ON
← Back to feed
ISOther6 days ago

A doctor profile fell when trying to be uncool

Gudaf Tsegay, a freestyle wrestler from Ethiopia, has been banned for four months by the International Olympic Committee (IOC) after testing positive for Letrozole, a drug primarily used in breast cancer treatment but also used to prevent estrogen and combat side effects of anabolic steroids. Tsegay, who is 29 years old and has won world championships and Olympic medals, stated she took the medication as advised by her doctor to increase her fertility. She explained that she was pregnant and had taken Letrozole according to her medical advice.

Frjálsíþróttakonan Gudaf Tsegay hefur verið dæmd í fjögurra mánaða keppnisbann af Lyfjaeftirliti alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, AIU, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi utan keppni í desember 2025.

AIU tilkynnti á föstudag að prófið hefði greint umbrotsefni Letrozole, sem er fyrst og fremst notað við meðferð á brjóstakrabbameini en getur einnig verið notað til að hindra estrógen og vinna gegn aukaverkunum vefaukandi stera. Letrozole er einnig frjósemislyf sem getur örvað egglos með því að lækka estrógenmagn tímabundið.

Hin 29 ára gamla Tsegay hefur tvisvar orðið heimsmeistari og er einnig Ólympíuverðlaunahafi frá leikunum í Tókýó 2021.

Millivegalengdarhlauparanum frá Eþíópíu var sjálfri tilkynnt um jákvæða sýnið 26. janúar á þessu ári og lagði hún strax daginn eftir fram læknisfræðileg gögn og skýringar þar sem hún útskýrði hvers vegna Letrozole og umbrotsefni þess hefðu getað valdið jákvæðri niðurstöðu úr sýni hennar.

Hún útskýrði síðar í yfirlýsingu á föstudag, í kjölfar skýrslu AIU, að hún hefði staðfest að hún væri þunguð og hefði tekið Letrozole samkvæmt lyfseðli frá lækni.

„Ég tók Letrozole til að auka frjósemi mína, eins og læknirinn minn ávísaði,“ sagði Tsegay. „Sem stendur gengur meðgangan fullkomlega og ég vonast til að snúa aftur til íþrótta um leið og barnið mitt er fætt. Takk, allir aðdáendur, fyrir ást ykkar, ég sakna ykkar allra. Ég kann einnig að meta skilning og stuðning AIU.“

Þar sem hún sótti ekki um undanþágu fyrirfram var beiðni hennar um að fá lyfið samþykkt eftir á hafnað. Þess vegna er hinni 29 ára gömlu íþróttakonu refsað fyrir brot á reglum. Refsingin er þó stutt vegna þess að hún játaði brot á reglugerðinni og hefði hvort eð er fengið leyfi til að nota lyfið ef hún hefði aðeins sótt um í tæka tíð.

Keppnisbann hennar hófst 1. júní, þann dag sem hún samþykkti sáttina, og lýkur 30. september.

Tsegay er heimsmethafi innanhúss í 1500 metra hlaupi og átti áður heimsmetið í 5000 metra hlaupi.

Tsegay er heimsmeistari 2022 í 5000 metra hlaupi og heimsmeistari 2023 í 10.000 metra hlaupi. Hún hlaut bronsverðlaun í 1500 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu 2019, silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu 2022 og bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020 í 5000 metra hlaupi.

Hún hefur tvívegis unnið til verðlauna í 1500 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu innanhúss, hlaut brons árið 2016 og gull árið 2022.

Read the full article at Vísir
Source document: International Olympic Committee (IOC)

1 reports

VísirIndependentCenter6 days ago
A doctor profile fell when trying to be uncool

Gudaf Tsegay, a freestyle wrestler from Ethiopia, has been banned for four months by the International Olympic Committee (IOC) after testing positive for Letrozole, a drug primarily used in breast cancer treatment but also used to prevent estrogen and combat side effects of anabolic steroids. Tsegay, who is 29 years old and has won world championships and Olympic medals, stated she took the medication as advised by her doctor to increase her fertility. She explained that she was pregnant and had taken Letrozole according to her medical advice.

Bias read (Center): The article presents factual information without apparent bias. It includes direct quotes from Tsegay and mentions her explanation for taking the medication. The content does not show clear favoritism toward any political stance or ideology.

Official sources cited

  • organisation International Olympic Committee (IOC)

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • organisationInternational Olympic Committee (IOC)