ON
← Back to feed
ISHealth3 days ago

Jeremy Clarkson has been diagnosed with malignant cancer

Jeremy Clarkson, host of 'Top Gear' and other British TV programs, recently revealed that he has been diagnosed with cancer. In recent episodes of his show 'Clarkson's Farm,' he shared this information with co-stars Charlie Ireland and Kaleb Cooper. Cooper expressed doubt about the diagnosis, prompting Clarkson to explain that he had known about the cancer since May. Clarkson mentioned that he underwent medical tests and that doctors described the cancer as aggressive but noted it was detected early. He stated that treatment would begin soon and that his body would need time to recover. During

Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi „Top Gear“ og annarra breskra sjónvarpsþátta, greindi frá því á dögunum að hann hefði verið greindur með illkynja krabbamein. Í síðustu tveimur þáttum fimmtu þáttaraðar „Clarkson's Farm“ sagði Clarkson meðleikurum sínum, Charlie Ireland og Kaleb Cooper, frá greiningunni.

Cooper, sem var augljóslega brugðið, hváði að það gæti ekki verið satt sem Clarkson segði og spurði hann svo hvar meinið væri. Clarkson sagði það ekki koma neinum við hvar það væri en útskýrði svo að hann hafi vitað af krabbameininu síðan í maí.

Veggspjöld fyrir Clarkson's Farm sjást í London 14. júní 2021 í London, Englandi. Getty

Hann sagði einnig að ástæðan fyrir því að hann „hvarf um daginn“ væri sú að hann fór til læknis og í vefjasýnatöku. Í kjölfarið hafi læknirinn sagt honum að krabbameinið væri „árásargjarnt“ en sem betur fer hefðu þeir uppgötvað það mjög snemma.

„Ég mun þurfa að fara í aðgerð og hún verður fljótt afgreitt, en líkaminn er óstarfhæfur í smá tíma,“ sagði Clarkson. Síðar í þættinu má sjá Clarkson í sjúkrarúmi, þar sem hann sagði að fimmta þáttaröð „Clarkson's Farm“ hefði byrjað „á því að ég var í sjúkrarúmi og nú erum við í lok fimmtu þáttaraðar og ég er aftur kominn í sjúkrarúm.“

Varaði aðdáendur við þættinum

Hann útskýrði að eitthvað af meðferðinni hefði „farið úrskeiðis“ og að ef næsta meðferðarlota hans yrði „árangursrík, þá sjáumst við í sjöttu þáttaröð, en ef ekki, þá gerum við það ekki.“

Hann hafði fyrir sýningu lokaþáttar fimmtu þáttaraðarinnar varað aðdáendur sína við því að það gæti reynst þeim mjög erfitt að sjá það sem fram kæmi.

Kynnar Top Gear, James May, Richard Hammond og Jeremy Clarkson, taka við verðlaunum fyrir vinsælasta fræðsluþáttinn á National Television Awards-verðlaunahátíðinni árið 2011 í O2 Arena í London. Getty

Í næstum 20 ár stjórnaði Clarkson „Top Gear“ ásamt Richard Hammond og James May. Þátturinn, sem var sýndur á BBC í 240 þáttum frá 2002 til 2022, fylgdist með þremenningunum þar sem þeir ferðuðust um heiminn og ræddu um bíla, önnur farartæki og margt, margt, fleira.

„Clarkson's Farm“, sem var frumsýndur á Prime Video árið 2021, fylgist með Clarkson þar sem hann reynir að reka bóndabæ úti í sveit án nokkurrar fyrri reynslu.

Read the full article at Vísir

2 reports

VísirIndependentCenter3 days ago
If the treatment batch is unsuccessful, he will not be in the next batch

Jeremy Clarkson, host of 'Top Gear' and other British TV shows, revealed during recent episodes of his show 'Clarkson's Farm' that he has been diagnosed with cancer. He shared this information with co-stars Charlie Ireland and Kaleb Cooper, who were visibly shocked. Clarkson explained that he had known about the diagnosis since May and underwent medical tests and scans. His doctors described the cancer as 'aggressive,' but noted it was detected early. Clarkson stated he would need treatment soon and mentioned that his body would be unable to work for a short period. During the episode, viewers

Bias read (Center): The article reports on Jeremy Clarkson's health disclosure without taking a stance or showing bias. It presents facts from Clarkson's statements and does not favor any particular perspective.

VísirIndependentCenter3 days ago
Jeremy Clarkson has been diagnosed with malignant cancer

Jeremy Clarkson, host of 'Top Gear' and other British TV programs, recently revealed that he has been diagnosed with cancer. In recent episodes of his show 'Clarkson's Farm,' he shared this information with co-stars Charlie Ireland and Kaleb Cooper. Cooper expressed doubt about the diagnosis, prompting Clarkson to explain that he had known about the cancer since May. Clarkson mentioned that he underwent medical tests and that doctors described the cancer as aggressive but noted it was detected early. He stated that treatment would begin soon and that his body would need time to recover. During

Bias read (Center): The article reports on a health-related announcement by a public figure without taking a stance or showing bias. The content is factual and focuses on the disclosure of a personal health issue.