ON
← Back to feed
ISSports13 days ago

Rather than monsters, we should do more for women.

The article discusses concerns raised by officials regarding the portrayal of women seeking assistance at Konukot, a shelter for homeless women in Ármúla, Iceland. The executive director of Rótarinnar, which manages Konukot, criticizes media reports suggesting an 'emergency situation' at the shelter, calling such claims exaggerated. The article notes that the number of calls to the shelter has decreased by about 60% since Konukot moved to Ármúla, with around 25 calls per year. It also mentions two incidents involving the safety of nearby residents, though these are described as isolated cases.

Bæta ætti þjónustu við konur sem leita sér aðstoðar í Konukoti í Ármúla fremur en að skrímslavæða þær í fjölmiðlum. Þetta segir framkvæmdastjóri Rótarinnar sem segir fréttaflutning af meintu ófremdarástandi í götunni ekki standast skoðun.

Það var um áramótin sem Konukot flutti úr Eskihlíð og í Ármúla. Undanfarið hefur borið á umfjöllun um meint ófremdarástand í götunni vegna þessa. Þannig ræddi DV í vikunni við ónafngreinda rekstraraðila í Ármúla sem lýsa hinu meinta ófremdarástandi sem stafi af skjólstæðingum Konukots sem er úrræði fyrir heimilislausar konur.

Það lýsi sér meðal annars í reglulegum komum lögreglu- og sjúkrabíla, óþrifnaði í formi sprautunála við húsnæði og skemmdarverkum sem unnin séu á bílum. Kristín I. Pálsdóttir framkvæmdastjóri Rótarinnar sem rekur Konukot segist ekki kannast við hið meinta ástand. „Þarna er til dæmis rakið að það séu þrjú útköll viðbragsaðila hérna á dag, þetta er algjörlega langt frá raunveruleikanum.“

Komum viðbragðsaðila hafi fækkað um tæp sjötíu prósent síðan Konukot flutti í Ármúla og eru um 25 komur viðbragðsaðila á árinu. Flestar komur lögreglu séu ekki vegna neyðarástands sem hefur áhrif á nágranna.

Þá hafi verið tvö atvik sem vitað sé af sem hafi verið truflandi fyrir nágranna, atvikið í síðustu viku og atvik þar sem lögregla kom með konu sem hefði þurft aðra þjónustu. Útkall viðbragsaðila að Konukoti feli langoftast í sér komu sjúkrabíla, þar sem sumar kvennanna kljáist við heilsufarsvanda, auk þess sem hreinlæti við húsið sé vel sinnt af starfsfólki. Kristín segist óttast að verið sé að skrímslavæða hópinn, samtal starfsmanna við nágranna hafi verið gott hingað til.

„Þessi frétt var algjörlega skrifuð þannig. Að setja fram allavega fullyrðingar þar sem er vitnað í ónafngreinda aðila sem standast alls ekki, eða eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum, það er bara mjög óábyrgt.“

Hún segir staðreynd málsins vera að konurnar séu ekki staddar í Konukoti stærstan hluta dagsins, heldur aðallega utan vinnutíma. Ljóst sé að bæta þurfi þjónustu, bjóða upp á betri skaðaminnkandi úrræði og bjóða upp á geðheilbrigðisþjónustu.

„Í staðinn fyrir að skrímslavæða jaðarsettar konur, að horfa á hvaða kerfisbreytingar við getum gert til að bæta samfélagið.“

Read the full article at Vísir
Source document: Kristín I. Pálsdóttir

1 reports

VísirIndependentCenter13 days ago
Rather than monsters, we should do more for women.

The article discusses concerns raised by officials regarding the portrayal of women seeking assistance at Konukot, a shelter for homeless women in Ármúla, Iceland. The executive director of Rótarinnar, which manages Konukot, criticizes media reports suggesting an 'emergency situation' at the shelter, calling such claims exaggerated. The article notes that the number of calls to the shelter has decreased by about 60% since Konukot moved to Ármúla, with around 25 calls per year. It also mentions two incidents involving the safety of nearby residents, though these are described as isolated cases.

Bias read (Center): The article presents factual information without overtly biased language or selective sourcing. It includes quotes from officials and provides data on call numbers and incidents, maintaining a balanced tone.

Official sources cited

  • organisation Kristín I. Pálsdóttir

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.

  • organisationKristín I. Pálsdóttir