Þessar myndir af Poya Shafie hafa væntanlega ekki horft til málsbóta hans hjá dómurum Héraðsdóms Södertörn í Svíþjóð þar sem hann hlaut í morgun lífstíðardóm fyrir fjölda afbrota sem hægri hönd „kúrdíska refsins“ Rawa Majid sem ræður lögum og lofum hjá hinu alræmda glæpagengi Foxtrot í Svíþjóð.
Ljósmynd/Sænska lögreglan
Poya Shafie, hægri hönd Rawa Majid, „kúrdíska refsins“ svokallaða og æðsta stjórnanda sænsku undirheimaklíkunnar Foxtrot, hlaut í morgun lífstíðardóm fyrir Héraðsdómi Södertörn í Svíþjóð fyrir fjölda brota tengdum átökum Foxtrot við Dalennätverket svokallaða.
Meðal þeirra brota sem Shafie, sem í undirheimum Svíþjóðar gengur undir nafninu „Hamado“, hlaut dóm fyrir eru tvær hvatningar til tilraunar til manndráps, samverknaður við tilraun til manndráps og samverknaður við að leggja á ráðin um manndráp í tveimur tilfellum.
Auk þessa var honum gefin að sök mismunandi aðild að fjölda ofbeldisverka, þar á meðal skot- og sprengjuárása í Sundsvall, Enskededalen, Skarpnack og Vallingby árið 2023 en það sama ár var Shafie handtekinn í Írak eftir að hann kom þangað frá Tyrklandi á fölsku vegabréfi. Sat hann í fangelsi í Írak þar til í fyrra þegar samningur um framsal sakamanna komst á milli Íraks og Svíþjóðar og framsal átti sér stað. Sat Shafie í gæsluvarðhaldi í Svíþjóð fram að þeim réttarhöldum sem nú var að ljúka.
Shafie var handtekinn við komu til Íraks árið 2023 þangað sem hann kom á fölsku vegabréfi frá Tyrklandi og var hann framseldur til Svíþjóðar í fyrra eftir að Írak og Svíþjóð gerðu með sér framsalssamning.
Ljósmynd/Sænska lögreglan
Stórátak sænsku lögreglunnar skilar sér
Yfirgaf hann Svíþjóð á sínum tíma árið 2022 og stjórnaði óhæfuverkum Foxtrot frá Tyrklandi eins og yfirboðari hans, Rawa Majid, sem þá dvaldist þar einnig. Vitað er þó að þeir voru saman í Írak árið 2022 þar sem mynd af þeim þaðan er meðal gagna málsins.
Nokkrir afbrotamenn, sem sænska lögreglan hefur verið á eftir en hafa farið huldu höfði erlendis, hafa verið handteknir og framseldir til Svíþjóðar síðustu mánuði í kjölfar þess er sænsk stjórnvöld gerðu gangskör að því að fá þá til landsins svo rétta mætti yfir þeim.
Íraski Kúrdinn Rawa Majid, „kúrdíski refurinn“, er einn þeirra afbrotamanna sem skákað hafa í skjóli erlends ríkisborgararéttar og þannig komist undan framsali á meðan þeir sóla sig í Tyrklandi og víðar og stjórna stórafbrotum á sænskri grundu, meðal annars árásum á sendiráð að undirlagi írönsku klerkastjórnarinnar. Majid gengur enn laus en víst er talið að hann haldi sig nú í Íran og ljóst að á brattann verður að sækja fyrir Svía að ná í skott refsins sem gengur erinda klerkastjórnarinnar þegar hún telur sig þurfa að velgja einhverjum undir uggum, jafnvel láta myrða fólk, í Svíþjóð.
Ljósmynd/Sænska lögreglan
Eins og mbl.is hefur fjallað um í vetur sendu Svíar hóp lögreglumanna, sem Gunnar Strömmer dómsmálaráðherra fór í nokkrum tilfellum með, til að ræða við lögregluyfirvöld í Marokkó, Tyrklandi og fleiri ríkjum og koma á samningum um samstarf í þeim efnum að handsama innstu koppa í búri glæpagengja á sænskri grundu og fá þá framselda sem fram að því hafði ekki verið auðsótt þar sem yfirvöld ríkjanna tregðuðust við að framselja brotamennina í ljósi ríkisfangs þeirra í viðkomandi ríkjum sem margir þeirra hafa ásamt sænsku ríkisfangi.
SVT
TV4
Aftonbladet
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →