk og sjálfbærni.

Á lokadegi heimsóknarinnar heimsæki þau nýsköpunar- og frumkvöðlamiðstöð Þórshafnar og Færeyjaháskóla. Heimsókninni ljúki um miðjan dag á gagnkvæmnismóttöku forsetahjóna í Norræna húsinu í Þórshöfn.

Read the full article at Vísir
Source document: Statement from the Icelandic Presidency

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
Holding an official visit to the Faroe Islands

Iceland's President Halla Tómasdóttir and her spouse Björn Skúlason will conduct an official visit to the Faroe Islands from June 22 to 24. The visit includes meetings with the Faroese Prime Minister Beinir Johannesen and his wife Helena Johannesen. The purpose of the visit is to strengthen ties between Iceland and the Faroe Islands, focusing on areas such as maritime affairs, energy, innovation, and cultural matters. The schedule includes meetings at Tinganes, visits to various sites in Eysturoy and Borðoy, and a business meeting in Kvalsörk.

Bias read (Center): The article provides a factual account of an official state visit without apparent ideological framing. It focuses on the itinerary and stated objectives of the visit, which are neutral in tone and do not exhibit clear bias toward any political side.

Official sources cited

  • government Statement from the Icelandic Presidency

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • governmentStatement from the Icelandic Presidency