ON
← Back to feed
ISCulture3 days ago

"I am coming to you, O trembling and bewildered people"

Elín Sif Halldórsdóttir, also known as Elín Hall, performed a speech at Austurvöll in Reykjavik. The speech included poetic verses and was part of a larger event that began with a speech by President Hákon Martensson. Many people attended the event.

Elín Sif Halldórsdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Elín Hall.

mbl.is/Anton Brink

Elín Sif Halldórsdóttir, söng- og leikkona og fjallkona Reykjavíkur í ár, flutti texta eftir Braga Valdimar Skúlason í ávarpi sínu á Austurvelli í dag.

Textinn hefst á orðunum „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin. Mér rennur til skyldunnar brennandi blóð.“

Elín flutti ávarp á Austurvelli í dag og lokaði þar með hátíðarathöfninni sem hófst á ávarpi Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.

Fjöldi fólks lagði leið sína á Austurvöll.

mbl.is/Anton Brink

Ávarpið má sjá hér í heild sinni:

i

Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin. Mér rennur til skyldunnar brennandi blóð. Það berst í mér hjartað — og sálin. Ég bind þessa hugsun í braglínukrans — betra að muna’ hana svona — og býð þér að stíga í dulítin dans djarfra og hugbjartra vona.

ii

Líttu í kringum þig, líttu’ út á haf líttu á dali og firði. Líttu á allt það sem landið þér gaf — hvert lífsmark er mikils virði. Allt sem er framundan — þetta ert þú. Þetta er líf þitt og yndi. Verkefnið mitt er að byggja hér brú og bjóða fram skjól fyrir vindi.

iii

Því saga og menning er ofin í orð sem okkur er falið að geyma. Það er auðvelt að missa það allt fyrir borð — það er auðvelt að týna og gleyma. Ef samhengið hverfur er hugsunin grunn — hálfkveðin vísa í eyra. Fortíðin lagði þér fjársjóð í munn sem framtíð á skilið að heyra.

iv

Ég finn fyrir depurð, ég finn ég er þreytt, ég finn fyrir smitandi kvíða. Því mér þykir sannlega sjúklega leitt að sjá hvernig þér virðist líða. Skeytingarlítil og skapstór í senn, í skotgröfum dofin og klofin. Það verður brekka að þrauka hér enn ef þjóðfélagssáttin er rofin.

v

Ég veit þú þarft einungis örlítið pepp — það er í þig töluvert spunnið. Og ef ég við þusið og þvermóðsku slepp, þá er til mikils unnið. Ég er ekki neitt ef ég á ekki þig og alla þína bresti. Því þegar ég sé þig þá sé ég mig — þann sannleika færð þú í nesti.

vi

Mundu svo, þegar loks sólin er sest og sigrar þig höfugur draumur; samtal um mannúð og mildi er best — en mundu að tíminn er naumur. Ég kveð þig að endingu, kúnstuga þjóð — kannski þú hrökkvir af doða. Vonandi fetar þú farsældar slóð og ferð þér nú ekki að voða.

mbl.is/Anton Brink

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
"I am coming to you, O trembling and bewildered people"

Elín Sif Halldórsdóttir, also known as Elín Hall, performed a speech at Austurvöll in Reykjavik. The speech included poetic verses and was part of a larger event that began with a speech by President Hákon Martensson. Many people attended the event.

Bias read (Center): The article reports on a cultural event featuring a performance by an artist. There is no political commentary, framing, or emphasis that suggests a particular ideological leaning. The content is focused on the artistic and cultural aspects of the event without any political context or bias.