ON
← Back to feed
ISCulture6 days ago

The World Cup: A Journey Through the Football Nations' Realm

The article introduces a weekly food theme focusing on dishes inspired by countries participating in the World Cup. It highlights recipes from different regions, including dishes from the Middle East and France, with specific mentions of ingredients and cooking styles. The week includes international cuisine with various spices and flavors, and on Iceland's National Day, the focus shifts to Icelandic cuisine.

Við ætlum að gera vel við okkur í vikunni þegar kemur að mat og drykk.

Bohdan/Unsplash

Í vikumatseðlinum að þessu sinni sækjum við innblástur til fótboltaleikja vikunnar og þeirra landa sem keppa á heimsmeistaramótinu. Þar sem mörg lið mætast á hverjum degi er auðvitað ómögulegt að endurspegla alla þá matarmenningu sem kemur við sögu. Þess í stað höfum við valið nokkrar af vinsælustu uppskriftunum á Matur sem tengjast þeim löndum sem leika á mótinu og gefa hugmyndir að því hvað gæti verið á boðstólum þegar flautað er til leiks.

Vikan verður því alþjóðleg, með alls konar kryddum og bragðtegundum og hún verður einstaklega skemmtileg.

Á þjóðhátíðardegi Íslendinga, miðvikudaginn 17. júní, leggjum við þó HM-þemað til hliðar og tileinkum daginn íslenskum réttum.

Mánudagur - Nautaspjót og brokkólí

Við byrjum vikuna á bragðferðalagi um Mið-Austurlönd með tveimur vinsælum uppskriftum frá Þráni Frey Vigfússyni, Michelin-kokki á Sumac. Annars vegar er það Mechoui-naut, kryddmarínerað nautaspjót borið fram með paprikumarmelaði, og hins vegar brokkólí með sinneps- og melassadressingu. Réttirnir eru litríkur, bragðmikill og skemmtilegur upphafspunktur vikunnar.

Þriðjudagur - Saltfiskur og  crème brûlée

Franskur saltfiskur á pönnu með tómötum, kapers og ólífum er einfaldur en afar bragðmikill réttur sem sækir innblástur til suðurhluta Frakklands og Miðjarðarhafsins. Saltfiskurinn fær að njóta sín  í þessum létta en glæsilega rétti sem sannar að frönsk matargerð er engu öðru lík.

Hinn frægi franski eftirréttur, crème brûlée, nýtur ávallt mikilla vinsælda. Margir halda að það sé miklu erfiðara að útbúa crème brûlée en raunin er og þora vart að reyna að töfra þennan dásamlega eftirrétt fram sem allir sælkerar elska.

Miðvikudagur - Brauðterta og súkkulaðikaka

Á þjóðhátíðardaginn höldum við okkur við íslenskar hefðir og setjum brauðtertuna í aðalhlutverk. Brauðterta röggsama ráðherrans er hátíðleg og matarmikil með roast beef, kartöflusalati, papriku og dijon-sinnepi. Þetta er réttur sem sómir sér vel á veisluborði dagsins og minnir á að fátt er jafn íslenskt og vel gerð brauðterta.

Í eftirrétt verður uppáhaldsterta Marentzu Poulsen smurbrauðsjómfrúar á boðstólum, dásamleg súkkulaðikaka í þjóðhátíðarútgáfu. Hún setur hátíðlegan punkt yfir i-ið og passar vel með kaffinu á 17. júní.

Fimmtudagur - Ostafondú

Á fimmtudegi sækjum við innblástur til Sviss og setjum ostafondú í aðalhlutverk. Þetta er hinn fullkomni réttur þegar fólk vill sitja lengi við borðið, dýfa góðu brauði í bráðinn ost og njóta matarins í rólegheitum. Einfalt, notalegt og ómótstæðilegt.

Föstudagur - Mexíkóskál með kínóa og kjúklingi

Á föstudegi færum við mexíkóska stemningu á matarborðið með litríkri og bragðmikilli skál. Kínóa, kjúklingur og fersk dressing gera réttinn bæði saðsaman og léttan, fullkominn fyrir kvöld þar sem gott er að hafa matinn einfaldan en skemmtilegan.

Laugardagur - lambakjöt og jarðarberjadraumur

Í dag ætlum við að grilla lambakjöt og hafa með því sumarlegt meðlæti. Við ætlum einnig að baka jarðarberjadraum sem er kaka sem mun hverfa af borðinu.

Sunnudagur - Rjúkandi ramensúpa með kjúklingi

Við endum vikuna á rjúkandi góðri ramensúpu með kjúklingi. Súpan er matarmikil, bragðgóð og full af góðu hráefni sem nærir og gleður. Fullkominn sunnudagsréttur þegar mann langar í eitthvað hlýtt, hollt og einstaklega gott.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter6 days ago
The World Cup: A Journey Through the Football Nations' Realm

The article introduces a weekly food theme focusing on dishes inspired by countries participating in the World Cup. It highlights recipes from different regions, including dishes from the Middle East and France, with specific mentions of ingredients and cooking styles. The week includes international cuisine with various spices and flavors, and on Iceland's National Day, the focus shifts to Icelandic cuisine.

Bias read (Center): The article discusses cultural topics related to food and does not present any political stance or controversy. It provides information about recipes and culinary traditions without bias or political framing.