ON
← Back to feed
ISHealth3 days ago

Set sail with the protestor on board

The whaling ship Hvalur 9 has departed from the harbor while Hólmsteinn Harðarson remains on the deck to protest whaling. He stated he does not plan to leave voluntarily, as it would be difficult to remove people from the deck. He mentioned he does not know when he will eventually descend or under what circumstances. Hólmsteinn organized the protest alone. He said he does not know what else he can do to help the whales, noting that some people protest, others write, and others speak, and everyone does what they can. He also noted that his departure would not stop the ship, as it would continue

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum.

Hann sagðist þá ekki vita hvað annað hann gæti gert til að mótmæla hvalveiðum.

Í samtali við fréttastofuna fyrr í dag sagðist Hólmsteinn ekki ætla sjálfviljugur niður því það væri erfitt að taka menn úr tunnunni. Hann segist ekki vita hvenær hann færi loks niður eða við hvaða aðstæður. Hólmsteinn skipulagði mótmælin einn.

„Ég bara veit ekki hvað annað ég get gert. Lögreglan kom og fór áðan. Nokkrir úr áhöfninni töluðu við mig,“ sagði Hólmsteinn í samtali við Vísi fyrr í dag en hann hafði einnig orð á því að hann ef að skipið færi, þá færi hann einnig.

„Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið. En ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum, sumir gera þetta, aðrir skrifa, aðrir tala. Það er fallegt að allir geri það sem þeir geta.“

„Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið,“ sagði Hólmsteinn Harðarson. Vísir

Hvalur 8 sigldi fyrr í dag upp í Hvalfjörð og líklegt þykir að Hvalur 9 geri það sömuleiðis þar sem hvalabyssur yrðu settar á það og skipverjar myndu þjálfa sig í notkun þeirra. Ætti skipið að halda út á mið til hvalveiða um næstu helgi, líklegast á laugardag, þann 20. júní. Báturinn virtist á fimmta tímanum vera á góðri siglingu í átt frá höfninni.

Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að ekki hefði verið óskað eftir aðkomu lögreglu að mótmælunum.

„Við fórum, ræddum við þá sem málið snýr að og það var ekki óskað eftir aðkomu lögreglu að þessu,“ sagði hann í samtali við blaðamann.

Hafi verið skráður sem farþegi

Vala Árnadóttir, formaður Hvalavina, gaf fréttastofu leyfi til að heyra símtal milli hennar og Hólmsteins, sem heyra má í myndskeiðinu hér að neðan. Tekið skal fram að hún er ekki fréttamaður Sýnar þrátt fyrir að hún haldi á hljóðnema merktum fréttastofunni í myndskeiðinu.

Í símtalinu kom fram að hann hefði verið skráður sem farþegi í skipinu. Hann sagði að starsfmenn í bátnum hafi tekið niður hjá honum kennitölu og nafn en hann hafi ekki skilið hvers vegna.

„Þeir sögðust ætla að skrá mig sem eitthvað sem ég skildi ekki og gaf þeim nafn og kennitölu og símanúmer og svo framvegis.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

Read the full article at Vísir

2 reports

VísirIndependentCenter3 days ago
Set sail with the protestor on board

The whaling ship Hvalur 9 has departed from the harbor while Hólmsteinn Harðarson remains on the deck to protest whaling. He stated he does not plan to leave voluntarily, as it would be difficult to remove people from the deck. He mentioned he does not know when he will eventually descend or under what circumstances. Hólmsteinn organized the protest alone. He said he does not know what else he can do to help the whales, noting that some people protest, others write, and others speak, and everyone does what they can. He also noted that his departure would not stop the ship, as it would continue

Bias read (Center): The article provides a neutral account of Hólmsteinn Harðarson's actions and statements without showing clear bias toward either supporting or opposing whaling. It quotes him directly and does not editorialize or favor one side over the other.

VísirIndependentCenter6 days ago
Whale hunters head out on hunting trips during sacred days

Whale hunting boats Hvalur 8 and Hvalur 9 have set sail today into Faxaflói. Both vessels have returned to port after their engines were tested and it was confirmed that everything is ready for the upcoming large-scale whale hunts. It was discussed last month that both boats had previously experienced mechanical issues, which could cost up to 20 million Icelandic krona per vessel. The ships' routes have also been adjusted. There is consideration to allow for urgent repairs to be made on land. The summer whaling quota has been finalized. Permission is granted to hunt up to 150 whales, 34 ofthem

Bias read (Center): The article provides factual information about the status of the whale-hunting vessels, their readiness for operations, past mechanical issues, route adjustments, and the summer whaling quota. There is no evident framing or slant in the language used, and the content remains neutral and informative.