Heimir Örn Árnason skrifar
18. júní 2026 08:32
Í dag, fimmtudaginn 18. júní 2026, verður tekin fyrsta skóflustungan að nýrri legudeild Sjúkrahússins á Akureyri. Það er stór stund fyrir sjúkrahúsið, starfsfólkið og samfélagið allt. Um leið er þetta áfangi sem minnir okkur á hversu mikilvægt það er að byggja upp sterka heilbrigðisþjónustu víðar en á höfuðborgarsvæðinu.
Öflug heilbrigðisþjónusta skiptir máli
Sjúkrahúsið á Akureyri er ein af grunnstoðum heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fyrir íbúa Norðurlands er það ekki aðeins stofnun eða vinnustaður, heldur öryggisnet sem skiptir máli þegar mest á reynir. Það skiptir máli fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og byggðaþróun að fólk geti treyst því að öflug heilbrigðisþjónusta sé til staðar um land allt.
En hlutverk SAk nær einmitt langt út fyrir Norðurland. Sjúkrahúsið gegnir mikilvægu hlutverki sem varaspítali Landspítalans og er þannig hluti af öryggiskerfi þjóðarinnar allrar. Sterkt heilbrigðiskerfi þarf traustar stoðir á fleiri en einum stað. Þar hefur SAk lykilhlutverki að gegna.
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og sveitarfélögin innan þeirra hafa lengi talað fyrir því að SAk fái þann stuðning sem þarf til að standa undir þessu hlutverki. Ársþing samtakanna hefur ítrekað undirstrikað mikilvægi þess að tryggja örugga mönnun, traustan rekstrargrundvöll og fullnægjandi húsnæði og búnað til framtíðar. Þar hefur einnig verið minnt á að efling SAk er ekki aðeins heilbrigðismál heldur líka byggðamál, atvinnumál og þjóðaröryggismál.
Betri aðstæður fyrir sjúklinga og starfsfólk
Ný legudeild mun bæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks til muna. Hún skapar betri ramma um þjónustu, umönnun og faglegt starf sem fer fram alla daga ársins. Slík uppbygging snýst ekki aðeins um húsnæði heldur líka um gæði, öryggi og mannúð.
Það má heldur ekki gleyma því að Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús. Þar mótast framtíð heilbrigðisþjónustunnar í gegnum menntun, þjálfun og faglega þróun. Góð aðstaða eykur möguleika á að laða að og halda í ungt og vel menntað fólk sem sér framtíð sína á Norðurlandi. Mikil sóknarfæri felast einnig í að byggja upp og efla það hlutverk SAk og verða þau enn skýrari með uppbyggingu nýja húsnæðisins.
Höldum áfram að byggja upp
Fyrsta skóflustungan er táknræn, en hún markar jafnframt raunverulegt upphaf nýs kafla. Það er óhætt að segja að við fögnum öll þessum áfanga af heilum hug. Þetta er mikilvægt skref fyrir Akureyri, fyrir Norðurland og fyrir heilbrigðisþjónustu í landinu öllu.
Nú skiptir máli að halda áfram af festu. Uppbygging SAk er fjárfesting í framtíðinni og þá sérstaklega í öryggi íbúa, sterkari byggðum og heilbrigðiskerfi sem þjónar landinu öllu.
Höfundur er formaður Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).
Read the full article at Vísir →📄Source document: Health Minister's Statement
3 reports
RÚV FréttirState / PublicCenter3 days ago 13 thousand square meters of new construction by the SAK giant 2030A new building with an area of 13,600 square meters is planned to be constructed south of the hospital in Akureyri. The construction is expected to take more than four years and will be completed by 2030. The new building will include departments for orthopedics, neurology, and psychiatry, along with support areas and day care services for psychiatric patients. The current buildings will undergo minor modifications to accommodate the new structure and changes in patient intake. Existing parking spaces will need to be relocated and expanded due to increased building size.
Bias read (Center): The article provides factual information about a planned healthcare infrastructure project without any apparent ideological framing, biased language, or selective sourcing. It focuses on technical details of the construction and does not present any political opinions or controversial perspectives.
Official sources cited
- government Health Minister's Statement
- government Construction Plans for New Hospital Building
VísirIndependentCenter3 days ago A major step for the Nordic region and the country as a wholeThe first surgery at the new hospital department in Akureyri marks an important milestone for the hospital, its staff, and society. The hospital plays a crucial role in providing healthcare services for residents of North Iceland and beyond. It serves as a regional emergency hospital and is part of the national healthcare system. Local community organizations have long advocated for the hospital to receive the necessary support to fulfill its vital role.
Bias read (Center): The article focuses on the opening of a new hospital department and highlights its importance for public health without taking a political stance. It emphasizes the hospital's role in the healthcare system and mentions local advocacy but does not present any biased language, one-sided sourcing, or o
Official sources cited
- organisation SSNE (Community Organizations and Industrial Development in North Iceland)
RÚV FréttirState / PublicCenter5 days ago Transfer all hospital operations to Akureyri from KristianiAll staff of the hospital in Akureyri have been moved out of the building at Kristnes Hospital due to mold issues. The hospital has been operating out-patient and geriatric departments at the facility but detailed analysis of the building indicates it is unsuitable for continued operations. Mold was discovered in the building in early March, highlighting pre-existing internal problems. Plans are underway to relocate day and walking care services to new leased premises of 815 square meters in Akureyri, with operations expected to start in September. Twenty patients will be able to receive daily
Bias read (Center): The article reports on a health issue affecting a public institution without taking a stance or using biased language.