ON
← Back to feed
ISSports7 days ago

A 36-year-old former NFL star has died

Aldon Smith, a former star defensive player in the NFL, died yesterday. His death has caused strong reactions within the NFL community as it came as a surprise.

Aldon Smith, fyrrverandi stjörnuvarnarmaður í NFL-deildinni, lést í gær. Fráfall hans hefur vakið sterk viðbrögð í NFL-heiminum enda kom það mikið á óvart.

Smith lék í sex tímabil í NFL-deildinni með San Francisco 49ers, Oakland Raiders og Dallas Cowboys.

Niners völdu hann upphaflega með sjöunda valrétti í nýliðavali NFL árið 2011.

Liðið staðfesti andlát Smith á laugardagseftirmiðdag. Engin dánarorsök var gefin upp.

„Við erum harmi slegin yfir skyndilegu og hörmulegu fráfalli Aldon Smith,“ sagði í yfirlýsingu frá 49ers.

„Óneitanlegir hæfileikar Aldon og algjörir yfirburðir hans á vellinum komu fram frá því augnabliki sem hann gekk til liðs við okkur, en hann átti eitt besta nýliðatímabil sem sést hefur í NFL-deildinni. Fyrir utan afburðaframmistöðu hans sem leikmanns verður Aldon minnst fyrir smitandi bros sitt sem lýsti upp hvert herbergi sem hann gekk inn í. Allt okkar félag sendir fjölskyldu Smith og öllum sem þekktu og elskuðu Aldon innilegustu samúðarkveðjur.“

Smith var eitt sinn talinn einn af bestu ungu leikmönnum deildarinnar en stormasamur ferill hans endaði árið 2020 eftir eitt tímabil með Cowboys.

Sem nýliði sló Smith í gegn með fjórtán leikstjórnendafellur og lenti í öðru sæti í kjörinu á varnarmanni ársins meðal nýliða.

Í kjölfarið fylgdi hans besta tímabil í NFL árið 2012, þar sem hann náði 19,5 leikstjórnendafellum og var valinn í stjörnuliðið (Pro Bowl) og úrvalsliðið (All Pro). Þessar 19,5 leikstjórnendafellur eru enn í dag met hjá félaginu fyrir eitt tímabil.

Read the full article at Vísir

1 reports

VísirIndependentCenter7 days ago
A 36-year-old former NFL star has died

Aldon Smith, a former star defensive player in the NFL, died yesterday. His death has caused strong reactions within the NFL community as it came as a surprise.

Bias read (Center): The article reports on the death of an athlete without any political commentary, framing, or biased language. It focuses solely on the event and its impact on the NFL community.