ON
← Back to feed
ISSports2 days ago

One rule for Messi and another for Themba Zwane

South African player Themba Zwane received a three-match ban for violent conduct during the opening match of the World Cup against Mexico. Zwane was sent off in the 84th minute after punching Mexican player Roberto Alvarado. The referee, Wilton Sampaio, did not see the incident in real time but reviewed it later. Zwane appears to have misunderstood the red card rules. The World Cup automatically bans players for one match, but FIFA imposed an additional two-match suspension due to the severity of the misconduct. South African officials criticized the decision, with coach Hugo Broos questioning

Suður-Afríkumaðuinn Themba Zwane fékk þriggja leikja bann og er líklega búinn að spila sinn síðasta leik á heimsmeistaramótinu.

Zwane fékk bannið fyrir ofbeldisfulla hegðun í opnunarleik HM gegn Mexíkó.

Zwane var vísað af velli á 84. mínútu í leiknum sem Mexíkó vann 2-0. Hann slengdi handleggnum í andlit Roberto Alvarado frá Mexíkó þegar hann var að fara fram hjá honum og dómarinn Wilton Sampaio var ekki í vafa eftir að hafa séð atvikið í endursýningu.

Zwane virtist lítið skilja í rauða spjaldinu. Brottvísun á HM gefur sjálfkrafa eins leiks bann, en þessum reynda leikmanni Suður-Afríku er refsað harðar af Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA.

‘There was not even VAR on Messi!’: SAFA to appeal Themba Zwane’s three-match ban https://t.co/9DM1D0QI6i

— News24 🇿🇦 (@News24) June 18, 2026

Aganefnd FIFA greinir frá því að hún hafi ákveðið þriggja leikja bann fyrir brot á 14. grein, 1. mgr. e-lið í reglum sambandsins. Hún felur í sér að minnsta kosti tveggja leikja bann fyrir alvarlega grófan leik.

Suður-Afríkumenn áfrýjuðu rauða spjaldinu og þriggja leikja banninu en Hugo Broos, aðalþjálfari liðsins, veltir því fyrir sér hvers vegna Lionel Messi hafi fengið aðra meðferð en miðjumaður hans. Ein regla er fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane eins og hann orðar það.

Messi slapp við hvers kyns refsingu fyrir að stíga aftan á fótlegg Aïssa Mandi í 3-0 sigri Argentínu á Alsír á þriðjudag. Broos harmar það sem hann telur vera tvískinnung í dómgæslunni.

— SuperSport Football ⚽️ (@SSFootball) June 17, 2026

„Ég vil ekki að Messi fái rautt spjald, leikmaður eins og hann á að vera inni á vellinum, við sáum öll hversu dásamlegur leikmaður hann er, en hver er munurinn?“ spurði Broos á blaðamannafundi á miðvikudag.

„Rauða spjaldið hjá Zwane er of strangt. Ég horfði aftur á atvikið með Themba og mér finnst þetta ekki hafa verið rautt spjald.“

„Þegar ég ber það saman við það sem gerðist í gær með Messi þá er ég svo sannarlega ekki sammála. Ég held að það hafi ekki einu sinni farið fram VAR-skoðun hjá Messi á meðan þetta atvik var skoðað.“

„Þegar maður horfir á atvikið, þá hindrar leikmaður Mexíkó minn leikmann,“ bætti Broos við. „Hann er ekki að horfa á boltann, hann er bara að halda í Themba.“

„Themba reynir að komast fram hjá honum, leggur handlegginn yfir öxlina á honum og fyrir það fær maður rautt spjald og þriggja leikja bann!?“

„Fyrirgefðu, en þetta er allt of strangt,“ sagði Broos.

Suður-Afríka heldur áfram keppni í A-riðli gegn Tékklandi í Atlanta á fimmtudag, áður en liðið lýkur riðlakeppninni gegn Suður-Kóreu í Guadalupe þann 24. júní.

"I don’t think it was a red card, when I see what happened with Messi yesterday, I don’t agree certainly not, there was not even a VAR with Messi."

Bafana Bafana head coach says the red card and three-match suspension of Themba Zwane is too severe – citing the incident of… pic.twitter.com/axad2OHEWZ

— iDiski Times (@iDiskiTimes) June 17, 2026

Read the full article at Vísir
Source document: FIFA Disciplinary Committee Statement

1 reports

VísirIndependentCenter2 days ago
One rule for Messi and another for Themba Zwane

South African player Themba Zwane received a three-match ban for violent conduct during the opening match of the World Cup against Mexico. Zwane was sent off in the 84th minute after punching Mexican player Roberto Alvarado. The referee, Wilton Sampaio, did not see the incident in real time but reviewed it later. Zwane appears to have misunderstood the red card rules. The World Cup automatically bans players for one match, but FIFA imposed an additional two-match suspension due to the severity of the misconduct. South African officials criticized the decision, with coach Hugo Broos questioning

Bias read (Center): The article reports on a sports-related disciplinary action without taking a stance on the fairness of the decision or favoring any particular side. It presents facts about the incident, the ruling, and reactions from officials.

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.