Til átaka kom á bílastæðinu við Moraberg-verslunarmiðstöðina í Södertälje í morgun og var maður þar með hamar á lofti þegar lögreglu bar að garði.
Ljósmynd/Wikipedia.org/Udo Schröter
Maður hlaut meiðsli í Södertälje, suðvestur af Stokkhólmi í Svíþjóð, í morgun eftir að deilu viðskiptavinar verslunarmiðstöðvarinnar Moraberg lyktaði með handalögmálum á bílastæði þar fyrir utan og var annar deiluaðila með hamar á lofti þegar lögregla kom á vettvang.
„Annar þeirra hélt á hamri,“ segir Ola Österling upplýsingafulltrúi lögreglu í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT af því þegar lögregla kom á vettvang á ellefta tímanum í morgun að staðartíma.
Hringdi í ættingja sinn
„Viðskiptavinur lenti í deilu við kassadömuna og hringdi svo í ættingja sinn sem kom á vettvang og kom þá til slagsmála á bílastæðinu,“ segir Österling enn fremur og kveður ekki vitað hvort sá, sem áverkana hlaut, hafi þurft að leita undir læknishendur í kjölfarið.
Segir hann lögreglu telja að minnsta kosti annan þeirra tveggja, sem lentu í handalögmálum, liggja undir grun um líkamsárás.
SVT
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →📄Source document: Ola Österling, Police Spokesperson
1 reports
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago Got into a dispute with a cashierA man was injured in a dispute between a customer and an employee at the Moraberg shopping center in Södertälje, Sweden. The incident occurred early Monday when police arrived at the scene. One of the individuals involved had a hammer in the air when the police arrived. According to Ola Österling, a spokesperson for the police, the customer was involved in a dispute with the store employee and then called their partner, who arrived and caused a physical altercation at the parking lot. Österling stated that at least one of the two individuals involved in the fight is suspected of assault.
Bias read (Center): The article reports on a local incident involving a physical altercation at a shopping center. It provides factual details without apparent ideological framing or biased language. The content does not involve political figures, policies, or contentious issues, making it apolitical in nature.
Official sources cited
- government Ola Österling, Police Spokesperson