ON
← Back to feed
ISSports3 days ago

Six Mistakes That Ruin a Marriage

The article discusses common mistakes that can negatively affect relationships, highlighting six issues that people often make. It emphasizes the importance of self-awareness, avoiding comparisons with others, and addressing communication problems.

Sambönd eru ekki alltaf dans á rósum.

Charlie Foster/Unsplash

Algengt er að fólki finnist eitthvað ekki vera alveg í lagi í sambandinu en gjarnan er erfitt að setja fingurinn á hvað það er. Langtímasambönd ganga í gegnum hæðir og lægðir og ekkert samband er fullkomið, þrátt fyrir það sem samfélagsmiðlar kunna að gefa til kynna.

Sérfræðingar í sambandsráðgjöf, sem bandaríski vefmiðillinn Cosmopolitan ræddi við, segja þó að ákveðin mynstur komi aftur og aftur upp hjá skjólstæðingum þeirra.

Hér eru sex algeng mistök sem geta smám saman haft neikvæð áhrif á sambandið.

Þú hefur gleymt sjálfri þér

Margar konur hafa alist upp við þá hugmynd að þær eigi alltaf að setja þarfir annarra framar sínum eigin. Afleiðingin getur orðið sú að þær bæla niður eigin tilfinningar, safna upp gremju eða fórna hluta af sjálfum sér til að þóknast öðrum.

Sambandsráðgjafinn Aoife Drury segir að margar konur óttist að teljast „erfiðar“ eða „of kröfuharðar“ ef þær tjá þarfir sínar. Þær kjósi því oft frið fram yfir heiðarleika.

Hún hvetur fólk til að spyrja sig ekki aðeins: „Ætti þetta samband að virka?“ heldur frekar: „Hvernig líður mér raunverulega í þessu sambandi?“

Þú berð sambandið saman við önnur

Samfélagsmiðlar eru fullir af trúlofunum, meðgöngutilkynningum og myndum af hamingjusömum pörum. Það getur auðveldlega skapað þá tilfinningu að eigið samband standist ekki samanburð.

Sambandsráðgjafinn Catherine Topham Sly bendir á að margar konur horfi meira á hvernig sambandið lítur út út á við en hvernig þeim líður raunverulega í því.

Í stað þess að spyrja: „Líkar honum við mig?“ ættum við frekar að spyrja: „Hvernig líður mér þegar ég er með þessari manneskju?“

Þú ert orðin of gagnrýnin

Þegar þarfir hafa verið vanræktar í langan tíma getur gremja safnast upp. Þá birtist hún oft í gagnrýni á makann eða alhæfingum eins og:

„Þú gerir þetta alltaf.“ „Þú gerir þetta aldrei.“

Slíkt orðalag hljómar oft eins og ásakanir og leiðir frekar til leiðinda en lausna. Bak við gagnrýnina leynist oft þörf fyrir meiri nánd eða öryggi, en áhrifin verða gjarnan þveröfug.

Þú ætlast til að makinn geti lesið hugsanir þínar

Margir gera ráð fyrir að makinn eigi að skilja þarfir þeirra án þess að hafa reynt að koma þeim í orð.

Kynlífs- og sambandsráðgjafinn Miranda Christophers segir að fólk reyni oft að túlka þögn eða hegðun maka síns í stað þess að spyrja beint. Það skapi auðveldlega misskilning.

Opin og heiðarleg samskipti eru lykillinn að því að skilja hvort annað og leysa vandamál áður en þau stækka.

Sambandið er orðið stór hluti af sjálfsmyndinni

Þrýstingur frá fjölskyldu, vinum eða samfélaginu getur valdið því að fólk óttast að vera einhleypt. En stundum kemur þrýstingurinn líka innan frá.

Ef sjálfsmyndin byggist að miklu leyti á því að vera í sambandi getur verið erfitt að horfast í augu við vandamál eða jafnvel viðurkenna að sambandið sé ekki að virka.

Sérfræðingar mæla með því að spyrja sjálfan sig reglulega:

„Hvað er raunverulega mikilvægt fyrir mig?“

Þú reynir of mikið að vera „kúl“

Margar konur finna fyrir pressu um að vera skilningsríkar, þolinmóðar, með mikla tilfinningagreind og um leið lágstemmdar. Afleiðingin getur orðið sú að þær bæla niður eigin þarfir af ótta við að teljast kröfuharðar eða viðkvæmar.

Sambandsráðgjafar minna á að í heilbrigðu sambandi eigi fólk að geta verið það sjálft. Þar ríkir grunnöryggi, stuðningur og sú tilfinning að vera „heima“ hjá makanum sínum.

Cosmopolitan

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter3 days ago
Six Mistakes That Ruin a Marriage

The article discusses common mistakes that can negatively affect relationships, highlighting six issues that people often make. It emphasizes the importance of self-awareness, avoiding comparisons with others, and addressing communication problems.

Bias read (Center): The article focuses on general relationship advice and does not take a political stance or discuss politically charged topics.