Þegar María Líf Piano var ung var vinsælt að horfa á kennslumyndbönd á Youtube um hvernig ætti að farða sig. Þar kviknaði áhuginn á snyrtivörum.
Ljósmynd/Aðsend
María Líf Piano er þriggja barna móðir í fæðingarorlofi. María sem er menntaður förðunar- og naglafræðingur fékk snemma áhuga á snyrtivörum og segir að hún elski að prófa nýjar snyrtivörur.
„Eins og margar stelpur á mínum aldri byrjaði ég ung að horfa á YouTube þegar förðunarkennslumyndbönd og snyrtivöruefni voru allsráðandi. Mér fannst þetta strax ótrúlega spennandi og áhuginn hefur bara vaxið með árunum. Frá því að hafa gaman af förðun yfir í að hafa mikinn áhuga á húðumhirðu, vörum og öllu sem tengist snyrtivöruheiminum,“ segir María þegar hún er spurð hvenær áhuginn á snyrtivörum kviknaði.
Hvernig hugsar þú um húðina?
„Ég passa eins og ég get að snerta andlitið mitt ekki að óþörfu, nota silkikoddaver, þríf burstana mína reglulega. Ég drekk nóg af vatni, reyni að fara strax í sturtu eftir æfingu svo svitinn liggj ekki á húðinni. Það sama á við með líkamann ég nota alltaf krem eftir sturtu, skrúbba tvisvar til þrisvar í viku og er að reyna að bera sólarvörn líka þegar ég man.“
Ertu með húðrútínu á morgnana?
„Já, ég er með morgunrútínu sem ég elska. Ég byrja yfirleitt á micellarvatninu frá Bioderma, síðan nota ég Hyaluronic Acid frá The Ordinary og Rice Lipids Ectoin Microemulsion líka frá The Ordinary — húðin mín elskar það combo. Ég enda svo alltaf á góðu rakakremi og sólarvörn frá sama merki. Mér finnst best þegar rútínan er einföld en samt virkilega rakagefandi og nærandi fyrir húðina.“
María byrjar daginn á því að nota micellervatn frá Bioderma.
María notar meðal annars Hyaluronic Acid frá The Ordinary. Hún notar vöruna bæði kvölds og morgna.
En á kvöldin?
„Á kvöldin er rútínan mjög svipuð og á morgnana, nema ef ég er máluð þá byrja ég alltaf á Cleansing Balm frá Clinique til að taka farðann almennilega af. Síðan fer ég í gegnum sömu húðumhirðu og á morgnana. Ég er líka nýlega byrjuð að nota retinol tvisvar í viku og er nú þegar farin að sjá mjög góðan mun á húðinni.“
María notar faraðhreinsinn Cleansing Balm frá Clinique á kvöldin.
Hvað er alltaf að finna í snyrtibuddunni þinni?
„Ég er alltaf með augnhárabrettara og bronzer.“
María er alltaf með augnhárabrettara í snyrtibuddunni.
Hvernig farðar þú þig dagsdaglega?
„Ég mála mig ekki á hverjum degi en svona mitt go to er Bronzing-gel, hyljari, krem bronzer og kinnalitur. Núna er Strobe Beam Bronzelighter og Strobe Beam Liquid Blush frá MAC í uppáhaldi. Ég nota létt púður yfir T svæðið, glært gel á augabrúnirnar, púður bronzer yfir allt andlitið - því meira því betra. Ég nota varablýant frá MAC í litnum WHIRL. Ég bretti augnhárin og nota vatnsheldan maskara svo augnhárin haldist upprétt.“
Strobe Beam Bronzelighter frá MAC er í miklu uppáhaldi hjá Maríu.
María notar líka Strobe Beam Liquid Blush þegar hún málar sig. Akkúrat núna er þessi vara í miklu uppáhaldi.
En þegar þú ferð eitthvað fínt?
„Þá geri ég það sama en dunda mér létt við það og bæti við brúnum liner, ég nota Costa Riche frá MAC og set gloss á varirnar.“
María notar varablýant frá MAC í litnum WHIRL þegar hún gerir sig til. Hún segist þó ekki mála sig alla daga.
Hefur þú glímt við húðvandamál og hvernig hefur þú tæklað það?
„Ég fékk fór í gegnum þetta hefðbundna unglingabólutímabil þegar ég var yngri, en það varð sem betur fer aldrei mikið vandamál hjá mér. Ég hef samt alltaf þurft að passa vel upp á húðina og lært með tímanum hvað hentar henni best.“
Hvert er besta förðunartrix sem þú hefur lært?
„Að nota brúnan eða svartan liner í votlínuna, það lætur augnhárin líta út fyrir að vera þykkari.“
Þegar María gerir sig til notar hún mikið af púður bronzer yfir allt andlitið sem hún gerir gæfumuninn. Hún notar líka vatnsheldan maskara og augnhárabrettara.
Ljósmynd/Aðsend
Áttu uppáhaldssnyrtivöru?
„Cloudplay-kinnalitur frá MAC í litnum Blush Please.“
Er eitthvað á óskalistanum?
„Það er Etheral eyes palletan frá Makeup By Mario og svo allt nýtt snyrtidór bara, ég elska að prufa nýjar vörur.“
Maríu langar í nýja augnskugga. Hún er skotin í þessari pallettu frá Makeup By Mario.
Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is →