ON
← Back to feed
ISEconomy2 days ago

Accepting Amendments to the Bill

Hildur Sverrisdóttir, a member of the Independence Party's Economic and Trade Committee, expressed satisfaction with the outcome of the second debate on the draft bill regarding foreign investment restrictions due to national security and the general interest rule, which was passed by the Icelandic Parliament. She emphasized that while there was agreement on the goal of protecting national security, the original proposal had been too restrictive towards businesses and economic activity. The Independence Party proposed three amendments accepted during the vote, including removing loan and grant

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og viðskiptanefnd, segist sátt við niðurstöðu annarrar umræðu um frumvarp atvinnuvegaráðherra um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu, sem afgreidd var á Alþingi í kvöld.

„Frá fyrsta degi hafa allir verið sammála um tilgang frumvarpsins, að passa að erlend fjárfesting ógni ekki þjóðaröryggi, en frumvarpið átti líka að tryggja að ekki væri gengið of freklega fram gagnvart samkeppnishæfni fyrirtækja og til þess að stuðla að erlendri fjárfestingu og svo framvegis,“ segir Hildur í samtali við mbl.is.

Frumvarpið hafi komið þungt úr ráðuneytinu til nefndarinnar og þar hafi verið gengið of hart fram. Breytingarnar hafi verið skaðaminnkandi en frumvarpið sé þó enn nokkuð þungt.

Þrjár tillögur flokksins samþykktar

Í atkvæðagreiðslunni voru samþykktar þrjár breytingartillögur Sjálfstæðisflokksins sem Hildur segir að verði til þess að frumvarpið verði ekki óþarflega íþyngjandi gagnvart fyrirtækjum og viðskiptalífi í landinu.

Mikilvægasta breytingin að hennar mati er að lána- og fjármögnunarsamningar falli að öllu leyti út úr frumvarpinu. Ef það hefði ekki verið gert hefði það líklega verið til þess fallið að hækka vaxtakjör heimila og fyrirtækja í landinu.

Gott samstarf þvert á flokka

Ekki náðu þó allar tillögur flokksins fram að ganga. Felld var tillaga, upprunalega frá Samorku, um breytingu á fyrstu málsgrein 5. greinar, þess efnis að rýni ætti einungis við um þá samninga þar sem hætta væri á yfirráðum eða ógn við allsherjarreglu, í stað þess að tiltaka ólíkar tegundir samninga með tilteknum tímafrestum.

„En ég fagna því gríðarlega að í staðinn var samþykkt tillaga okkar um að það væri lengt í gildistíma þeirra samninga sem falla utan við rýnina,“ segir hún.

„Þannig að það mun létta mjög mikið á bæði gagnvart fyrirtækjunum og svo líka í umsýslunni í ráðuneytinu og annað. Ég fagna því mjög að þessi skaðaminnkun hafi verið samþykkt.“

Hún segir að samstarf nefndarinnar hafi verið afar gott þvert á flokka.

Read the full article at Morgunblaðið / mbl.is
Source document: Althingi

1 reports

Morgunblaðið / mbl.isIndependentCenter2 days ago
Accepting Amendments to the Bill

Hildur Sverrisdóttir, a member of the Independence Party's Economic and Trade Committee, expressed satisfaction with the outcome of the second debate on the draft bill regarding foreign investment restrictions due to national security and the general interest rule, which was passed by the Icelandic Parliament. She emphasized that while there was agreement on the goal of protecting national security, the original proposal had been too restrictive towards businesses and economic activity. The Independence Party proposed three amendments accepted during the vote, including removing loan and grant

Bias read (Center): The article presents a balanced view of the political discussion around the draft bill, quoting Hildur Sverrisdóttir's perspective without overtly favoring any particular side. It describes the amendments made and their implications neutrally.

Official sources cited

Go to the primary sources (1)

The official sources this coverage is built on. Read them directly to bypass framing.