Hæstiréttur hefur mildað refsingu Þorsteins Hermanns Þorbjörnssonar sem banaði sambýliskonu sinni á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl 2024 og sakfellir hann fyrir stórfellt gáleysi sem leiddi til andláts og stórfellt brot í nánu sambandi en ekki manndráp. Hæstiréttur telur ekki hægt að sanna að Þorsteinn hafi ætlað að bana sambýliskonu sinni þótt svo að árásin hafi verið ofsafengin.
Í Landsrétti var Þorsteinn sakfelldur fyrir manndráp og hlaut sextán ára fangelsisdóm en í Héraðsdómi Norðurlands eystra var hann ekki dæmdur fyrir manndráp heldur ofbeldi í nánu sambandi sem leiddi til dauða og aðeins dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. Sá dómur var harðlega gagnrýndur, til dæmis af framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins.
Varhugavert að gera ráð fyrir ásetningi
Beiðni Þorsteins um að áfrýja til Hæstaréttar var samþykkt í febrúar á þessu ári. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að dómstóllinn staðfesti niðurstöðu Landsréttar um að Þorsteinn hefði banað sambýliskonu sinni með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Hæstiréttur telji hins vegar varhugavert að gera ráð fyrir því að Þorsteinn hafi ætlað að bana sambýliskonu sinni, það hafi verið ásetningur um það, og því miði Hæstiréttur við að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða og heimfærir brotið til 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga.
Í beiðni Þorsteins til Hæstaréttar voru, til dæmis, gerðar athugasemdir við nákvæmi ákæru en Hæstiréttur segir að ekki verði séð að ákæruvaldið hafi getað skilgreint með nákvæmari hætti atlögu Þorsteins gegn konu sinni og hvaða aðferðum hann beitti til að valda henni einstökum áverkum.
„Lýsingu á þeirri háttsemi sem ákærða er gefin að sök í kafla I í ákæru er því þannig háttað að hann gat ráðið af henni hvaða refsiverðu háttsemi hann væri sakaður um og hvaða ákvæði refsilaga hann væri talinn hafa brotið. Gat ákærða ekki dulist að þar væri lýst lífshættulegri atlögu sem auk annars rauf efri garnahengisbláæðina sem leiddi til blæðingar inn í kviðarhol og banaði brotaþola. Verður ekki séð að vörnum ákærða hafi verið áfátt vegna þessa. Þá hefur ákærði engin rök fært fyrir því í hverju skorti á skýrleika í kafla II í ákæru,“ segir í niðurstöðu og að því meti dómurinn að ákæra í málinu fullnægi kröfum um skýrleika.
Notaði ekki vopn
Eins og fram kom að ofan komust Héraðsdómur og Landsréttur að mismunandi niðurstöðu um heimfærslu á broti Þorsteins til refsiákvæða þó svo að á báðum dómstigum væri byggt á því að sambærileg atburðarás hefði átt sér stað. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að þó svo að bæði Héraðsdómur og Landsréttur leggi framburð réttarlækna til grundvallar því hvernig Þorsteinn stóð að árás sinni og hvaða svæði líkama brotaþola urðu fyrir henni séu dregnar af því mismunandi ályktanir og komist að öndverðri niðurstöðu um sönnun á huglægri afstöðu ákærða til afleiðinga árásarinnar.
Þó svo að árásin hafi verið ofsafengin og, meðal annars, beinst að kviði hennar hafi vopni eða öðrum utanaðkomandi hlut ekki verið beitt við árásina og árásin ekki virst hafa beinst sérstaklega að því að teppa öndunarveg brotaþola.
Stórfellt gáleysi frekar en manndráp
Þorsteinn hafi beitt konuna afar grófu ofbeldi um langa hríð en ekki sé hægt að draga „haldbærar ályktanir um sérstakan ásetning ákærða til manndráps umrædda nótt“.
Engin vitni séu að árásinni, aðdraganda hennar eða eftirmálum og því sé ekki hægt að draga afdráttarlausar ályktanir um ásetning hans til manndráps og því sé ekki hægt að fullyrða að hann hafi haft ásetning um að bana sambýliskonu sinni.
„Verður þess í stað að miða við að um hafi verið að ræða stórfellt gáleysi ákærða til afleiðinga verknaðarins sem lyktaði með andláti brotaþola,“ segir í dómi. Hægt er að skoða dóminn hér en þar er einnig fjallað um saknæmi mannsins sem er greindur með heilabilun. Dómurinn taldi hann þó sakhæfan og vísaði til þess að hann hefði alls ekki verið ófær um að stjórna gjörðum sínum. Hann hafi drukkið töluvert af áfengi og beitt konu sína ofbeldi við þær aðstæður.
Read the full article at Vísir →📄Source document: Supreme Court of Iceland→6 reports
VísirIndependentCenter3 days ago There was no intention to kill the female companionThe Supreme Court has reduced the conviction of Thorstein Hermann Thorbjornson, who killed his girlfriend at their home in Akureyri in April 2024. The court found him guilty of grievous bodily harm leading to death and serious injury in a close relationship but not murder. The court did not find sufficient evidence to prove that Thorstein intended to kill his girlfriend, despite the attack being premeditated. Thorstein was initially sentenced to 16 years in prison by the District Court of North Iceland for murder, but he was acquitted of murder and only convicted of assault resulting in death,
Bias read (Center): The article presents factual information about legal proceedings without overtly favoring any side. It reports on the court's decision and the differing sentences from lower courts without using emotionally charged language or selectively omitting perspectives.
Official sources cited
- court Supreme Court ruling
RÚV FréttirState / PublicCenter3 days ago Shows no sign of remorse for killing his wifeThe Supreme Court sentenced Thorstein Hermann Thorbjornsson to 14 years in prison for killing his wife and for domestic abuse. The court found no signs of premeditation and stated that the murder was due to an impulsive act during an episode of domestic violence. The case had previously resulted in different verdicts at lower courts, with some finding him guilty of manslaughter by negligence and others not finding intent. Experts noted that Thorstein was diagnosed with Alzheimer's but indicated that his condition did not prevent him from controlling his actions.
Bias read (Center): The article presents factual information about a legal case without apparent ideological framing. It reports on the court's decision, previous rulings, and expert opinions neutrally, without emphasizing any particular political perspective.
VísirIndependentCenter3 days ago It's like when people try to get out of church.The article discusses the ongoing legal proceedings against Ming Ting Mancel, who has been charged with murder in the Edition case. According to medical experts, her daughter, Catherine, showed signs of chloroform exposure and suffocation. The prosecution claims that Ming Ting and her husband, Emeric Mancel, restrained their daughter, choked her, and stabbed her twice in the chest, leading to her death. In contrast, Ming Ting has stated that the family intended to commit suicide at the hotel room on June 14, 2025, and that she held her daughter while Emeric attacked her before they placed her尸
Bias read (Center): The article presents both the prosecution's allegations and the defendant's defense without overtly favoring either side. It includes details from the legal process and quotes from the accused, maintaining a balanced presentation.
Official sources cited
- statement Medical Expert Testimony
RÚV FréttirState / PublicCenter5 days ago Gufunesi's case appealed to the Supreme CourtThree individuals involved in the Gufunes case have applied to the Supreme Court for a review of their sentences. The applicants include Stefán Blackburn and Lúkas Geir Ingvarsson, both of whom received 16-year sentences for murder, and a woman who received six months of probation for involvement in a sexual assault. The District Court reduced the sentences of Stefán and Lúkas to 17 years, but they had previously served 17 years in prison. The woman was acquitted by the District Court. A fourth individual, Matthías Björn Erlingsson, received a 12-year sentence, and his defense confirmed that a
Bias read (Center): The article presents factual information about legal proceedings without apparent ideological framing or biased language. It reports on court decisions and appeals without taking a stance or emphasizing particular viewpoints.
Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter5 days ago Three Appeals to the Supreme CourtThree individuals involved in the so-called 'Gufunes case' have submitted appeals to the Supreme Court. The accused, Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson, and the woman who was charged, have appealed the verdict from the District Court. Matthías Björn Erlingsson, who received a twelve-year sentence, has decided not to appeal. His lawyer stated that the outcome of the District Court was unsatisfactory and that Matthías will not seek permission for an appeal to the Supreme Court, thus concluding his involvement in the case.
Bias read (Center): The article presents factual information without overtly biased language or selective sourcing. It reports on legal proceedings and quotes legal representatives without apparent ideological framing.
RÚV FréttirState / PublicCenter6 days ago Tax refunds Co-operation back to the district courtThe Icelandic Supreme Court has overturned a ruling by the Reykjavik City Court regarding the competition authority's case against Samskipa. The Supreme Court ruled that the Reykjavik City Court had erred in dismissing the case due to procedural issues and noted that the competition authority's approach was lacking in proper documentation. The court emphasized that the connection between the allegations and the evidence provided by the complainants, along with references to legal rules, was sufficient for the defense to proceed with the case. The use of abbreviations in names within the claim,
Bias read (Center): The article presents a factual account of a legal decision without overtly favoring any side. It describes the court's reasoning and does not employ biased language or selective sourcing.