Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes.
Breska ríkisútvarpið ( BBC ) er meðal þeirra miðla hefur haft eftir lögreglunni í Nashville sem sagði að Keith, sem var 29 ára þegar hann lést, hefði fundist látinn af lögreglumönnum sem voru sendir að heimili hans til að framkvæma velferðareftirlit, en að „ekkert saknæmt sé talið hafa átt sér stað“ í tengslum við andlát hans. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp.
Keith, sem hét réttu nafni Brytavious Chambers, var einna þekktastur fyrir að hafa komið að framleiðslu á laginu Sicko Mode sem færði honum sína fyrstu Grammy-tilnefningu árið 2019. Þá var hann einungis ríflega tvítugur.
Sagðir mér ekki að þú værir að fara
Hann var tilnefndur í annað sinn í flokki besta rapplagsins árið 2024 fyrir vinnu sína við lagið Rich Flex með Drake og 21 Savage. Keith vann með fjölda listamanna í gegnum árin, þar á meðal við lögin Before I Let Go með Beyoncé, Holiday með Lil Nas X, Not Alike með Eminem og I Did It með DJ Khaled.
Keith frá Memphis er talinn eiga þátt í að koma tónlistarkonunni Sexyy Red á framfæri og framleiddi meðal annars eitt af farsælustu lögum hennar Pound Town sem og fjölda annarra laga eins og Get It Sexyy , sem nýlega var spilað í HBO-þáttaröðinni Euphoria.
Rapparinn BlocBoy JB frá Memphis, sem þekkti Keith frá 14 ára aldri, birti færslu á Instagram um andlát hans og skrifaði: „Við töluðum saman á hverjum degi, þú sagðir mér ekki að þú værir að fara.“ Keith hóf feril sinn á meðan hann var enn í námi við Middle Tennessee State University, þar sem hann lauk gráðu í samþættum fræðum og fjölmiðlastjórnun.
Hér fyrir neðan má hlusta á lifandi flutning söngkonunnar Beyoncé á laginu Before I let go .
Read the full article at Vísir →📄Source document: Nashville Police Department
1 reports
VísirIndependentCenter2 days ago Tay Keith has dropped from just 29 years old toTay Keith, a music producer known for working with artists such as Drake, Travis Scott, Eminem, and Beyoncé, was found dead in his home in Nashville, Tennessee. He was 29 years old at the time of his death. Authorities have stated that no suspicious circumstances were found, and no cause of death has been officially announced. Keith was previously recognized on Forbes' '30 Under 30 Music' list and received his first Grammy nomination in 2019 for his work on the song 'Sicko Mode.'
Bias read (Center): The article provides factual information about the death of a music producer without taking a stance or showing bias. The tone remains neutral, focusing on the events surrounding his death and his professional achievements.
Official sources cited
- government Nashville Police Department
- press release BBC