ON
← Back to feed
ISBusiness2 days ago

Ymir and Þorsteinn set up a new company

Ýmir Örn Finnbogason and Þorsteinn B. Friðriksson have founded a new company called Sleepstop ehf., which is an ownership management firm providing services such as financial management, branding, and operational support to subsidiaries operating hotels and travel services in Iceland. The founders previously worked at Plain Vanilla, a company they co-founded in 2010, and later at N1. They also created the mobile game TheMoogies and developed QuizUp, which became popular before Plain Vanilla went bankrupt in 2016. Teatime, another company founded by Plain Vanilla's owners, was established in 20

Ýmir Örn Finnbogason og Þorsteinn B. Friðriksson hafa stofnað félagið Sleepstop ehf.

Samsett mynd

Þorsteinn Friðriksson, oft kenndur við fyrirtækið Plain Vanilla og Teatime og Ýmir Örn Finnbogason fyrrverandi fjármálastjóri Plain Vanilla og fyrrverandi framkvæmdastjóri N1 hafa stofnað nýtt fyrirtæki í samstarfi við Sigurjón Jónsson.

Nýja fyrirtækið heitir Sleepstop ehf. Það er eignarhaldsfélag sem hefur með höndum eignarhald á dótturfélögum sem reka gistihús og ferðaþjónustu á Íslandi. Að auki veitir félagið dótturfélögum sínum stjórnunar- og umsýsluþjónustu, þar með talið fjármálastjórnun, vörumerkjaleyfi og rekstrarþjónustu samkvæmt upplýsingum úr Lögbirtingablaðinu.

Plain Vanilla ævintýrið hófst 2010

Þorsteinn og Ýmir stofnuðu Plain Vanilla 2010 og kynntu þeir snjallsímaleikinn TheMoogies ári síðar. Þeir voru fyrirferðamiklir á Plain Vanilla árunum og þótti smart að vinna hjá fyrirtækinu. Þeir borguðu góð laun og voru með búningadag einu sinni í mánuði. Fólk sem vann við að búa til tölvuleiki þurfti að kunna að skemmta sér. Þeir bjuggu til leikinn Quizup sem var vinsæll um tíma en 2016 dró ský fyrir sólu þegar Plain Vanilla varð gjaldþrota.

Teatime var stofnað árið 2017 af eigendum og lykilstjórnendum Plain Vanilla, sem hannaði leikinn QuizUp. Á meðal eigenda Teatime er stofnandi Skype samskiptaforritsins, Niklas Zennström.

Ljósmynd/Aðsend

Svo stofnuðu þeir fyrirtækið Teatime ásamt Gunnari Hólmsteini Guðmundssyni og Jóhanni Þorvaldi Bergþórusyni. Þeir fengu fjárfesta til að koma inn í félagið 2017. Á meðal fjárfesta var Davíð Helgason. Sagt var frá uppgangi Teatime ítrekað í fjölmiðlum.

Árið 2021 fór að halla undan fæti og sagði félagið upp öllum starfsmönnum sínum sem voru 16 talsins. Í kjölfarið fór félagið í þrot.

Nú er hinsvegar annað uppi á teningnum hjá Þorsteini og Ými og hafa þeir snúið sér að íslenskri ferðaþjónustu og umsýslu í kringum hana.

Smartland óskar þeim góðs gengis!

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
Ymir and Þorsteinn set up a new company

Ýmir Örn Finnbogason and Þorsteinn B. Friðriksson have founded a new company called Sleepstop ehf., which is an ownership management firm providing services such as financial management, branding, and operational support to subsidiaries operating hotels and travel services in Iceland. The founders previously worked at Plain Vanilla, a company they co-founded in 2010, and later at N1. They also created the mobile game TheMoogies and developed QuizUp, which became popular before Plain Vanilla went bankrupt in 2016. Teatime, another company founded by Plain Vanilla's owners, was established in 20

Bias read (Center): The article provides factual information about the founding of a new business entity and the professional backgrounds of its founders without any overtly biased language or framing.