Halla Tómasdóttir á Austurvelli í dag.
mbl.is/Anton Brink
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi í dag fjórtán manns íslensku fálkaorðunni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Meðal þeirra sem fengu orðuna er Hrefna Sætran matreiðslumeistari, Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfubolta, og Þorsteinn Eggertsson textahöfundur.
Forsetinn sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.
Orðuhafar íslensku fálkaorðunnar.
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Eftirfarandi hlutu fálkaorðuna:
Andri Snær Magnason rithöfundur fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
Anna Björnsdóttir kórstjóri fyrir störf að mennta-, menningar- og félagsmálum í heimabyggð.
Ásdís Thoroddsen leikstjóri fyrir framlag til miðlunar á íslenskri menningararfleifð.
Ásgeir Haraldsson, barnalæknir og prófessor emeritus, fyrir fjölþætt störf á sviði barnalækninga og ónæmisfræða.
Hákon Ingvi Hansson dýralæknir fyrir framlag til atvinnumála og samfélagsmála í heimabyggð.
Hrefna Sætran matreiðslumeistari fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri.
Hreinn Valdimarsson hljóðmeistari fyrir framlag til hljóðvinnslu og varðveislu hljóðminja.
Karólína Elísabetardóttir bóndi fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu í sauðfé.
Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, kennari og fornfræðingur, fyrir framlag í þágu menntamála og klassískrar menntunar.
Miyako Þórðarson prestur fyrir störf í þágu heyrnarlausa.
Ólafur Arnalds jarðvegsfræðingur fyrir frumkvöðlastarf í rannsóknum á íslenskri náttúru og miðlun þeirra.
Ólafur Ólafsson, fyrirliði og körfuknattleiksmaður, fyrir forystuhlutverk fyrir sína heimabyggð á krefjandi tímum.
Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins - íslensk strandmenning, fyrir störf í þágu íslenskrar þjóðmenningar.
Þorsteinn Eggertsson textahöfundur fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →