ON
← Back to feed
ISCulture3 days ago

The daughter probably tried to get rid of

The article discusses the case of Cathrine Mancel, who was found dead at the Reykjavík Edition hotel in June 2025. Her mother, Ming Ting Mancel, is accused of killing her in collaboration with her husband, Emeric Mancel. According to forensic evidence presented during the third day of the trial in the Reykjavík District Court, Cathrine had attempted to escape from a ligature before she died. The prosecution claims that Cathrine wanted to die, while Ming Ting has maintained that she did not want to die. Forensic findings indicate that Cathrine was strangled and that two stab wounds were present

Cathrine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sem er grunuð um að hafa myrt Cathrine í samverknaði við eiginmann sinn á Reykjavík Edition-hótelinu í júní 2025, var sennilega kyrkt með snæri áður en hún hlaut stungusárið sem varð henni að bana.

Klórför voru á hálsi Cathrine sem bendir til þess að hún hafi reynt að losa sig úr snærinu. Hingað til hefur Ming Ting haldið því fram að Cathrine hafi viljað deyja.

Þetta kom fram í vitnisburði réttarmeinafræðings á þriðja degi aðalmeðferðar málsins yfir Ming Ting í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Cathrine og Emeric Mancel, faðir Cathrine og eiginmaður Ming Ting, fundust látin á Edition-hótelinu að morgni 14. júní 2025. Þegar viðbragðsaðila bar að garði var Ming Ting ein eftir á lífi í herberginu með eitt stungusár á bringu.

Stungan olli dauðanum

Í skýrslu réttarmeinafræðingsins kom fram að Cathrine hefði sennilega látist 13. júní klukkan 10.06, hátt í sólarhring áður en viðbragðsaðilar komu að líkinu, en vikmörk eru á milli klukkan 5.36 og 14.36.

Tvenn stungusár voru á bringu Cathrine en annað þeirra gekk inn í hjarta hennar og olli dauða hennar.

Fleiri áverkar voru á líkinu, meðal annars húðblæðingar á hálsi og andliti sem bentu til þess að hún hefði verið kyrkt með bandi. Við vettvangsrannsókn fannst eins konar snæri í herberginu en á því var blóð sem er ekki hægt að fullyrða úr hverjum var en lífsýni var á því úr öllum þremur fjölskyldumeðlimunum.

Í framburði réttarmeinafræðingsins kom fram að kyrkingin hefði sennilega hafist áður en að stungan í hjartað átti sér stað.

Vilji Cathrine óljós

Nokkur áhersla var lögð á þessa áverka í spurningum saksóknara og dómara í skýrslutökunni hjá réttarmeinafræðingnum.

Í framburði hans kom sömuleiðis fram að klórför höfðu verið á hálsi Cathrine en réttarmeinafræðingurinn taldi að það væri til marks um að hún hefði reynt að losa sig úr kyrkingunni.

Í skýrslutökunni yfir hinni grunuðu, Ming Ting, í síðustu viku kvaðst hún ekki muna eftir kyrkingu og sagðist ekki hafa framkvæmt hana. Þá hélt hún því sömuleiðis fram að Cathrine hefði látist sjálfviljug.

Réttarmeinafræðingurinn sagði að reynslan sýndi að fólk sem væri í raun búið að ákveða að taka eigið líf, til dæmis með kyrkingu, reyndi sjaldnast að losa sig með þeim hætti sem klórförin á hálsi Cathrine benda til.

Stungan skýrir ekki meðvitundarleysið

Þá var réttarmeinafræðingurinn spurður út í stungusárið sem Ming Ting var með á brjóstkassa sínum og því velt upp hvort um hafi verið að ræða sjálfsáverka eða ekki.

Réttarmeinafræðingurinn sagði að ekki væri hægt að fullyrða það en hvorki fundust hikmerki í kringum stungusárið sem myndu benda til þess að hún hefði stungið sig sjálf né varnaráverkar, t.d. á höndum, sem myndu benda til þess að hún hafi reynt að verja sig frá stungu einhvers annars.

Ming Ting hefur haldið því fram að hún hafi farið milli þess að vera með og án meðvitundar á meðan hún var stödd á hótelherberginu og jafnvel verið meðvitundarlaus svo klukkustundum skipti.

Í framburði réttarmeinafræðingsins kom fram að áverkarnir á Ming Ting væru ekki fullnægjandi skýringar á þessu. Skert meðvitund væri ekki dæmigerð fyrir stunguáverka sem þennan.

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og   [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Forensic Report

2 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
The daughter probably tried to get rid of

The article discusses the case of Cathrine Mancel, who was found dead at the Reykjavík Edition hotel in June 2025. Her mother, Ming Ting Mancel, is accused of killing her in collaboration with her husband, Emeric Mancel. According to forensic evidence presented during the third day of the trial in the Reykjavík District Court, Cathrine had attempted to escape from a ligature before she died. The prosecution claims that Cathrine wanted to die, while Ming Ting has maintained that she did not want to die. Forensic findings indicate that Cathrine was strangled and that two stab wounds were present

Bias read (Center): The article provides a factual summary of a legal case without apparent ideological framing. It reports on forensic evidence and court proceedings without showing clear bias toward either the prosecution or defense.

Official sources cited

  • government Forensic Report
  • government Reykjavík District Court Trial
RÚV FréttirState / PublicCenter5 days ago
The main course of the Edition continues

The main trial in the Edition case continues today at the Reykjavik City Court. Ming Ting Mancel is accused of killing her three-year-old daughter in collaboration with her boyfriend at the Edition hotel in Reykjavik. Her boyfriend and daughter died at the Edition hotel on June 14, 2025. Mancel is not charged with the death of her boyfriend. She has been in custody for 12 weeks while the investigation extended far beyond Iceland's borders, even reaching New Caledonia in the Pacific Ocean, which belongs to France. The main trial began on Friday and continues today. Mancel gave a lengthy account

Bias read (Center): The article reports on an ongoing criminal trial without apparent political framing. It provides factual details about the legal proceedings, the individuals involved, and the timeline of events without showing bias toward any side.

Go to the primary sources (2)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • governmentForensic Report
  • governmentReykjavík District Court Trial