Donald Trump sætir harðri gagnrýn gagnvart samkomulagii sem er ætlað að binda á stríðið.
AFP
Bandarískir fjölmiðlar virðast einróma í fordæmingu sinni á tilslökunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Íran í samkomulagi sem ætlað er að binda enda á stríðið.
Trump undirritaði viljayfirlýsingu í Frakklandi í gær, með það að markmiði að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum, sem hefur hrist upp í heimshagkerfinu.
En þegar Trump snýr aftur til Bandaríkjanna í dag er líklegt að veruleikinn blasi við honum, þar sem búist er við harðri gagnrýni bæði frá andstæðingum og stuðningsmönnum átakanna.
Veitir Íran gríðarlegan fjárhagslegan ávinning
Jafnvel Fox News, fréttastöðin sem venjulega er hliðholl Trump, vitnaði í gagnrýnendur sem sögðu samkomulagið veita Íran „gríðarlegan fjárhagslegan ávinning“ án þess að krefjast þess að kjarnorkuáætlun landsins yrði lögð niður.
Samkomulagið er aðeins bráðabirgðafyrirkomulag sem ætlað er að gefa tíma til að hefja ítarlegar samningaviðræður um mun flóknara mál, langtímastjórn á kjarnorkuáformum Írans, en Bandaríkjamenn hafa lengi grunað Írana um að reka leynilega sprengjugerðaráætlun.
Þegar endanlegt samkomulag næst um kjarnorkuáætlun Írans munu Bandaríkin, samkvæmt samningnum, greiða fyrir losun 300 milljarða dala endurreisnarsjóðs sem studdur er af þjóðum á svæðinu.
„Þrátt fyrir að stjórnvöld lýsi samkomulaginu sem tímamótum hafa gagnrýnendur haldið því fram að tilslakanirnar sem Íran eru boðnar vegi mun þyngra en skuldbindingarnar sem fengust í staðinn,“ sagði Fox.
„Hvíta húsið samþykkti þessa framlengingu á vopnahléi sem uppfyllti engin af markmiðum þess fyrir stríð, en veitti Íran um leið gríðarlegar fjárhagslegar tilslakanir,“ segir bandaríska sjónvarpsstöðin MS NOW.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →